Fréttablaðið - 05.07.2018, Síða 21
Við óttumst að hömlu-
lítið fiskeldi í sjókvíum geti
spillt lífríki ánna og þar um
leið lífi og búsetu í sveitum
Húnaþings, Borgarfjarðar
og raunar byggðum um land
allt.
Ný Bosch
þvottavél
Bosch hefur í eina og hálfa öld haft það að markmiði að auðvelda
daglegt líf fólks. Nú eru 60 ár liðin frá því að fyrsta sjálfvirka Bosch
þvottavélin fór í framleiðslu.
Af þessu tilefni bjóðum við nú glænýja Bosch þvottavél á
einstaklega hagstæðu verði.
Vél þessi er búin langflestum þeim þvottakostum sem menn þurfa
á að halda í dagsins önn. Hún tekur mest 9 kg og er með íslensku
stjórnborði. 1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++. Kolalaus, hljóðlátur og
sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. Tromlan fer einstaklega vel
með þvottinn. 15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar var
leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta.
Við leggjum áherslu á
hágæða vörur og fyrsta
flokks þjónustu á góðu verði.
Gildir til og með 31. júlí eða á meðan birgðir endast.
A
Kynningarverð:
89.900 kr.
Fullt verð: 127.900 kr.
Þvottavél, WAT 2849BSNBylgjulagatromla
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21F i M M T u D A G u R 5 . j ú L í 2 0 1 8
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Það var mikil framsýni manna sem settu fyrst löggjöf um lax- og silungsveiði fyrir áratugum
síðan. Í framhaldi voru veiðifélög
stofnuð sem allar götur síðan hafa
haft það að leiðarljósi að auka og
bæta þá auðlind sem lax og silungs-
veiðar eru. Áður en veiðifélögin voru
stofnuð veiddi hver fyrir sínu landi.
Þar var afi minn á Sveinsstöðum
engin undantekning.
Um eða upp úr árinu 1930 fóru
stangveiðimenn að banka upp á og
vildu fá að veiða á stöng í Vatnsdalsá.
Afi og amma voru gestrisin og sinntu
þessum gestum af alúð og lengi nutu
erlendir veiðimenn gestrisni þeirra,
gistu á Sveinsstöðum, veiddu í ánni
og greiddu góðan pening fyrir. Þetta
kom sér einkar vel þar sem þau hjón
höfðu ráðist í það stórvirki að byggja
veglegt steinsteypt íbúðarhús á
jörðinni 1929. Árið eftir kom heims-
kreppan og afurðaverð féll niður úr
öllu valdi. Kreppulánin og laxinn
björguðu því að enn búa afkomend-
ur þeirra rausnarbúi á Sveinsstöðum.
Sama má segja um fjölmargar jarðir
víða um land. Laxveiðin hefur skipt
sköpum um búsetu og stutt byggð-
ina.
Veiðifélag Vatnsdalsár var stofnað
árið 1936 og um það leyti voru veiði-
félög stofnuð víða um land á grund-
velli laganna sem þá höfðu verið sett
um þessa auðlind. Við Vatnsdalsá er
föst búseta jarðeigenda á rúmlega 30
bæjum. Síðan sonur minn og tengda-
dóttir tóku við búskap á Sveins-
stöðum árið 2004 hafa ættliðaskipti
orðið á allmörgum bæjum við ána og
í sveitunum býr margt af ungu fólki.
Allir eru jafnir
Grunntónninn í veiðilöggjöfinni
hefur frá upphafi verið sá að öllum
landeigendum að ánni er skylt
að vera í veiðifélaginu. Þar hefur
hver eitt atkvæði, hvort sem hann
á mikið land og jafnvel alla bestu
veiðistaðina, eða aðeins stuttan
spöl með ánni og jafnvel engan
veiðistað. Stjórn félagsins er kosin á
almennum félagsfundi. Allar meiri-
háttar ákvarðanir þarf að bera undir
félagsfund. Samkenndin er mikil því
á félagslegum grunni eru allir jafnir.
Fjölmargir erlendir veiðimenn
hafa sagt mér að einn af kostum
þess að koma til Íslands og veiða sé
að undantekningarlaust eigi sömu
aðilar landið og réttinn til veiða.
Þeir séu því velkomnir, ekki aðeins
til að veiða, heldur er þeim frjáls
för meðfram ánum og njóta lands
og fegurðar kringum árnar. Víða
erlendis eru það einhverjir auð-
menn sem eiga árnar, en bændurnir
sem yrkja bakkana, hafa engan hag
af komu veiðimanna og hafa ama
af veru þeirra við ána. Þar er engin
friðsæld og þar finna þeir ekki frið í
hjarta eða sömu upplifun og þeir fá
af því að veiða á Íslandi.
Lífgjafar sveitanna
Magnús
Ólafsson
frá Sveins-
stöðum
Trúlega greiða engir erlendir
gestir jafn mikið fyrir að upplifa
Ísland og veiðimenn. Þeir dást
undan tekningalítið að þeirri alúð
sem eigendur laxveiðiánna hafa
lagt í að bæta árnar og allan aðbún-
að kringum veiðarnar. Það hefur
ætíð þótt sjálfsagt að selja aðgang-
inn að þessari auðlind. Tekjurnar
fara annars vegar í að bæta árnar,
aðbúnað í veiðihúsum og aðgengi
að veiðinni, og renna hins vegar
sem arður til eigendanna. Sá arður
nýtist í mörgum tilfellum til að gera
sveitirnar byggilegri og auðga líf
þeirra sem þar búa.
Óttumst sjókvíaeldið
Í dag njóta trúlega á fimmta þúsund
jarðeigenda tekna af útleigu lax- og
silungsveiðihlunninda. Ég fullyrði
að meirihluti þessara jarðeigna er
í eigu þeirra sem búa í sveitunum.
Bak við þessa jarðeigendur eru fjöl-
skyldur sem lifa og starfa í sveitinni, á
sama hátt og fjölskylda afa og ömmu
gerði um og eftir árið 1930. Ég er ekki
viss um að ég nyti þeirrar ánægju að
sjá þrjú barnabörn vaxa úr grasi á
bökkum Vatnsdalsár ef tekjurnar
af veiðunum hefðu ekki ávallt skipt
sköpum í búsetu í dalnum.
Þannig fjölskyldur eru víða um
land. Þess vegna viljum við sem
unnum ánum gera allt sem hægt er
til að tryggja það að þær verði áfram
lífgjafi sveitanna. Við óttumst að
hömlulítið fiskeldi í sjókvíum geti
spillt lífríki ánna og þar um leið
lífi og búsetu í sveitum Húnaþings,
Borgarfjarðar og raunar byggðum
um land allt.
0
5
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
2
-4
5
6
C
2
0
5
2
-4
4
3
0
2
0
5
2
-4
2
F
4
2
0
5
2
-4
1
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
4
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K