Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 16

Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 16
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Fólk um allan heim samein- ast í um- hyggju fyrir drengjum sem hafa orðið að þola raunir sem ekki ætti að leggja á börn og enn sér ekki fyrir endann á. Afköst starfsfólks hafa jafn- framt haldist óbreytt þó vinnutíminn sé styttri og á flestum vinnustöðum hefur dregið verulega úr skammtíma- veikindum. Flestir þekkja vel þá staðreynd að Íslendingar vinna mun lengri vinnudag en þær þjóðir sem við viljum bera okkur saman við. Vinir og ættingjar annars staðar á Norðurlöndunum hafa meiri tíma til að sinna fjölskyldu, vinum og áhugamálum. Við þessu vill BSRB bregðast með því að stytta vinnuvikuna úr 40 stundum í 36 án launaskerðingar. Þegar hafa verið stigin mikilvæg skref með tilraunaverkefnum sem bandalagið stendur fyrir ásamt Reykjavíkurborg og ríkinu. Í dag vinna um 2.700 einstaklingar á vinnustöðum sem taka þátt í þessum tveimur tilraunaverkefnum. Þetta eru bæði staðir þar sem unnið er í dagvinnu og vinnu- staðir þar sem unnin er vaktavinna. Hjá ríkinu hafa fjórar stofnanir tekið þátt og verða fimm frá og með haustinu. Reykjavíkurborg byrjaði fyrr á sínu tilraunaverkefni og hefur árangurinn verið svo jákvæður að öllum vinnu- stöðum borgarinnar var boðið að taka þátt síðasta vor. Þó BSRB taki þátt í tilraunaverkefnunum einskorðast þátttakan ekki við félagsmenn aðildarfélaga BSRB. Fjölmargir félagsmenn stéttarfélaga sem eiga aðild að Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Kennarasambandi Íslands taka þátt í að stytta vinnu- vikuna. Þá eru dæmi um vinnustaði eins og Hugsmiðjuna sem hafa innleitt styttingu vinnuviku hjá sér til framtíðar. Allt hefur þetta áhrif og nú hafa Akraneskaupstaður, Akureyrarbær og Reykjanesbær ákveðið að hefja tilraun um styttri vinnuviku meðal sinna starfsmanna. Fleiri munu fylgja í kjölfarið. Niðurstöður fram að þessu sýna að starfsánægja hefur aukist, líðan á vinnustað batnað, lífsgæði aukist og auðveldara er fyrir starfsfólkið að samræma vinnu og einkalíf. Í viðtölum við starfsfólk hefur meðal annars komið fram að það upplifir að stressið heima fyrir hafi minnkað með styttingunni. Afköst starfsfólks hafa jafnframt haldist óbreytt þó vinnutíminn sé styttri og á flestum vinnustöðum hefur dregið verulega úr skamm- tímaveikindum. Það er ekki bara verkalýðshreyfingin sem vill stytta vinnuvikuna. Skynsamir stjórnendur vilja einnig fara þessa leið enda sýnir reynslan að ávinningurinn er veru- legur fyrir bæði vinnustaðinn og starfsfólkið. Má bjóða þér meiri frítíma? Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB Það var líkt og heimsbyggðin gæfi frá sér feginsandvarp þegar fréttir bárust af því að tólf fótboltadrengir og þjálfari þeirra sem lokuðust af inni í helli í Taílandi hefðu fundist á lífi eftir níu daga vist.Það má segja ýmislegt um mannkynið. Reyndar er það stundum ansi sjálfhverft og dyntótt og virðist jafnvel þrífast best á átökum, en það á vissulega líka sínar góðu hliðar. Þær hafa opinberast á síðustu dögum þegar fólk um allan heim sameinast í umhyggju fyrir drengjum sem hafa orðið að þola raunir sem ekki ætti að leggja á börn og enn sér ekki fyrir endann á. Fréttir um að drengirnir séu furðu brattir í aðstæðum sínum eru hughreystandi. Börn eru stórmerkilegar manneskjur og búa iðulega yfir meiri þrautseigju og útsjónarsemi en fullorðnir ætla