Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ LEITA TILBOÐA
GARÐHÚS
Á SUMAR-
TILBOÐI
BREKKA34 - 9 fm
25% afsláttur
Verð áður 399.300 kr.
Verð nú
30% afsláttur
Verð áður 497.850 kr.
Verð nú
25% afsláttur
Verð áður 598.000 kr.
Verð nú
www.kofaroghus.is
sími 553 1545
299.500 kr.
NAUST - 14,4 fm
STAPI - 15 fm
348.500 kr.
448.500 kr.
KOFAROGHÚS
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
U
ndanfarin sumur hafa verið
lífleg hjá timbursölu Bau-
haus og segir Kristján Er-
lendsson að eftirspurnin
eftir pallaefni hafi aukist jafnt og
þétt frá opnun verslunarinnar.
Eftir því sem efnahagsástandið
hefur skánað hafa áherslurnar
breyst: „Í seinni tíð er algengara
að fólk vilji kaupa dýrari efni, s.s.
harðvið, lerki og plastpallaefni og
má greina að pallarnir eru að
verða stærri og veglegri.“
Kristján er deildarstjóri timbur-
sölunnar og segir hann fólk m.a.
velja dýrara efni í pallana því það
létti umhirðu og viðhald. „Harð-
viður og lerki eru slitsterk efni og
nánast viðhaldsfrí. Það má halda
litnum við með því að bera reglu-
lega á olíu en margir leyfa viðnum
að veðrast og verða fallega grár.
Plastefnið er síðan viðhaldsfrítt
með öllu, þolir mikinn umgang og
lætur varla á sjá.“
Skrúfurnar faldar
Af nýjungum fyrir pallasmíðina
nefnir Kristján svk. pallastiklur,
sem eru 30x30 eða 30x60 einingar
sem má nota til að klæða gólfið á
pöllum og á svölum. „Hver stikla
samanstendur af fjölum sem búið
er að festa á plastgrind, og eru
stiklurnar lagðar með því að læsa
plastgrindurnar saman og gefur
það skemmtilegt útlit þar sem
hvergi sést í skrúfu,“ segir hann.
„Við eigum líka von á nýrri gerð
af timburfjölum með smellukerfi,
frá fyrirtækinu Dolle. Þar er fjöl-
unum smellt ofan í þar til gerða
grind og t.d. hentugt á svölum til
að fá slétta áferð sem er alveg
laus við skrúfuför.“
Kristján á einnig von á að nýtt,
gagnvarið og kolsvart pallaefni
muni gera lukku. „Um er að ræða
hefðbundið grænt pallaefni, sem
hefur verið meðhöndlað með svört-
um lit og ætti að geta sett sterkan
svip á garðinn.“
Taki mið af útliti hússins
Þegar kemur að því að hanna og
smíða garðpallinn þarf að huga að
mörgu. Kristján segir ágætt að
láta útlit, lögun og stærð pallsins
taka mið af húsinu og umhverfi
þess svo að hann stingi ekki í stúf.
„Það ætti líka að hanna pallinn
með tilliti til þess úr hvaða átt sól-
in skín og hvaðan vindurinn blæs.
Ráðgjöf góðs landslagsarkitekts
getur verið ómetanleg og alltaf
hægt að mæla með því að fá fag-
mann til annast smíðina.“
Kristján segir líka ágætt að
huga að lýsingu við hönnun palls-
ins. „Vönduð lýsing getur verið
mjög fegrandi og aukið notagildi
pallsins þegar tekur að rökkva.
Alls kyns möguleikar eru í boði og
er Bauhaus með eina stærstu
ljósadeild landsins með útiljós í
úrvali.“
Meðal algengustu mistaka við
pallagerðina nefnir Kristján að
ekki sé farið með undirstöðurnar
nógu djúpt og ekki rétt frá þeim
gengið. „Þá getur fólk lent í frost-
lyftingum sem valda því að pall-
urinn fer að aflagast. Af þeim til-
fellum sem rata inn á okkar borð
má nær alltaf rekja mistökin til
þess að ekki voru notuð rétt
vinnubrögð við smíði pallsins og
ekki leitað ráða hjá sérfræð-
ingum.“
Viðhaldið nauðsynlegt
Kristján segir líka brýnt að um-
gangast pallinn rétt og timbrið
geti farið að láta á sjá ef viðhald-
inu er ekki sinnt. „Nema pallurinn
hafi verið smíðaður úr timbri sem
má veðrast, eða úr plastefni, þá er
fátt annað sem kemur til greina en
að fara á hnén einu sinni á ári og
olíubera viðinn. Einnig er hægt að
fá sérstök hreinsiefni hjá okkur til
að halda pallinum hreinum og fal-
legum og draga úr gráma ef hann
er byrjaður að myndast.“
Þó það geti verið vandasamt að
hanna pallinn og smíða þá segir
Kristján að snotur og sterkbyggð-
ur pallur sé fjárfesting sem fáir
sjái eftir. „Pallurinn er sælureitur
fjölskyldunnar og framlenging af
heimilinu. Þegar upp er staðið
þykir flestum að peningunum sem
fóru í pallinn hafi verið vel varið.“
Meira sótt í dýrari efni
Með pallstiklum má klæða veröndina eða svalirnar án þess að sjáist nokkurs staðar í skrúfu. Þegar hanna á fal-
legan pall í garðinn ætti að huga að vindátt og stöðu sólar og upplagt að hafa pallinn fallega upplýstan.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Dökkt Af nýjungum í versluninni má nefna svart timbur sem ætti að vekja áhuga.Metnaður Af sölunni má ráða að pallarnir séu veglegri nú en oft áður.
Nauðsyn „Nema pallurinn hafi verið smíðaður úr timbri sem má veðrast, eða úr plastefni, þá er fátt annað sem kemur til
greina en að fara á hnén einu sinni á ári og olíubera viðinn,“ segir Kristján. Ekki er hægt að stytta sér leið í viðhaldinu.
Vönduð lýsing getur verið
mjög fegrandi og aukið
notagildi pallsins þegar
tekur að rökkva.
Sælureitur Það verða til góðar minningar á pallinum. Myndúr safni.