Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 20

Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 20
Auðvitað vildum við hafa það öðruvísi og liggja í sól- baði, alla vega svona af og til. En hugsum dæmið til enda. Hvort er betra: Að hafa aðgang að ómældu magni af góðu drykkjarvatni og meira að segja einnig af heitu vatni, eða að þurfa að skammta sér nauðsynlega daglega vatnið eða jafnvel að fá alls ekki hreint og ómengað vatn? Viðreisn mun láta til sín taka í sínum hjartans verkefnum, vinna þétt með meirihlut- anum og ekki síður byggja upp samstarf og samtal við minnihlutaflokka og verk- efni á kjörtímabilinu. Full ástæða er til að fylgjast með áhrifum notkunar á lúsaeitri á lífríki sjávar, upp- eldisstöðvar nytjastofna og rækjumið. 5 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R20 s k o ð U n ∙ F R É T T A B l A ð I ð Alþjóðlegar rannsóknir sýna fram á aukið stress hjá ungl-ingum sem kemur meðal annars fram sem eymsli í maga, höfði og baki eða almenn þreyta. Margir þættir valda ekstra vanda- málum á unglingsárunum eins og skólastress (faglegar áhyggjur), sálrænt/félagslegt stress (rifrildi/ átök við fullorðna og skólasystkini, vandamál með vináttu), persónu- legt stress (sjálfsmynd, útlit, þyngd) og álagsstreita (einelti, skilnaður). Hér er gífurlegur kynjamismunur en stúlkur þjást mun oftar af stressi en drengir. Ein af mögulegum ástæðum er léleg sjálfsmynd. Léleg sjálfsmynd getur stafað af því að gapið milli huglægrar sjálfsmyndar, það er að segja þess sem maður óskar sér að vera, og hlutlægrar sjálfsmyndar, hvernig maður er, verður stórt. Þetta veldur vanlíðan. Vísindamenn telja að samfélags- miðlar séu ein af höfuðástæðum fyrir slíkri þróun – huglæga sjálfs- myndin verður svo stór – gapið stækkar sem veldur meiri streitu og lélegri sjálfsmynd. Maður er sífellt að mæla sjálfan sig við ‘stjörnur’, reyna að vera vinsæll, fá mörg ‘like’, hafa flott útlit og vera með réttum vinum. Þetta á sér- lega við um stúlkur sem nota sam- félagslega miðla meira en drengir. Rannsóknir sýna að hjá stúlkum er sterkast samband milli almennrar sjálfsmyndar og sjálfsmyndar sem tengist útliti þeirra. Hjá drengjum er sterkt samband milli almennrar sjálfsmyndar og sjálfsmyndar sem tengist útliti, félagslegu samþykki og færni í íþróttum. Léleg sjálfsmynd getur komið fram hjá stúlkum sem þunglyndi, kvíði og átraskanir en hjá drengjum sem hegðunarvandi, áhættuhegðun og tourette. Þýski prófessorinn og geðlæknir- inn Manfred Spitzer segir að ein af helstu hættunum við að nota snjallsíma/spjaldtölvur of mikið og vera stöðugt á samfélagsmiðlum sé hættan á fíkn. Fræðimenn hafa fundið út að unglingar eyða sífellt meiri tíma á netinu og verða þess vegna að minnka tímann sem þeir nota til annarra hluta sem getur valdið félagslegri einangrun. Það má segja að vöntun verði á fjölbreyttu áreiti sem er gífurlega mikilvægt fyrir þróun heilans. Sífellt minni hreyfing getur valdið því að fleiri glíma við offitu. Ef maður skoðar stúlkur í þessu samhengi þá verða þær háðar einhverju sem er ekki gott fyrir sjálfsmynd þeirra og and- lega heilsu. Fleiri rannsóknir sýna greinilega fram á samband milli einmanaleika og