þeim. Í erfiðum aðstæðum finnast ætíð einstaklingar sem stíga fram og eru reiðubúnir að sýna fórnfýsi. Til er nokkuð sem heitir siðferðileg skylda, það er reyndar afar auðvelt að banda henni frá sér, en samt eru alltaf einhverjir sem hlýða kalli hennar. Það á við um læknana tvo í taílenska hernum sem buðust til að dvelja með drengjunum og þjálfara þeirra í ömur- legum aðstæðum. Enginn ætlast til slíkrar fórnar, hana er ekki nauðsynlegt að færa, en samt er hún í boði. Sá björgunarleiðangur sem nú er í undirbúningi í Taílandi er afar áhættusamur og þar eru einstakl- ingar sem eru tilbúnir að leggja á sig mikið erfiði og jafnvel leggja líf sitt í hættu. Um allan heim fylgist fólki með gangi mála og lætur sig miklu varða að vel fari. Það er mikilsverður eiginleiki að geta fundið til með öðrum og sett sig í spor þeirra. Það er við fréttir eins og þessar sem sá eiginleiki verður áberandi í fari svo margra. Fólki stendur ekki á sama um örlög tólf drengja sem verða að komast heilu og höldnu til fjölskyldna sinna. Þannig höfum við á síðustu dögum séð náungakærleikann taka völd. Það er hug- hreystandi og eflir trú á hinu annars óútreiknanlega mannkyni. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, kannski eini ráðamaður þjóðarinnar sem með sanni má kallast hjartahreinn, lagði það til á dögunum að taílensku fótboltadrengirnir myndu leiða liðin inn á völlinn í úrslitaleik HM í fótbolta í Rússlandi. Það er afar falleg hugsun á bak við þessa hugmynd sem er þó ekki raunhæf í stöðunni eins og hún er í dag. En þegar drengirnir eru komnir heim heilir á húfi (það má ekki leyfa annarri hugsun að komast að) þá munu þeir sem tök hafa á örugglega leggja sitt af mörkum til að gleðja þá. Drengirnir eiga eflaust sínar hetjur í boltanum sem gætu þar lagt sitt af mörkum, þó ekki væri nema með því að senda þeim skilaboð. Heimsókn til þeirra í eigin persónu væri þó enn betra framtak. Hugur heimsbyggðarinnar er hjá drengjunum í hellinum. Nú ríkir samkennd, umhyggja og ósk um að allt fari vel. Á lífi Þjónustumiðstöð tónlistarfólks Ógagnsæi Kjararáð klykkti út með sínum síðasta úrskurði í síðasta mánuði en hann var birtur í fyrradag. Í honum setur ráðið líklega nýtt Íslands- met í ógagnsæi stjórnvalds án atrennu. Athugasemda og rök- stuðnings forstöðumanna er í engu getið og ekki er með neinu móti hægt að lesa úr úrskurð- inum hvers vegna embættis- manni A er raðað fyrir ofan eða neðan B og C. Af orðum forstöðumanna má síðan lesa að ráðið sé ekki aðeins seint til svara þegar blaðamenn eru á línunni og dæmi eru um að einhver erindi hafi ekki hlotið afgreiðslu ráðsins. Framhaldið Það sást úr flugvél að tilraunin kjararáð hafði fyrir löngu farið út um þúfur. Fyrirkomulagið var óskilvirkt sem skilaði sér í því að þeir sem undir það heyrðu urðu eftir í launa- þróun. Sést það best á því að í einhverjum tilfellum tók hin nýja ákvörðun nú við af ákvörðun kjaranefndar. Sífellt þurfti að leiðrétta afturvirkt sem nær undantekningalaust skapaði ólgu á markaði. Nýtt fyrirkomulag verður lagt fyrir á þingi í haust. Vonandi er að þinginu takist vel til svo að ekki verði áframhald á ógagnsæi og launakippum. joli@frettabladid.is 5 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R16 s k o ð U n ∙ F R É T T A B l A ð I ð SKOÐUN 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 2 -1 4 0 C 2 0 5 2 -1 2 D 0 2 0 5 2 -1 1 9 4 2 0 5 2 -1 0 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.