Fréttablaðið - 02.08.2018, Side 8

Fréttablaðið - 02.08.2018, Side 8
Ford Focus er fimur bíll enda þekktur fyrir frábæra aksturs- eiginleika og framúrskarandi gæði. Hann er ríkulega búinn, með fimm stjörnu öryggi, Bluetooth samskiptakerfi, leiðsögukerfi með Íslands- korti, nálægðarskynjurum, 8” snerti/litaskjá, My Key, upphitanlegri framrúðu o.fl. Aukabúnaður innifalinn: Dökkar rúður í farþegarými og málmlitur. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 FORD FOCUS FIMASTUR! ford.is Ford er frábær! Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Focus FOCUS TREND EDITION 3.105.000 KR. TILBOÐSVERÐ: 2.795.000 KR. Ford_Focus_5x15_20180604.indd 1 04/06/2018 14:22 viðskipti Stjórn Iceland Seafood International hyggst kanna mögu- leikann á því að skrá sjávarútvegs- félagið á aðalmarkað Kauphallar- innar í kjölfar kaupa þess á Solo Seafood, eiganda spænsku félag- anna Icelandic Iberica og Ecomsa og argentínska félagsins Achernar. Hlutabréf félagsins hafa verið skráð á First North-markaðinn, sem er einkum hugsaður fyrir lítil og meðalstór vaxtarfyrirtæki, frá því í maí árið 2016. Aðeins eitt sjávar- útvegsfélag, HB Grandi, er skráð á aðalmarkaðinum. Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International, segir alveg ljóst að með kaup- unum á Solo Seafood sé félag- ið að stækka verulega við sig. „Í raun má segja að félagið sé komið í slíka stærð að það eigi mögu- Íhuga að skrá Iceland Seafood á aðalmarkað Kauphallarinnar Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood Inter­ national. viðskipti Til þess að afkoma Ice- landair Group í ár verði í samræmi við spá stjórnenda félagsins þarf félagið að vinna mikinn varnarsigur á þriðja fjórðungi ársins. Markaður- inn virðist hins vegar ekki hafa trú á því að svo verði. Þetta segir Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, um uppgjör Icelandair Group fyrir annan fjórðung ársins, sem birt var í fyrradag, en afkoma á fjórðungnum reyndist umtalsvert lakari en grein- endur höfðu gert ráð fyrir. „Félagið þarf að breytast,“ sagði Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, á fundi með fjár- festum í gærmorgun. „Það er ljóst að árið er snúið hjá okkur en við erum í endalausum aðgerðum til þess að reyna að breyta þessari niðurstöðu,“ nefndi forstjórinn. Fjárfestar brugðust harkalega við uppgjöri ferðaþjónustufélagsins en til marks um það féllu hlutabréf í félaginu um 10 prósent í verði og ríf- lega 4,2 milljarðar af markaðsvirði þess þurrkuðust út í Kauphöllinni í gær. Gengi hlutabréfanna nam 7,85 krónum á hlut við lokun markaða síðdegis í gær og hefur fallið um hátt í 80 prósent frá því það var hvað hæst í apríl árið 2016. Hefur virði félagsins lækkað á sama tíma úr 195 milljörðum króna í 38 milljarða. Icelandair Group tapaði 25,7 milljónum dala, jafnvirði 2,7 millj- arða króna, á öðrum fjórðungi ársins borið saman við 15,5 millj- óna dala hagnað á sama tímabili í fyrra. EBITDA félagsins – afkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – nam 14,7 milljónum dala á fjórðungnum og dróst saman um 64 prósent frá fyrra ári. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að þrýstingur á fargjöld, lakari sætanýting og einskiptiskostnaður vegna truflana í flugáætlun skýrðu verri afkomu á milli ára. Sérfræðingur á fjármálamarkaði sem Fréttablaðið ræddi við segir að þrátt fyrir að fjárfestar hafi búist við slæmu uppgjöri – í ljósi þess að félagið lækkaði afkomuspá sína fyrir árið um 30 prósent í síðasta mánuði – þá hafi rekstrarniðurstaða annars fjórðungs komið markaðinum í opna skjöldu. „Uppgjör Icelandair olli von- brigðum,“ segir Stefán Broddi, „og afkoman reyndist enn lakari en væntingar markaðarins stóðu til.