Fréttablaðið - 02.08.2018, Side 10

Fréttablaðið - 02.08.2018, Side 10
Tækni Google vinnur nú að nýrri leitarvél fyrir kínverskan markað. Samnefnd leitarvél fyrirtækisins er á svarta listanum þar í landi, er sum sé á bak við Netkínamúrinn svokallaða líkt og fjölmargar aðrar síður sem sýna eða veita aðgang að efni sem kínverska ríkisstjórnin telur óæskilegt. The Intercept greindi frá málinu í gær en miðillinn hefur í fórum sínum lekin skjöl frá stórfyrirtæk­ inu um verkefnin. Innan Google er verkefnið kallað Drekafluga og hefur verið unnið að því síðan síðasta vor. Aukinn þungi var svo settur í verk­ efnið eftir að framkvæmdastjórinn Sundar Pichai fundaði með kínversk­ um embættismönnum í desember. Ekki á að verða hægt  að finna  neitt sem kínverska ríkis­ stjórnin vill ekki að almenningur þar í landi fletti upp. Yfirvöld hafa til að mynda bannað vefsíður sem innihalda upplýsingar um andstæð­ inga stjórnvalda, tjáningarfrelsi og atburðina á Torgi hins himneska friðar 1989. Google mun því setja síu í leitarvél sína svo niðurstöður sem nú þegar eru á bak við Net­ kínamúrinn finnist ekki. Þá mun ekki heldur verða hægt að fletta upp ákveðnum bannorðum. Verði það reynt, samkvæmt skjöl­ unum sem Intercept hefur, munu engar niðurstöður birtast. Google vildi ekki svara spurn­ ingum Intercept um málið en heimildarmaður, sem vildi ekki láta nafns síns getið þar sem þau sem starfa að verkefninu mega ekki ræða við fjölmiðla, sagði samstarfs­ menn sína hafa áhyggjur af því að verkefnið stangist á við almenna siðferðiskennd. Starfsmaðurinn sagðist sjálfur andsnúinn því að stórfyrirtæki ynnu með  yfirvöldum að  kúgun sem þessari. Ritskoðun Kínverja og aðstoð Google gæti verið slæmt for­ dæmi fyrir önnur ríki. – þea Google hannar leitarvél með ritskoðun fyrir Kínverja Grikkland Fjölskylda tveggja fórnarlamba skógareldanna í Mati og nærliggjandi bæjum á Attíku­ skaga Grikklands, sem kostuðu 92 lífið í síðustu viku, hefur lagt fram kæru á hendur yfirvöldum fylkisins, almannavörnum, slökkviliði og lög­ reglu. Reuters greindi frá í gær en yfirvöld eru meðal annars sökuð um íkveikju vegna vanrækslu, morð og manndráp af gáleysi. „Ég tel að þau sem áttu að vernda fólk, áttu að slökkva eldana og í raun koma í veg fyrir að þeir kvikn­ uðu, verði sakfelld,“ sagði Antonis Foussas, lögmaður fjölskyldunnar, við Reuters. Sagðist hann jafnframt rannsaka hvernig eldarnir kviknuðu og hvort viðbrögð yfirvalda hafi verið fullnægjandi. Fórnarlömbin, hjón á áttræðis­ aldri, voru bæði á flótta undan eld­ unum þegar þau fórust. Lík þeirra fundust um 400 metra frá heimilum þeirra. Þar kom enn fremur fram að eng­ inn embættis­ eða yfirmaður frá fylkinu, sveitarfélaginu, lögreglu, slökkviliði eða almannavörnum hafi verið á svæðinu, að enginn hafi látið íbúa vita af hættunni og að ekki hafi verið gefin fyrirmæli um að rýma skyldi svæðið. Gríski prófessorinn Vassilis Diga­ lakis greindi frá því í gær að lögregla hefði fyrir mistök beint ökumönn­ um í ógöngur er hún stýrði umferð í Mati. Í stað þess að beina bílum