Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018
Þróttur – Til allra verka
• Mold og sandur
• Grjót og
grjóthleðsla
• Fellum tré
• Fjarlægjum
garðaúrgang
Vörubílastöðin Þróttur • Sævarhöfða 12 • Sími 577-5400 • www.throttur.is
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
E
rna Valdís Jónsdóttir er af
þeim sem þekkja til flestum
flinkari að grilla vegan-
gúrmeti. Hún er menntaður
útstillingahönnuður og stundar nú
nám í sálfræði við Háskólann á Ak-
ureyri.
Erna segir áhugamál sín jafn ólík
og þau eru mörg.
„Fyrst og fremst eru það mót-
orhjól og handverk sem eiga hug
minn allan, silfursmíði, matur og
drykkur. Svo finnst mér fólk alveg
ofboðslega skemmtilegt og því má
segja að ég nærist ekki bara á girni-
legum mat heldur einnig mann-
legum samskiptum.“
Vegan útskýrt
Hver er munurinn á því að vera veg-
an og grænmetisæta að þínu mati?
„Það eru margir sem velta þessu
fyrir sér. Meginmunurinn er sá að
grænmetisætur sniðganga dýra-
afurðir að miklu leyti en neyta í
flestum tilfellum mjólkurafurða og
annarra afurða sem koma til af hag-
nýtingu dýra. Veganar hinsvegar
leitast eftir fremsta megni við að
hagnýta ekki dýr að neinu leyti,
hvort heldur sem er í fæðu, fatnaði
eða annarri neyslu. Það er þó mjög
persónubundið hversu langt fólk
gengur í þessu. Sumir einskorða
sinn veganisma að mestu við fæðu-
inntökuna og eru þá á svokölluðu
„plant based-mataræði“ á meðan
aðrir taka þetta alveg eins langt og
mögulegt er, sniðganga þá jafnvel
skemmtanahald og annað sem ekki
getur talist vegan.“
Hvað grillar þú helst upp á vegan-
máta?
„Ég grilla eiginlega allt sem
mögulega er hægt að grilla. Allt frá
brauðmeti yfir í vegan-steikur og
eftirrétti. Helst vil ég geta hent allri
máltíðinni á grillið ef ég er á annað
borð að grilla.
Þessa dagana er ég voðalega mik-
ið í því að grilla allskonar spjót en
það er ekki síst vegna þess hversu
spennandi það er fyrir soninn, 5 ára.
Það er allt betra af spjóti, sjáðu til.
Þá marinerum við allskyns græn-
meti í heimalagaðri grillmariner-
ingu, röðum því svo á spjót með
„Oumph!“ eða Vego Bitum frá
Anamma. Meðlætið fer svo bara eft-
ir því í hvaða skapi við erum hverju
sinni.“
Að prófa sig áfram
Hver eru bestu ráðin til gera góðan
vegan-grillmat?
„Kannski helst bara að vera ekki
hræddur við að prófa sig áfram. Ég
var í byrjun svolítið föst í því að
grillmatur þyrfti endilega að vera
„steik“ en um leið og ég losnaði und-
an þeirri hugsun og fór að prófa mig
áfram með grænmeti í sömu mar-
ineringum og ég notaði áður á dýra-
afurðirnar þá áttaði ég mig á því að
möguleikarnir eru endalausir og það
er eiginlega bara skemmtilegra að
grilla eitthvað annað en endalausar
steikur. Það opnast alveg heill heim-
ur af nýjum og skemmtilegum mat-
arpælingum þegar maður losnar úr
þessum kassa.“
Getur þú gefið okkur uppskrift að
góðum mat?
„Já, ég get gefið þér uppskrift að-
allskyns góðgæti. Ég er öll í því að
einfalda mér lífið þessa dagana og
spjótin sem ég nefndi áðan, grillað
kartöflusalat og sumarlegur eft-
irréttur er eitthvað sem er mjög
fljótlegt og auðvelt að gera. Svo ég
tali nú ekki um hversu ótrúlega
bragðgott það er! “
Dæmi um uppskrift frá Ernu Val-
dísi er:
Marinering
100 ml ólífuolía
1 msk. HP-sósa
1 msk. paprikukrydd
1 msk. Ítölsk hvítlauksblanda frá Potta-
göldrum
1 msk. Montreal Chicken-krydd
frá McCormick
1 stk. hvítlauksrif marið
Aðferð: Öllu blandað saman og
látið standa á meðan grænmetið er
skorið niður.
Grillspjót
2 paprikur, ég vel að hafa rauða og gula
því þær eru sætari
1 askja konfekttómatar
1 kúrbítur skorinn í teninga
1 eggaldin skorið í teninga
1 askja kastaníusveppir
1 net perlulaukur (eða rauðlaukur skor-
inn í sneiðar)
1 poki Grill Oumph! (ófrosið)
Aðferð: Ég nota fjölnota spjót en
ef notuð eru tréspjót þá þarf að
leggja þau í bleyti í ca. 20 mínútur.
Það er fínt að gera það á meðan
maður sker niður grænmetið.
Paprika, tómatar, sveppir, egg-
aldin og kúrbítur skorið niður í hæfi-
lega stærð og velt upp úr mariner-
ingunni. Síðan raðað á spjótin með
lauknum og Oumph-inu.
Kartöflusalat
½ kíló af kartöflum, skornar í teninga
1 stk. rauðlaukur, skorinn smátt
2 hvítlauksrif pressuð
1 dl ólífuolía
Aðferð: Allt sett í bakka og grillað
þar til kartöflurnar eru gegnumeld-
aðar, ca. 20 mínútur. Ég kýs að
grilla kartöflurnar þar til það er
komin smá grillrönd á þær, það gef-
ur gott aukabragð í salatið.
1 askja af vegan-rjómaosti
2 dl vegan-majónes
2 msk. Shiransha
1 msk. HP-sósa
1 msk. Ítölsk hvítlauksblanda frá Potta-
göldrum
Salt eftir smekk
1 krukka af kapers
3 dl maísbaunir
Aðferð: Öllu blandað saman, hellt
yfir kartöflurnar og látið bráðna.
2 msk. af niðurskornum graslauk
stráð yfir þegar búið er að taka sal-
atið af grillinu.
Eftirréttur
Ferskur ananas
Apríkósur
Kanill
Vegan getur verið gúrmeti á grillið
Ljósmynd/Aðsend
Sælgæti Vegan kartöflusalat, þar sem niðurskorinn graslaukur setur punktinn yfir i-ið.
Ljósmynd/Aðsend
Girnilegt Erna Valdís er dugleg að grilla vegan mat. Hún segir æfinguna skapa meistarann. „Ég grilla eiginlega allt sem mögulega er hægt að grilla. Allt frá brauðmeti
yfir í vegan-steikur og eftirrétti. Helst vil ég geta hent allri máltíðinni á grillið ef ég er á annað borð að grilla.“ Eins og sést skortir ekki fjölbreytnina yfir glóðunum.