Morgunblaðið - 25.05.2018, Qupperneq 12
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
egar kemur að því að finna
heitan pott fyrir heimilið
stendur valið á milli þess að
kaupa rafmagnspott eða
heitavatnspott. Ágúst Óskarsson,
stofnandi Á. Óskarsson og Co. ehf.,
segir hvora gerðina fyrir sig hafa
ákveðna styrkleika og veikleika.
„Við höfum sérhæft okkur í heita-
vatnspottum því það er ódýrara að
kaupa þá og reka. Heitavatnspott-
arnir bila líka sjaldan eða aldrei og
þar sem potturinn er tæmdur eftir
hverja notkun þarf ekki að setja
klór eða önnur efni í vatnið,“ út-
skýrir hann. „Rafmagnspottar gætu
mögulega verið betri kosturinn á
stöðum þar sem ekki er völ á heitu
vatni, eða þar sem skiptir máli að
potturinn sé tilbúinn og heitur fyr-
irvaralaust, en annars eru allar líkur
á að heitavatnspotturinn henti betur
fyrir flest venjuleg íslensk heimili.“
Helsti veikleiki heitavatnspotta er
að bíða þarf eftir að þeir fyllist.
Ágúst segir að það taki um það bil
20 mínútur að fylla pott í venjulegri
stærð sem er hæfilegur tími til að
hafa sig til fyrir notalega stund í
heitu vatninu. „Á meðan heitavatns-
pottarnir þurfa meira vatn þá þurfa
rafmagnspottarnir meira rafmagn
og reiknuðum við það út fyrir
nokkrum árum að rekstrarkostn-
aður dæmigerðs rafmagnspotts
hlaupi á 8-9.000 kr. á mánuði. Heitt
vatn er ódýrt á Íslandi og ef fólk
fyllir 1.200 lítra pott og lætur fara
þar vel um sig með eins og eina
bjórdós þá er bjórinn dýrari en
heita vatnið.“
Ísland kallar á djúpa potta
Heitir pottar fást líka í
ýmsum stærðum og út-
færslum og með eða án
nuddstúta. Ágúst mælir
með að velja tiltölulega
djúpan pott svo að
vatnið flæði yfir axl-
irnar. Hann segir há-
vaxið fólk eins og Ís-
lendinga stundum reka
sig á að sætin í venju-
legum pottum eru ekki
mjög djúp og vissara
við íslensk veðurskil-
yrði að geta haft brjóst-
kassa og herðar ofan í
heitu vatninu. „Fólk vill
líka alvöru nudd en
kemst ekki að því fyrr
en of seint að potturinn
sem það keypti er ekki
með mjög kröftuga
nuddstúta. Við förum
þá leið að selja okkar
potta með sterkri dælu og hafa ekki
of marga stúta í pottinum. Er nóg
að hafa þrjá stúta í mismunandi
hæð, og þar sem oftast eru ekki
fleiri en einn eða tveir í pottinum
getur fólk fært sig á milli stúta til að
nudda rétta staði á líkamanum,“
segir Ágúst. „Við getum selt pott-
ana með öllum leiðslum og stútum
hentar flestum mjög vel. „Í
gamla daga buðum við upp
á fimm ólíkar stærðir og
fimm liti, og varð það til
þess að margir áttu í
mesta basli með að velja.
Í dag er aðeins ein góð
stærð í boði og pottarnir
fáanlegir í þremur lit-
um,“ upplýsir Ágúst.
„Potturinn sem við selj-
um í dag er sex manna
pottur, og stærri en
potturinn sem ég á sjálf-
ur heima en í honum
hafa mest rúmast þrett-
án manns.“
Verji dæluna
gegn frosti
Það fer eftir aðstæðum
hversu dýrt og flókið
það er að koma heitum
potti fyrir. Ágúst segir
þurfa að gæta að því, ef
pottinum er komið fyrir
á timburpalli, að þegar
heitur pottur hefur verið fylltur af
vatni verður hann þungur og þarf
pallurinn að ráða við það. „Það er
æskilegt að hafa dæluna í sér-
stökum hitakassa, eða staðsetja
pottinn þannig að dælan geti verið
innanhúss, t.d. inni í bílskúr, svo
engin hætta sé á að hún frjósi og
skemmist í köldu veðri,“ segir hann.