til baka út úr bænum á stofnbraut bæjarins voru bílstjórar sendir inn á þau svæði sem eldurinn stefndi á. Að sögn Digalakis var ekki um að ræða nokkurn ásetning um að stefna ökumönnum í hættu heldur hafi verið um algjört samskiptaleysi lögreglu, slökkviliðs og yfirvalda að ræða. Digalakis kenndi Almanna­ varnastofnun Grikklands um sam­ skiptaleysið og sagði hana hafa brugðist skyldu sinni algjörlega. Tugir dóu er þeir reyndu að flýja eftir að hafa lent í umferðarteppu í Mati. Að minnsta kosti 305 bílar eyðilögðust í eldsvoðanum. Svo heitt varð að álfelgur og rúður bílanna einfaldlega bráðnuðu. Þá hefur sömuleiðis verið greint frá því að engin opinber neyðartil­ kynning hafi verið send út. Því hafi íbúar varla fengið neinn tíma til að bregðast við. Þá hafi skipulag bæjar­ ins, þröngar götur, botnlangar og skortur á opnum svæðum, verið til þess fallið að hindra að fólk kæmist undan. Kallað hefur verið eftir afsögn Ya n n i s Ka p a k i s , y f i r m a n n s Almannavarnastofnunar. Kapakis sagði í viðtali í sjónvarpi, fjórum dögum fyrir hamfarirnar, að jafnt á sjó sem landi væri viðbúnaðarstigið hátt. Ekki hefur verið orðið við því ákalli. Reyndar hefur enginn emb­ ættismaður sagt af sér vegna máls­ ins, að því er BBC greinir frá. Greek Reporter greindi frá því að ríkisstjórnin ætli að rífa 3.185 ólöglegar byggingar við strendur Attíkuskaga. Á fimmtudag sagði Panos Kammenos varnarmálaráð­ herra að íbúar sjálfir bæru ábyrgð á eldsvoðanum með því að hafa reist byggingarnar í leyfisleysi og þann­ ig lokað flóttaleiðum. Yfirvöld hafa áður haldið því fram að svo virðist sem um íkveikju hafi verið að ræða. Dimitris Tzanakopoulos, upp­ lýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, sagði á þriðjudag að ríkisstjórnin ætlaði að hefja niðurrif hið fyrsta og að sérfræðingar væru sammála um að byggingarnar hefðu gert illt verra í hamförunum. Grískir blaða­ menn minntu svo á að fjölmargar ríkisstjórnir hefðu lofað að rífa byggingarnar en við það hefði ekki verið staðið vegna ótta við að baka sér óvinsældir. thorgnyr@frettabladid.is Í mál við yfirvöld vegna eldanna Yfirvöld, slökkvilið, almannavarnir og lögregla sökuð um alvarlega vanrækslu og manndráp af gáleysi. Skógar­ eldarnir á Attíkuskaga kostuðu að minnsta kosti 92 lífið. Lögregla beindi ökumönnum í veg fyrir eldinn. Aþenubúar mótmæltu viðbragðsleysi yfirvalda í hljóði á mánudag. Að minnsta kosti 92 fórust í skógareldunum á Attíkuskaga í síðustu viku. Nordicphotos/AFp Loukoumakis bjargað Talið er að fjölmörg dýr, jafnvel hundruð, hafi drepist í skógareld- unum. Reuters greindi frá því í gær að Artemis Kyriakopoulou, sjálf- boðaliða hjá dýrahjálparsamtökum á svæðinu, hafi þó tekist að bjarga einu, hundi. „Ég sá eitthvað þarna sem leit út eins og ofn. Mér datt í hug að ef eitthvað væri á lífi þarna hlyti það að vera inni í honum,“ sagði Kyriakopoulou og bætti því við að hundinum hafi verið hjúkrað og hann þrifinn. Trúlega væri um að ræða flækingshund, fjögurra ára gamlan, og hann hefur fengið nafnið Loukoumakis. Hundurinn