netnotkunar. Þar að auki getur mikil netnotkun valdið svefnvandamálum. Svefn- leysi gerir mann ekki bara krónískt þreyttan heldur er mikil hætta á ofþyngd og sykursýki. Mikil net- notkun getur einnig valdið þung- lyndi. Það er að segja að maður noti of mikinn tíma á samfélagsmiðlum sem á hinn bóginn getur haft slæm áhrif á heilsu komandi kynslóða. Það er kominn tími til að við for- eldrar, aðstandendur, kennarar og stjórnmálamenn skoðum þessi mál. Þörf er á breytingum. Heim ild ir: Spitz er, M. (2014). Digi tal dem ens. Panta gruel For lag AS, Oslo, Norge Unglingarnir okkar – sjálfsmynd, stress og samfélagsmiðlar Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlislegri sálfræði við Háskólann í Þrándheimi og Háskólann í Reykjavík  Þessa dagana er enn og aftur verið að hella eitri í sjóinn við Ísland til að drepa laxalús sem herjar á laxeldi á Vestfjörðum. Sífellt kemur betur og betur í ljós að eldi í opnum sjókvíum veldur miklum neikvæðum umhverfis- áhrifum. Laxalús er talin ein helsta ógn við villta stofna laxfiska í Noregi og hefur orsakað 12-30% minnkun á stofnum laxfiska sem lifa í nágrenni eldisins. Rétt er að harma það and- varaleysi sem stjórnvöld og eftirlits- stofnanir hafa sýnt varðandi áhrif hennar á umhverfið hérlendis. Mat- vælastofnun hefur ítrekað dregið úr áhyggjum manna vegna þessarar plágu með fullyrðingum um að hún nái sér ekki á strik í köldum sjó við Ísland. Nú er hið sanna komið í ljós. Matvælastofnun kallar böðun á milljónum fiska með lúsaeitri „fyrirbyggjandi“ aðgerð sem er fullkomlega rangt. Það er ekkert fyrirbyggjandi við slíkar aðgerðir og nær alveg öruggt að eitra þarf aftur að vori. Reynslan hefur sýnt að eitrun nýtist bara í takmarkaðan tíma þangað til lúsin hefur þróað viðnám við eitrinu. Upplýsingagjöf Matvælastofnunar um stöðu lúsas- mits er afar takmörkuð og virðist allt gert til að auðvelda uppbyggingu á þessum mengandi iðnaði. Sótt er hart að stjórnvöldum að leyfa frekara eldi meðal annars í Ísafjarðardjúpi og jafnvel Eyjafirði. Lúsaplágan í laxeldinu fyrir vestan hlýtur nú að opna augu MAST og gera þær fyrirætlanir að engu. Það dettur engum heilvita manni í hug að leyfa norskum stórfyrirtækjum að eitra þau svæði sem eru nauð- synleg uppeldi hefðbundinna nytja- stofna. Full ástæða er til að fylgjast með áhrifum notkunar á lúsaeitri á lífríki sjávar, uppeldisstöðvar nytja- stofna og rækjumið. Þegar laxeldisbylgjan fór af stað var bent á hættuna sem villta lax- inum stafar af erfðablöndun, lúsa- plágu og sjúkdómum. Nú liggur fyrir að tveir af þessum þremur þáttum eru veruleikinn eftir mjög takmarkað eldi í örfá ár. Því verður vart trúað að stjórnvöld leyfi sér áfram að setja kíkinn fyrir blinda augað þegar hagsmunir norsku lax- eldisfyrirtækjanna eru annars vegar. Að hella eitri í sjó Jón Helgi Björnsson Laxamýri Fyrir hvað stendur nýi meiri-hlutinn í höfuðborg landsins? Við í Viðreisn höfum heyrt því fleygt að í raun hafi ekki verið myndaður nýr meirihluti heldur sé um að ræða framhald frá fyrra kjör- tímabili. Slík framsetning er ekki bara mikil einföldun heldur líka einfaldlega röng. Vissulega er að hluta um sömu flokka að ræða og áttu í meirihlutasamstarfi í Reykja- vík á árunum 2014-2018 en hlutföll flokkanna eru allt önnur og verka- skiptingu hefur verið breytt. Í nýjum meirihluta er líka nýr flokkur, Viðreisn, sem hefur skýra sýn og stefnu í hvernig borgin okkar á að vera.  