„Leiðslurnar til og frá pottinum
þurfa líka að vera nægilega digrar,
en stundum rekur fólk sig á að
leiðslurnar sem fyrir eru reynast of
mjóar.“
Síðan er æskilegt að koma pott-
inum þannig fyrir að brúnin á hon-
um sé í um það bil 40 cm hæð frá
jörðu. „Það þýðir að auðveldara er
fyrir fólk að fara í og úr pottinum,
með því einfaldlega að setjast á
brúnina og svo vippa fótunum yfir,
og síðan fara sömu leið til baka.“
Umhirðan er ekki flókin. „Eftir
notkun má reikna með að það setjist
örlítil fitubrák efst á innanverðan
pottinn, en skelin er gerð úr akrýl-
efni sem þolir vel þrif og hef ég
þann háttinn á að renna yfir hlið-
arnar með bursta og sápu, og skola
pottinn síðan hreinan,“ segir Ágúst.
„Þegar potturinn er ekki í notkun er
honum lokað með þar til gerðu loki
sem er fest á sinn stað. Lokið er síð-
an brotið saman í tvennt og geymt á
góðum stað þar til næst þegar nota
á pottinn.“
Ýmsir gagnlegir aukahlutir eru í
boði og segir Ágúst t.d. upplagt að
hafa lýsingu í pottinum enda geti
fallega upplýstur pottur gert mikið
fyrir garðinn. „Pottana má líka fá
með barnayfirfalli, og er hann þá
með sérstöku loki sem má skrúfa
laust og fyllist potturinn þá bara til
hálfs svo að börnin sem nota pottinn
séu ekki í of djúpu vatni. Það eru
líka til alls kyns leikföng sem gera
heita pottinn enn skemmtilegri fyrir
smáfólkið.“
Að fylla pottinn kostar á við eina bjórdós
Morgunblaðið/Eggert
Slökun Ágúst Óskarsson segir æskilegt að geta fengið gott nudd ofan í pottinum, og gildir þá að hafa kröftuga dælu og færri nuddstúta frekar en fleiri.
Passlegt Verslunin selur núna bara eina tilvalda stærð af skeljum.
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018
JÓN BERGSSON EHF
HITAVEITUPOTTAR
Hitaveitupottar tilbúnir til notkunar - Plug & play
Þeir eru steyptir í heilu lagi og því alveg samskeytalausir
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
40
ÁRA
reynsla
Það þarf að staðsetja heita pottinn af kostgæfni. Fólk vill helst geta notað
pottinn í næði og úr augsýn nágranna og vegfarenda, en um leið er æski-
legt að potturinn sé í skjóli og á stað þar sem sólar nýtur. Sjálfur hefur
Ágúst fært sinn pott til tvisvar. „Fyrst valdi ég honum stað í sólinni, en
þegar á reyndi var ég yfirleitt að gera eitthvað allt annað en að fara í
pottinn þegar úti var gott veður og glampandi sól. Svo reyndi ég að velja
stað þar sem ég gæti horft á enska boltann á meðan ég væri í pottinum,
en þá var móðan til vandræða. Best er einfaldlega að finna reit þar sem er
sæmilegt logn og það þarf ekki endilega mikla sól því potturinn er heitur í
öllum veðrum.“
Hvar á heiti potturinn að vera?
fyrir nudd, en án dælunnar, og er þá
hægt að bæta dælunni við síðar svo
það verði ekki jafn stór fjárhags-
legur biti að kaupa drauma-
heitapottinn.“
Heiti potturinn má heldur ekki
vera of stór né of lítill. Í dag selur Á.
Óskarsson aðeins eina stærð af pott-
um sem reynslan hefur sýnt að