Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 34

Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 34
Við erum mjög peppaðir fyrir því að halda uppi fjörinu á Króknum, alls kyns óvæntar uppákomur. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Auðunn Blöndal hlakkar til götu- veislunnar á Sauðárkróki þar sem hann verður með glens og gaman. Auðunn segir að þeir félag-arnir verði með götupartí og lofar miklu fjöri. „Götupartí hefur ekki verið áður á Króknum og þess vegna ætlum við að leggja áherslu á að þetta verði virkilega skemmtilegt. Það verður grillað, hlaupið, skemmtilegar uppá- komur, söngur og glens,“ segir hann. Auddi og Sverrir Bergmann eru æskufélagar og báðar aldir upp á Króknum. Þá lofar Auddi að Geirmundur Valtýsson taki upp nikkuna og haldi uppi góðri stemmingu. „Við erum mjög peppaðir fyrir því að halda uppi fjörinu á Króknum. Það verður gott að borða og ýmsar óvæntar uppá- komur. Við félagarnir munum bregða á leik með gestum og taka þátt í íþróttaleikjum. Það verður mikil götustemming í bænum og vonandi verður þetta bæjarhátíð sem er komin til að vera,“ segir hann. „Það geta allir skráð sig í hin ýmsu mót sem verða í boði. Fólk þarf ekki að vera í neinu íþrótta- félagi til þess. Þetta er tilvalið fyrir vinahópa, skreppa norður, kíkja á ball með Páli Óskari og taka þátt í dagskránni. Svo vonumst við auð- vitað til að brottfluttir Króksarar komi í heimsókn enda er þetta hátíð fyrir alla.“ Auddi segir að hann hafi alist upp á Króknum til nítján ára aldurs og þekki alla í bænum. „Fjölskyldan mín er flutt til Reykja- víkur en ég á marga gamla og góða vini í bænum. Ég vann um tíma í bakaríinu og einnig var ég flokks- stjóri. Það er ekki hægt að hugsa sér betri stað til að alast upp á en Sauðárkrók. Þetta er fallegur bær og hann er frægur fyrir fegurð sína. Svo eru margir þekktir einstakl- ingar frá Króknum,“ segir Auddi en einn af þeim mörgu er Úlfur Úlfur. „Ég vil endilega hvetja alla til að drífa sig norður því þetta verður æðislega skemmtilegt.“ Sverrir Bergmann mun troða upp á hátíðinni ásamt Hall- dóri Gunnari Pálssyni úr Fjalla- bræðrum en þeir hafa unnið mikið saman. Sverrir kemur oft fram með Fjallabræðrum. Landsmótið sjálft er síðan sannkölluð íþróttaveisla þar sem verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa. Brjálað götupartí á Króknum Auðunn Blöndal, Steindi, Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar Fjallabróðir mæta allir á Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki. Þeir ætla að halda uppi stanslausu fjöri og bregða á leik með gestum. Siglt er út í Drangey daglega í sumar. Útsýnið úr sundlauginni á Hofsósi er einstakt. Alls kyns viðburðir verða í boði á Landsmóti UMFÍ fyrir mótsgesti en mótið fer fram á þéttum kjarna miðsvæðis á Sauðárkróki og aðgengi að uppá- komum því með besta móti. Fyrir þá sem vilja sækja sér afþreyingu út fyrir mótssvæðið má benda á vefsvæðið visitskaga fjord ur.is þar sem skoða má flest það sem sveitar- félagið og fyrirtæki á svæðinu hafa upp á að bjóða, hvort sem það eru flúðasiglingar, hestaferðir, göngu- ferðir um söguslóðir, fuglaskoðun eða upplýsingar um náttúrulaugar, gistingu og veitingastaði. Skagafjörður státar af ríkulegum menningararfi og fornfrægum