Viðreisn er ekki neinn annar flokkur né fjórða hjólið undir gamla meirihlutanum, með Viðreisn var myndaður nýr meirihluti og við myndun meiri- hlutans var megináherslan að ná sem mestu úr stefnu Viðreisnar inn í málefnasamninginn. Og hver var árangurinn? Helstu baráttumál okkar í Við- reisn í nýafstöðnum kosningum voru að hlúa að fjölbreyttu atvinnu- lífi, tryggja góðan rekstrargrundvöll fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í borginni, huga vel að öllum hverf- um borgarinnar undir slagorðinu „inn með úthverfin“, einfalda kerfið, innleiða notendamiðaða þjónustu til að einfalda líf íbúa og stefna að framúrskarandi menntun fyrir börnin okkar. Öll fengu þessi mál góðar undirtektir í meirihlutavið- ræðum líkt og sjá má í samstarfssátt- mála nýs meirihluta. Við sameinuð- umst um þessi mál líkt og svo mörg önnur. Borgarfulltrúar Viðreisnar lögðu höfuðáherslu á málefnin og hvernig best væri að tryggja fram- gang þeirra á kjörtímabilinu. Hlut- verk fulltrúanna og embætti voru svo mótuð út frá því. Aukið umfang borgarráðs tryggir það að undirrituð, sem er formaður borgarráðs, mun hafa yfirumsjón með atvinnustefnu borgarinnar, því nú heyra atvinnumálin undir borgarráð. Í borgarráði verður því endurskoðuð atvinnustefna borgar- innar, þar með talin tillögugerð að vettvangi til samráðs um einstaka þætti atvinnulífsins, s.s. ferðaþjón- ustu, verslun og þjónustu. Not- endamiðuð þjónusta, úttektir og innleiðingar verða einnig leiddar af borgarráði. Formaður borgarráðs mun jafnframt leiða endurskipu- lagningu þjónustu borgarinnar, þvert á svið, með aðkomu formanna þeirra ráða sem breytingarnar snerta og viðkomandi sviðsstjóra. Viðreisn mun ekki hvika frá því að að veita framúrskarandi menntun og gera skólana okkar að eftirsóttari vinnustöðum, þar munum við leika lykilhlutverk með varaformennsku í nýju skóla- og frístundaráði. Þetta er ekki tæmandi listi yfir verk okkar á næsta kjörtímabili, því rödd okkar mun heyrast hátt í flestum ráðum borgarinnar. Við viljum frjálslynda, jafnréttissinnaða og alþjóðlega borg þar sem þjónusta við borgarana er í fyrirrúmi og við teljum að meirihlutasáttmálinn feli þetta í sér. Það eru spennandi tímar fram undan í borginni og mörg brýn verkefni sem verður unnið að af ein- hug og festu. Viðreisn mun láta til sín taka í sínum hjartans verkefn- um, vinna þétt með meirihlutanum og ekki síður byggja upp samstarf og samtal við minnihlutaflokka og verkefni á kjörtímabilinu. Viðreisn blasir við í Reykjavík Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisn- ar í Reykjavík og formaður borgarráðs Vatn er tvímælalaust mikil-vægasta auðlind jarðar, án vatnsins er ekkert líf. Í heita pottinum um daginn var veðrið eins og oft áður aðalumræðuefnið og þá sérlega sú vætutíð sem hefur ríkt hér á Suðvesturlandi allan júní. Auðvitað vildum við hafa það öðruvísi og liggja í sólbaði, alla vega svona af og til. En hugsum dæmið til enda. Hvort er betra: Að hafa aðgang að ómældu