er nú í umsjón konu að nafni Diana Topali þar til varan- legt heimili finnst. „Meira að segja augnhárin á honum eru brennd. Það er ótrúlegt að hann hafi lifað af. Hann leit bara út eins og sviðið, úfið teppi,“ sagði Topali við Reuters. Bandaríkin Robert Lasnik, alríkis­ dómari í bandarísku borginni Seattle, skipaði vefsíðunni DEFCAD í fyrrinótt að taka þrívíddarprent­ unarskrár fyrir skotvopn úr birtingu. Úrskurðurinn var nýjasta vending í baráttunni gegn frjálsri þrívíddar­ prentun skotvopna en Defense Distributed, fyrirtækið á bak við DEFCAD, komst í síðasta mánuði að samkomulagi við yfirvöld, eftir fjögurra ára málaferli, um að heimila birtingu skránna þann fyrsta ágúst. Samkomulagið var umdeilt og átta ríki Bandaríkjanna greindu frá því í sameiginlegri yfirlýsingu á mánudag að þau myndu gera sitt besta til að fá samkomulaginu hnekkt fyrir dóm­ stólum. Tuttugu önnur ríki lýstu svo stuðningi við markmiðið. Þá hafði DEFCAD nú þegar birt skrárnar, gerði það fjórum dögum áður en heimilt var, og þeim verið hlaðið niður mörg þúsund sinnum. Um prentunarskrár fyrir tíu mis­ munandi skotvopn var að ræða og sagði miðillinn Ars Technica frá því að þar á bæ hefðu menn getað náð í skrár til að prenta virka eftirlíkingu af AR­15 hríðskotariffli.   Skrárnar eru enn í dreifingu og gat Fréttablaðið auðveldlega fundið þær á niðurhalssíðum. Í úrskurði sínum sagði Lasnik að komist þessi órekjanlegu þrívíddar­ prentuðu skotvopn og prentunar­ skrárnar í dreifingu muni það hafa neikvæðar afleiðingar. „Það eru þrí­ víddarprentarar í háskólum og víða á meðal almennings. Það má leiða líkur að því að þrívíddarprentuð skotvopn muni valda óafturkræfum skaða.“ – þea Prenta ekki byssur strax Verkefnið er umdeilt innan veggja fyrirtækisins. Nordicphotos/Getty Ég tel að þau sem áttu að vernda fólk […] verði sakfelld. Antonis Foussas lögmaður SimBaBve Ofbeldi braust út á milli stjórnarandstöðusinna og lögreglu í Harare, höfuðborg Simbabve, í gær. Stuðningsmenn stjórnarandstöðu­ flokksins Hreyfingarinnar fyrir lýð­ ræðisumbætur (MDC) voru að mót­ mæla töfum á tilkynningu úrslita í forsetakosningum mánudagsins þegar til átakanna kom. Eftirlitsfólk á vegum ESB hefur lýst yfir áhyggjum sínum af biðinni og MDC hefur ítrekað haldið því fram að niðurstöðunum hafi verið hagrætt. Nelson Chamisa, frambjóðandi MDC, þykir næstsigurstrangleg­ astur í kosningunum á eftir sitjandi forseta, Emmerson Mnangagwa. Flokkur hins síðarnefnda, Afríska þjóðarbandalag Simbabve (ZANU­ PF), virtist í gær hafa unnið stóran meirihluta á þinginu miðað við þær tölur sem höfðu verið gerðar opin­ berar. – þea Átök vegna kosninganna Ýmsir hræðast það að leyfa prentun skotvopna. Nordicphotos/AFp Fréttablaðið fann auð- veldlega þrívíddarprent- unarskrárnar sem teknar voru úr sölu. 2 . á G ú S T 2 0 1 8 F i m m T U d a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð 0 2 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 4 -1 9 7 4 2 0 8 4 -1 8 3 8 2 0 8 4 -1 6 F C 2 0 8 4 -1 5 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.