sögustöðum en allt frá landnámi hefur svæðið gegnt mikilvægu hlut- verki í sögu Íslands. Mikilfenglegt þykir að ríða um héraðið á hesti og er svæðið enda einn þekktasti áfangastaður hestamanna hér á landi. Í Skagafirði er fjöldi hesta- leiga sem bjóða upp á lengri og skemmri hestaferðir, sýningar um íslenska hestinn og heimsóknir á hrossaræktarbú. Fyrir þá sem vilja heldur ganga á tveimur jafnfljótum þá er að finna fjölbreyttar gönguleiðir, hvort sem er fyrir göngugarpa eða þá sem kjósa létta útiveru. Gefin hafa verið út göngukort af göngu- leiðum um fjallgarðana í vestan- verðum Skagafirði og gönguleiðum um Tröllaskaga í austanverðum Skagafirði. Finna má göngukortin í upplýsingamiðstöðvum ferðamála í Varmahlíð og á Sauðárkróki. Allir finna eitthvað við sitt hæfi í Skagafirði Landsmót UMFÍ mun draga mikinn fjölda ferðafólks til Skagafjarðar og er þá til góða að sveitar- félagið er sannkallaður ævintýraheimur þegar kemur að fjölbreyttri afþreyingu og skemmtun. Paradís fuglaskoðenda Fuglalíf í Skagafirði er með því blómlegasta sem þekkist á Íslandi og varpstöðvar hundraða þúsunda sjávarfugla má finna í Drangey, Málmey og Lundey. Daglega er boðið upp á ferðir út í Drangey, sem er í miðjum Skagafirði, og ekki er aðeins um fuglaskoðunarferðir að ræða því oftar en ekki láta hvalir og selir sjá sig á leiðinni. Burtséð frá ferðum út í Drangey má benda á að aðstæður til fugla- skoðunar í landi eru einnig afskap- lega góðar. Á tiltölulega afmörkuðu svæði eru sjófuglar, vað- og vot- lendisfuglar, mófuglar, spörfuglar og ránfuglar. Á fuglaskoðunar- stöðum í nágrenni Sauðárkróks hafa verið sett upp skilti um þær fjölmörgu tegundir sem finna má á svæðinu. Heitar laugar og matur úr heimabyggð Allmargar heitar náttúrulaugar er að finna í Skagafirði og fimm sund- laugar verða opnar meðan á Lands- mótinu stendur. Sundlaugarnar eru á Sauðárkróki, Hofsósi, Hólum í Hjaltadal, Sólgörðum í Fljótum og í Varmahlíð. Á öllum sundstöðum eru heitir pottar þar sem upplagt er að slaka á eftir ferðadag um sveitar- félagið. Þá má leggjast út í nátt- úrulaugar á borð við Grettislaug á Reykjaströnd og Fosslaug, skammt frá Reykjafossi. Þá ber að nefna að sveitarfélagið var árið 2015 útnefnt EDEN- gæða- áfanga staður Íslands fyrir verkefnið Matar kistan Skagafjörður. Mark- mið verkefnisins var að kynna nýja, lítt þekkta áfangastaði í Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni. Í samræmi við útnefninguna vinna ýmsir aðilar í héraðinu saman að því að efla skag- firska matarmenningu og koma henni á framfæri. Þannig eru réttir sem að stærstum hluta eru úr skag- firsku hráefni merktir sérstaklega á matseðlum veitingahúsa sem taka þátt í verkefninu auk þess sem fjöl- breytt úrval af skagfirskri matvöru má finna í verslunum, á mörkuðum og beint frá bændum. Hér er aðeins stiklað á stóru og er þeim sem ætla að leggja leið sína um Skagafjörð í sumar bent á vefnum visitskagafjordur.is. Sauðárkrókur er fagur bær að mati Audda enda ólst hann þar upp. 6 KYNNINGARBLAÐ 5 . j Ú L í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RLANDSmót umfí 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 2 -2 2 D C 2 0 5 2 -2 1 A 0 2 0 5 2 -2 0 6 4 2 0 5 2 -1 F 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.