“ Það komi kannski spánskt fyrir sjónir þar sem félagið hafi nýverið fært afkomuspá sína niður. „Afkoman á öðrum ársfjórðungi, ytri aðstæður og skilaboð stjórn- enda samhliða uppgjörinu leiða til þess að miklar efasemdir virðast uppi um að félagið nái yfirhöfuð að skila þeirri afkomu yfir árið í heild,“ bætir Stefán Broddi við. Segja allt þurfa að ganga upp Hagfræðideild Landsbankans segir í skeyti til viðskiptavina sinna að svo virðist sem „allt þurfi að ganga upp“ til þess að afkoma félagsins í ár verði í efri mörkum afkomuspár stjórnenda þess, en stjórnendurnir gera ráð fyrir að EBITDA ársins verði á bilinu 120 til 140 milljónir dala. Erfitt sé að sjá að því mark- miði verði náð. Telja greinendurnir líklegt að stjórnendur Icelandair Group geri ráð fyrir „góðum hækk- unum“ á flugfargjöldum á seinni hluta ársins. Björgólfur nefndi á fundinum að verð á þotueldsneyti, sem er næststærsti kostnaðarliður félags- ins, hefði hækkað um ríflega 60 prósent á síðustu tveimur árum. Á sama tíma hefðu fargjöld farið hratt lækkandi á mörgum mörkuðum félagsins, sér í lagi á markaðinum fyrir flug yfir Norður-Atlantshafið. Núverandi aðstæður gætu vart hald- ist óbreyttar. „Við reiknum með því að til fram- tíðar muni meðalfargjöldin fara upp á við,“ sagði hann. „Það er mikil umræða um það á meðal stórra félaga sem starfa á Atlantshafinu að meðalfargjöld séu of lág.“ Að sama skapi sagðist hann telja að til lengri tíma myndi gengi krón- unnar veikjast frá því sem nú er sem hefði jákvæð áhrif á afkomu félags- ins. kristinningi@frettabladid.is Efast um að spá Icelandair gangi eftir Forstöðumaður greiningardeildar Arion banka segir Icelandair Group þurfa að vinna varnarsigur á þriðja fjórðungi til að afkomuspá félagsins gangi eftir. Afkoma annars fjórðungs var talsvert lakari en greinendur höfðu spáð. „Félagið þarf að breytast,“ segir forstjórinn. Icelandair Group tapaði 2,7 milljörðum króna á öðrum fjórðungi ársins en fé­ lagið hafði ekki skilað tapi á fjórðungnum síðan 2010. FréttAblAðIð/PjEtur Það er ljóst að árið er snúið hjá okkur en við erum í endalausum aðgerðum til þess að reyna að breyta þessari niðurstöðu. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group 10% var lækkunin á gengi hluta- bréfa Icelandair Group í Kauphöllinni í gær. lega heima á aðalmarkaðinum. Þetta er í skoðun hjá okkur og engin ákvörðun hefur verið tekin. Það er svo verkefni stjórnarinnar og að lokum hluthafa að fjalla um og taka ákvörðun um slíkt,“ nefnir hann. Forsvarsmenn Iceland Seafood International og Solo Seafood skrifuðu á þriðjudag undir samning um kaup fyrrnefnda félagsins á því síðarnefnda en kaupverðið, sem er greitt með útgáfu nýrra hlutabréfa, nemur um 7,8 milljörðum króna. Eigendur Solo Seafood – Sjávar- sýn, fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar, Hjörleifur Ásgeirs- son, framkvæmdastjóri Icelandic Iberica, FISK-Seafood, Jakob Valgeir og Nesfiskur – munu í kjölfar við- skiptanna eignast um 44 prósenta hlut í Iceland Seafood Inter national. – kij 2 . á g ú s t 2 0 1 8 F i M M t U D A g U R8 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð 0 2 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 4 -2 D 3 4 2 0 8 4 -2 B F 8 2 0 8 4 -2 A B C 2 0 8 4 -2 9 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.