Morgunblaðið - 25.05.2018, Page 25

Morgunblaðið - 25.05.2018, Page 25
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 25 Síberíulerki - Aldrei að bera á Í kjarnvið síberíulerkis er náttúruleg fúavörn. Því þarf aldrei að bera fúavörn á viðinn.Viðurinn er sterkur, endinga- góður og þolir afar vel íslenska veðráttu. Veggklæðningar og pallaefni Flest allir þeir sem þekkja til segja að garðvinna sé heilsueflandi bæði fyrir líkama og sál. Rannsóknir styðja þessar kenningar. Hér koma helstu niðurstöður þeirra. Vinna í garðinum brennir kaloríum Samkvæmt rannsóknum brennum við allt að 330 ka- loríum á klukkustund í léttri garðvinnu. Sem er meira en þú brennir við að lyfta lóðum á sama tíma. Góð stefna er að fara út í garð þrisvar til fimm sinnum í viku og sinna léttum garðstörfum í allt að hálfa klukku- stund í senn. Garðvinna minnkar streitu Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að garðyrkja er ein besta vörnin á móti streitu sem völ er á. Streituhormón minnka með útiveru, léttri garðyrkju, súrefni, nálægð við gróðurinn og sól. Blóm breyta skapi fólks Sálfræðingar hafa rannsakað áhrif blóma á geðslag fólks. Jákvæð fylgni hefur fundist á milli þeirra sem eru úti í garði og aukinnar hamingju. Eins sýna rann- sóknir að þeir sem eru mikið í kringum blóm eigi auð- veldara með að tengjast fólki en aðrir. Við fáum öflugra fegurðarskyn með garðvinnu, finnum fyrir auknu þakk- læti og auðmýkt í garð lífsins, samkvæmt þessum at- hugunum í hegðunarfræði. Garðyrkja kemur fólki í andlegt hvíldarástand Það þekkja margir þau áhrif sem hlaup hafa meðan á þeim stendur. Þetta þægilega „zone“ sem þú getur einnig fundið í hugleiðslu. Garðyrkja kemur fólki í sama ástand. Á þennan andlega stað þar sem fólk finn- ur fyrir friði, hvíld og tengingu við sig sjálft og náttúr- una. Garðyrkja eflir ónæmiskerfið Flestir kannast við máltækið „Á misjöfnu þrífast börnin best.“ Það sama á við fullorðna í garðyrkju. Það að vera með hendurnar í mold eflir ónæmiskerfið, sem og að rækta og borða eigið grænmeti úr garðinum. Garðyrkja eflir tilfinningalegan þroska Flestir sem vinna við garðyrkju segja að blóm skynji einlægni betur en fólkið sjálft. Ef þú sinnir blómunum í garðinum af einlægni og ást þá þrífast þau best. Þannig getur garðyrkja eflt tilfinningalegan þroska og margir yfirfæra slíkt á menn, börn og dýr eftir að hafa náð tökum á þessu í garðyrkju. elinros@mbl.is Ástæður þess að garðvinna er holl fyrir líkama og sál Ljósmynd/Thinkstockphotos Róandi Undir yfirborði garðyrkjunnar liggja leiðir að aukinni vellíðan og hamingju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.