Morgunblaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 21 heilum akasíuvið, plasti eða gervi- grasi en það síðastnefnda er nýjasta viðbótin okkar. Svo er hægt að blanda þessu öllu saman því þetta er allt á mottum sem smella saman, þannig er til dæmis hægt að skipta upp svæðum á svölunum, hafa gras þar sem krakkarnir leika sér en hart efni þar sem eru stólar og borð.“ Sumarblóm og smávara sem gefa lífinu lit „Það er svo varla hægt annað en að minnast á gróðurhúsin okkar en þau eru staðsett fyrir framan versl- unina,“ bætir Aldís við. „Við vorum einmitt að bæta við einu húsi þannig að svæðið er orðið enn stærra. Í gróðurhúsunum er að finna mikið úrval af sumarblómum, blómapott- um, sígrænum plöntun, ávaxta- trjám, áburði, mold og ýmsu öðru. Svo er gaman að segja frá því að nú bjóðum við upp á ókeypis lífræna moltu sem unnin er úr mat- arafgöngum af veitingastaðnum okkar. Loks er gaman að geta þess að sumarlínan okkar í smávörunum er mjög litrík og falleg, mikið úrval af ýmiskonar vörum allt frá glösum til grilláhalda. Tilvalið í sumarveisluna eða bara þegar njóta á kaffibollans í morgunsólinni,“ segir Aldís að end- ingu. jonagnar@mbl.is Útibröns Fallegur borðbúnaður gerir útibrönsinn að ljúfri unaðsstund. Gróðurhús „Þau eru staðsett fyrir framan verslunina,“ segir Aldís. „Í gróðurhúsunum er að finna mikið úrval af sum- arblómum, blómapottum, sígrænum plöntun, ávaxtatrjám, áburði, mold og ýmsu öðru.“ Búnaðurinn Grillgræjur f ýmsum toga má fá í IKEA. Handhægt og flott. Grill Bakki fyrir grillun á grænmeti og ávöxtum. Fjölbreytt Litríkar lausnir geta gert gæfumuninn fyrir garðinn, svalir eða pall.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.