Morgunblaðið - 25.05.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 25.05.2018, Qupperneq 23
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is E inar Long, eigandi Grullbúðarinnar, segir grill- söluna hafa farið óvenju vel af stað þetta árið þrátt fyr- ir slæmt veðurfar. „Svo er bara að vona að sumarið fari að láta sjá sig því alltaf er skemmtilegra að grilla í góðu veðri.“ Að sögn Einars minnir kulda- kastið að undanförnu á mikilvægi þess að fjárfesta í öflugu og vönd- uðu grilli sem henti íslenskum að- stæðum. Íslenska sumarið er kald- ara en í Bandaríkjunum og Evrópu og vindkæling meiri og þarf grillið því bæði að vera með öfluga brennara og úr efnum sem halda hita. „Það er ágætis regla þegar kaupa á gasgrill af hefðbundinni stærð, t.d. 65x45 cm, að það hafi ekki færri en þrjá brennara með a.m.k. 10 kW afl. Þannig er tryggt að grillið sé nógu öflugt fyrir kalda daga segir Einar. „Mikilvægt er að hafa í huga að orkutölur séu skoð- aðar í hlutfalli við stærð grillflatar. Lítil grill þurfa minni orku og stærri grill meiri orku og ætti allt- af að taka mið af því við valið.“ Auk þess að hafa nógu marga og nógu öfluga brennara segir Einar að velja eigi grill með grillgrindur úr pottjárni sem halda hitanum vel. „Einnig er vissara að velja grill með tvöföldu loki sem veitir betri einangrun og bæði heldur hitanum betur inni í grillinu og þýðir að ytra byrði loksins verður ekki logandi heitt.“ Gas og kol með kosti og galla Gasgrillin eru vinsælust á Íslandi en íbúar á meginlandi Evrópu kaupa meira af kolagrillum. Einar segir báðar grillgerðirnar hafa sína styrkleika en margir velji gas- grillin vegna þess hvað þau eru þægileg í notkun. „Það tekur stutta stund að ná upp góðum hita í gasgrilli og einfalt að lækka eða hækka hitann. Að nota kolagrill er örlítið flóknara og þarf að stýra hitastiginu með því að auka eða minnka súrefnisflæðið og/eða breyta fjarlægð grillgrindarinnar frá kolunum á þeim grillum þar sem það er hægt. Með réttu græj- unum þarf samt ekki að taka mikið lengri tíma að kveikja í kolunum og gera kolagrillið heitt.“ Sama hvernig grill verður fyrir valinu þá verður að umgangast grillið rétt til að halda því hreinu og fallegu. Einar segir að í tilviki gasgrillanna sé best að slökkva strax á þeim eftir eldun og fjar- lægja mestu óhreinindin. Pott- járnsgrindur eru algengastar vegna yfirborðshita og hitaheldni og er best að þrífa þær þegar grindin hefur kólnað örlítið. „Þá ætti að bera á grindina matarolíu, sem fæst gjarnan í úðabrúsa, en hún í senn varnar skemmdum og hjálpar til að koma í veg fyrir að maturinn loði við teinana næst þegar grillið er notað. Gott er að þrífa grillið og grindurnar endrum og sinnum með sjóðandi vatni, uppþvottalegi og bursta.“ Að sögn Einars má heldur ekki gleyma að nota yfirbreiðsluna til að halda grillinu þurru og hreinu. „Ef stállok er á grillinu má mæla með efnum á borð við WD-40 til að þrífa stálið. Efnið er borið á og svo strokið burt með hreinum klút. Lökkuð grill er hægt að bóna og gera falleg en gæta þarf að því að nota ekki of sterk hreinsiefni og fylgja leiðbeiningum framleiðand- ans.“ Íslenskar aðstæður kalla á kröftug grill Grillgrindur úr pottjárni og tvöfalt lok hjálpa til við mat- reiðsluna. Eftir eldun er gott að þrífa mestu óhreinindin strax af grillinu og bera matarolíu á grindina. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hiti Brot af úrvalinu hjá Grillbúðinni. Frá vinstri: rómantískt eldstæði, „egg“ grill að asískri fyrirmynd, klassískt gasgrill og reykofn. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 23 ÞráðlaUs, létT oG LipUr tæki sEm KlárA vErKið HraTt og örUggLegA vErð Frá 19.950kR sTiHl HLeðsLusLáttUvélaR vErð Frá 69.850kR hLeðsLuvErKfærIn Frá gEra gArðvInnUnA sKeMmtIlEgrI!I I I! Hvellur • Smiðjuveg 30, 200 Kópavogur • www.hvellur.com • s: 577 6400 Opið virka daga 9:00 - 18:00 og 12:00 - 16:00 á laugardögum. Stóra heimilisvélin með drifi • Briggs & Stratton 575EX Series 140cc OHV bensínmótor • Sláttubreidd 46 cm • Sjálfkeyrandi drif 3.6 km/t • Afturkast með 60 L poka og "Mulching" (hökkun) • 6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 mm • 18 og 28 cm hjól, góð á ójafnri grasflöt • Ein samþátta hæðarstilling fyrir öll hjól Heimilisvélin. • Briggs & Stratton 450E Series 125cc OHV bensínmótor • Sláttubreidd 46 cm • Afturkast með 60 l poka og möguleika á „Mulching” • 6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 mm • 18 cm hjól • Tvær samþátta hæðarstillingar Murray sláttuvélar frá Hvelli Loksins eru gæða sláttuvélarnar aftur fáanlegar á Íslandi, allar vélarnar eru framleiddar í Evrópu með nýjustu umhverfisvænum gæðamótorum frá Briggs og Stratton. Varist eftirlíkingar!! Murray EQ500X Ready Start Verð kr.97.698,- Murray EQ400 TILBOÐ aðeins kr.59.635,- Grillbúðin selur ekki aðeins úrval af grillum frá þýska framleiðandanum Landmann heldur líka vönduð garðhúsgögn og alls kyns aukahluti fyrir grillmeistarann á heimilinu. Er ástæða til að benda sérstaklega á útihitarana og útieldstæðin sem finna má í búðinni: „Fólk hefur verið mjög ánægt með eldstæðin sem við seljum, þau eru lokuð með neti og sést eldurinn allan hringinn. Eldstæðin skapa einstaka stemningu í garðinum eða úti á palli, því frá þeim kemur notalegur ylur og falleg birta og börnin hafa gaman af því að grilla sykurpúða í eldinum,“ útskýrir Einar. Útihitarar geta lengt sumarið og fjölgað þeim dögum sem hægt er að nota pallinn og svalirnar. „Gashitarar eru skemmtilegur kostur en orku- frekari en rafmagnshitarar. Innrauðu ker- amikstuttbylgjuhitaranir frá breska framleið- andanum Tansun eru tilvalinn kostur fyrir íslenskar aðstæður því vindur hefur engin áhrif á hitann og varminn kemur um leið og kveikt er.“ Til að gera sumarið heitara Notagildi „Mikilvægt er að hafa í huga að orkutölur séu skoðaðar í hlutfalli við stærð grillflatar,“ segir Einar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.