magni af góðu drykkjarvatni og meira að segja einnig af heitu vatni, eða að þurfa að skammta sér nauð- synlega daglega vatnið eða jafnvel að fá alls ekki hreint og ómengað vatn? Mér er alltaf minnisstætt þegar ég fór með gönguferðafélögum yfir Arnar- vatnsheiðina. Þegar komið er fyrir ofan stóru vötnin gengur maður yfir svæði þar sem tært lindarvatn sprett- ur alls staðar upp í fallegum litlum lækjum. Maður frá Austurlöndum nær var meðal þátttakenda og hann ætlaði alveg að missa sig í að dást að þessu og vildi bara hafa eina svona tæra lind nálægt heima hjá sér. En hann fær steikjandi sól nánast allan ársins hring. Gæðunum í heiminum er misskipt. Við á þessu rigningarsama landi tökum hreina vatnið sem sjálfsagðan hlut. Og förum ekki alltaf nógu gæti- lega að til að varðveita þessa auð- lind. Enn rennur skólp óhreinsað í ár, vötn og læki. Plön um að leggja háspennulínur yfir vatnsverndar- svæði eða leyfa mengandi starfsemi rétt við útjaðar þess eru auðvitað út í hött. Það mætti efla eftirlit og vöktun á vatnasvæðum til muna þó að það kosti. Við viljum ekki þurfa að sjóða allt drykkjarvatn af því að það finnst mengun í því. Allir íbúar verða að vinna sem einn í að huga að vatnsvernd. Það er ekki í lagi að henda alls konar sulli í niðurföllin. Það er ekki í lagi að þvo bílana heima hjá sér með mengandi efnum. Það er ekki í lagi að nota eitur efni t.d. illgresiseyði og úðun á tré og runna í görðunum. Það fer nefnilega með regnvatninu í jarð- veginn og svo áfram þó að framleið- endur slíkra efna vilji telja okkur trú um annað. Sjórinn í kringum okkar land skap- ar mikil verðmæti. Þar er margt sem mætti betur fara. Það eru nefnilega ekki hvalir sem éta fiskinn frá okkur heldur er það mannfólkið sem eyði- leggur mikilvæg hrygningarsvæði með botnvörpum sem stórskemma allt lífríkið á hafsbotninum. Með því að stífla jökulár til þess að virkja verða mikilvæg næringarefni eftir í lónunum sem myndu annars fara í sjóinn og auka þar frjósemina. Fiskeldi í sjávarkvíum í stórum stíl er mjög varasamt. Allar rannsóknir í þeim fjörðum þar sem þetta er stundað sýna mikla mengun með slæmum áhrifum á lífríkið. Landeigendur hafa hér á landi mikið vald, geta ráðskast með vatns- auðlindirnar á sínu landi nánast eftir vild og farið í framkvæmdir sem geta valdið miklu tjóni á náttúruger- semum. Síðustu árin hafa auðmenn keypt upp heilu jarðirnar án þess að hafa búsetu þar. Hér þarf að grípa inn í með löggjöf til að hindra það. Það er nefnilega svo freistandi að vilja „nýta allt það vatn sem fer ónotað til sjávar“. Sumir vilja verða ríkir helst á einni nóttu. Vatnsvernd kostar sitt en þeir sem vilja græða hratt reyna oft að komast hjá því að borga í þennan sjóð. En þetta kallast að stunda rányrkju. Afleiðingar munu kosta komandi kynslóðir margfalt meira seinna. Svo, gott fólk, hættum að kvarta þó að mikið rigni hér á SV-landi. Gleðj- umst yfir okkar stórkostlegu vatns- auðlindum og stöndum vörð um þær. Dýrmætasta auðlind jarðar Úrsúla Jünemann kennari á eftirlaunum 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 2 -3 6 9 C 2 0 5 2 -3 5 6 0 2 0 5 2 -3 4 2 4 2 0 5 2 -3 2 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.