Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 24

Fréttablaðið - 05.07.2018, Side 24
reynst mér mjög vel í þessu ferli. Ég nýtti mér frítíma til að skoða borgina og auðvitað versla enda mörg af frægustu tískumerkjum í heiminum með verslanir þar.“ Alísa segir það skemmtilegasta við starfið að kynnast fullt af nýju fólki sem tengist þeim verkefnum sem hún tekur þátt í. „Ég ferðast töluvert og kynnist nýjum hlutum bæði í fatnaði og förðun sem ég hef mikinn áhuga á. Ég er að vinna fyrir marga og mismunandi aðila en ég hef samt verið töluvert í verkefnum sem tengjast íslenskum hönnuðum og íslenskum ljósmyndurum. Ann­ ars eru auglýsingar stór hluti af því sem ég tek þátt í fyrir bæði íslensk og erlend fyrirtæki. Mér finnst mjög ánægju­ legt þegar ég fæ skilaboð send á Snapchat frá vinum mínum sem hafa tekið eftir myndum af mér á strætóskýlum eða á auglýsinga­ skilti í Kringlunni,“ segir Alísa Helga. Hún er alin upp í Reykjavík og hefur lengst af búið í Grafarholti. Alísa fer í tíunda bekk í haust en henni hefur tekist vel að sameina námið og fyrirsætustörfin. „Stund­ um er álagið töluvert en þetta hefur gengið vel engu að síður,“ segir hún en Alísa hefur alltaf haft áhuga á tísku. „Ég hef eiginlega alltaf haft gaman af því að klæða mig í flott föt alveg frá því ég var lítil og síðan hefur áhuginn bara vaxið enn frekar með tímanum. Ég fylgist mjög vel með öllu sem tengist tísku og útliti enda lifi ég og hrærist í kringum þessa hluti. Það fer auðvitað eftir veðráttu hvernig ég klæði mig en mér finnst voða gott að vera í einhverju þægilegu eins og gallabuxum, hettupeysu og íþróttaskóm, svo er rauður litur í miklu uppáhaldi þessa dagana. Eftirlætishönnuður minn er Dona­ tella Versace,“ segir Alísa og segist jafnan stökkva á eitthvað flott þegar hún sér það í verslunum, hvort sem það er hér heima eða erlendis. „Það er vissulega miklu meira úrval í verslunum erlendis.“ Alísa klárar grunnskólann á næsta ári og á von á skemmtilegum vetri. „Ég fer örugglega í stuttar ferðir til Parísar í tengslum við fyrirsætusamninginn minn. Mér finnst þetta skemmtilegasta starf í heimi og það eykur sjálfstraustið. Ég myndi mæla með því fyrir allar stelpur að prófa að sækja um enda er alltaf verið að leita að nýjum andlitum.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Alísa Helga hefur verið að vinna við alls kyns verkefni á vegum Eskimo Models sem er umboðsskrifstofa hennar hér heima. „Ég hóf módelstörf eftir námskeið á vegum Eskimo en ég hafði farið á námskeið á þeirra vegum sem snerist um tísku, förðun og framkomu. Í framhaldinu sá ég auglýst eftir módelum á Instagram á vegum Eskimo og fékk ég verkefnið. Þá varð ekki aftur snúið,“ segir hún. „Ég hef tekið að mér fyrir sætu­ störf á Íslandi fyrir innlenda og erlenda aðila auk þess sem ég hef unnið við hinar og þessar tísku­ sýningar ef slík verkefni eru í boði. Oft á tíðum þarf ég að ferðast mikið innanlands vegna þeirra verkefna sem ég fæ. Þá fer ég oft á staði úti á landi sem ég myndi að öllu jöfnu ekki fara til eða sjá. Það finnst mér mjög skemmtilegt og líka að fá að kynnast fólki sem tengist vinnunni en það eru bæði Íslendingar og útlendingar frá hinum ýmsu löndum. Ég er nýkomin frá París. Erlend módelskrifstofa sem er í tengslum við Eskimo bauð mér í prufu þegar starfsmenn hennar voru staddir hér á landi síðastliðinn vetur með það í huga að hitta stúlkur sem þeir hefðu mögulega áhuga á að fá til starfa erlendis. Ég var í París í tæpa viku og fór í myndatökur á vegum skrifstofunnar. Þeir voru mjög ánægðir með myndirnar og buðu mér samning í framhaldinu. Ég er mjög þakklát fyrir þetta tækifæri en Eskimo á Íslandi hefur Alísa Helga er á uppleið í fyrirsætu- heiminum. MYND/KÁRI SVERRIS Flott mynd í sérkennilegu landslagi. Alísa Helga hefur upplifað margt skemmtilegt í fyrirsætustörfum. Alísa fékk verkefni með fólki frá Kólumbíu í september. Ekki hlýjasti tíminn til að vera í tólf metra silkikjól á Íslandi. Myndin er tekin rétt hjá Vík í Mýrdal. Alísa hefur haslað sér völl í heimi tískunnar þótt ung sé að árum. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 ÚTSALAN er hAfiN 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . J Ú L Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 0 5 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 2 -5 E 1 C 2 0 5 2 -5 C E 0 2 0 5 2 -5 B A 4 2 0 5 2 -5 A 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.