Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.08.2018, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 02.08.2018, Qupperneq 4
ENN BETRA VERÐ! « AÐEINS Í ÖRFÁA DAGA » WWW.GÁP.IS GÁMASALA! KROSS TRANS HERRA GÖTUHJÓL FRÁ 34.950 ENNÞÁ ÓSELD HJÓL! KOMA FULLBÚIN MEÐ BRETTUM BÖGGLABERA OG LJÓSUM FRAMAN OG AFTAN GÁP | FAXAFEN 7 | 108 REYKJAVÍK | 520-0200 DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Hér- aðsdóms Reykjaness í máli gegn stuðningsfulltrúa sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Dómurinn, sem var kveðinn upp síðastliðinn mánudag, var birtur á vef héraðsdómstólanna í gær. Ekki eru taldar færðar viðhlítandi sönnur á, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, sekt stuðningsfulltrúans sem var sýknaður af öllum ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum börnum og andlega fötluðum manni Þar segir að það sé álit dómsins að með framburði brotaþola og vitna hafi nokkur líkindi verið færð að sekt hins ákæra. Hins vegar verði ekki horft fram hjá því að orði standi gegn orði. Þau óbeinu sönnunar- gögn sem fram hafi komið nægi ekki til sakfellingar. Áréttað er að þrátt fyrir að fleiri en einn hafi borið ákærða sökum, sem kunni að renna stoðum undir fram- burð brotaþola, verði engu að síður að koma fram fullnaðarsönnun varðandi hvert brot. Stuðningsfulltrúinn var í ágúst í fyrra kærður fyrir kynferðisbrot gegn dreng. Brotin áttu að hafa átt sér stað á árunum 2004-2010 þegar drengurinn var sjö til þrettán ára. Lögregla hóf í kjölfarið rannsókn á málinu og bættust fleiri einstakling- ar við sem lögðu fram kæru á hendur stuðningsfulltrúanum. Hann var handtekinn í janúar síðastliðnum og dæmdur í gæsluvarðhald þar sem hann sat þar til sýknudómurinn féll. Stuðningsfulltrúinn hefur frá upphafi neitað sök í öllum ákæru- liðunum. Í dómnum eru rakin tengsl hans við brotaþolana fimm. Í öllum tilvikum var um að ræða tengsl við fjölskyldur viðkomandi brotaþola. Þannig kemur fram að allir brota- þolarnir hafi gist heima hjá hinum ákærða og í sumum tilvikum gist með honum á ferðalögum. Eiga meint brot að hafa átt sér stað við þær aðstæður. Dómnum þótti framburður brota- þola trúverðugur. Hjá sumum hafi þó gætt ákveðins misræmis sem gæti skrifast á það að langt var um liðið og að þeir hafi verið börn á umræddum tíma. Varðandi framburð tveggja brota- þola, sem eru systkini, segir að það dragi úr trúverðugleika þeirra að fjölskylda viðkomandi hafi vitað af málinu í nokkurn tíma. Málið hafi verið til umræðu innan fjölskyld- unnar í einhvern tíma og ekki hægt að útiloka að fjölskyldan hafi sam- ræmt eitthvað um framburð sinn. Þá er því haldið til haga að við leit á heimili ákærða og í tölvubúnaði hans hafi ekkert fundist sem væri saknæmt eða gæti rennt stoðum undir sekt. sighvatur@frettabladid.is Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi í máli stuðningsfulltrúa Ekki var talin nægileg sönnun um um sekt stuðningsfulltrúa sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum börnum og andlega fötluðum manni. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness. Nokkur líkindi hafi verið fyrir sekt en orð standi gegn orði. Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar. Við þingfestingu málsins gegn stuðningsfulltrúanum í Héraðsdómi Reykjaness í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FERÐAÞJÓNUSTA Gistinætur ferða- manna í júní voru 1.188.600 og hafði þeim fækkað örlítið miðað við sama mánuð í fyrra. Skiptingin var þannig að gistinæt- ur á hótelum og gistihúsum voru rúmlega 589 þúsund, á farfugla- heimilum, í svefnpokaplássi og á tjaldstæðum voru þær rúmlega 408 þúsund og rúmlega 190 þúsund í gegnum vefsíður á borð við Airbnb. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Þar segir að þessu til viðbótar hafi gistinætur erlendra ferðamanna utan hefðbundinna gististaða verið áætlaðar rúmlega 55 þúsund. Af erlendum ferðamönnunum voru bandarískir með flestar gisti- nætur, ríflega 369 þúsund. – sar Gistináttafjöldi óbreyttur í júní TÆKNI Kínverski raftækjarisinn Huawei er orðinn næststærsti snjallsímaframleiðandi heims og hefur þar með tekið fram úr Apple. Þetta kemur fram í gögnum grein- ingarfyrirtækja sem ýmsir erlendir miðlar greina frá. Vöxt Huawei má að mestu rekja til vinnu fyrirtækisins á evrópskum snjallsímamarkaði og aukins for- skots heima í Kína. Samkvæmt bæði IHS og Strategy Analytics hefur Huawei nú rúm- lega 15 prósenta markaðshlutdeild, Apple rúmlega tólf prósent og Sam- sung nærri tuttugu prósent. – þea Huawei siglir fram úr Apple Áréttað er að þrátt fyrir að fleiri en einn einstakling- ur hafi borið ákærða sökum, sem kunni að renna stoðum undir framburð brotaþola, verði engu að síður að koma fram fullnaðarsönnun varðandi hvert brot. NEYTENDAMÁl Rúmlega átta pró- senta munur er á verði raforku hjá ódýrustu og dýrustu raforkusöl- unum. Dýrasta raforkusalan, Orka náttúrunnar, er jafnframt stærsta fyrirtækið á markaðinum. Á vefsíðunni Aurbjorg.is má nú finna verðsamanburð á öllum raf- orkusölum án virðisaukaskatts. Ódýrasta rafmagnið býður Orka heimilanna, sem hóf starfsemi í ársbyrjun 2018. Þar er hver kíló- vattstund verðlögð á 5,89 krónur. Orkubú Vestfjarða fylgir fast á hæl- ana með verðið 5,90 krónur. Dýrust er Orka náttúrunnar, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, sem selur hverja kílóvattstund 6,43 krónur, síðan HS Orka með verðið 6,35 krónur. Neytendur geta keypt rafmagn af hverjum sem er óháð búsetu á landinu og sama gildir um húsfélög. Þess ber þó að geta að raf- magnskostnaður heimila skiptist í tvennt. Annars vegar kostnaður vegna raforkusölu sem er á sam- keppnismarkaði og hins vegar vegna raforkudreifingar þar sem fyrirtækin hafa einokun á afmörkuðu land- svæði. Þannig geta neytendur aðeins reynt að lækka hluta af heildarkostn- aðinum. „Við endurskoðum reglulega okkar verð en það er oft þannig að hinir bíða og setja verðin aðeins undir. Við verðleggjum okkur á eigin Orka náttúrunnar stærsta raforkusalan en er þó með hæsta verðið forsendum og þetta var niðurstaðan um síðustu áramót miðað við arð- semiskröfur, kostnað og annað slíkt,“ segir Bjarni Már Júlíusson, fram- kvæmdastjóri Orku náttúrunnar. Önnur skýring, að sögn Bjarna, er að Orka náttúrunnar ráðstafar arði fyrirtækisins í ýmis þróunarverkefni sem lúta að orkuskiptum og að draga úr losun koltvísýrings. Hann segir að neytendur þurfi einnig að hafa í huga hvar peningarnir endi. – tfh Þetta var niður- staðan um síðustu áramót miðað við arðsemis- kröfur, kostnað og annað slíkt. Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri ON Á Ingólfstorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 . Á G Ú S T 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 4 -1 E 6 4 2 0 8 4 -1 D 2 8 2 0 8 4 -1 B E C 2 0 8 4 -1 A B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.