Fréttablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 18
Þór - Njarðvík 3-0 Haukar - ÍA 1-3 Þróttur R. - ÍR 6-1 Selfoss - HK 1-2 Víkingur Ó. - Magni 4-1 Inkasso-deild karla Sindri - ÍR 2-6 Fylkir - Hamrarnir 7-0 Keflavík - Þróttur R. 2-1 Aftureld./Fram - Haukar 1-3 Inkasso-deild kvenna FÓTBOLTI Það kemur í ljós í kvöld hvort Ísland mun eiga fulltrúa í þriðju umferð í forkeppni Evrópu- deildar karla í knattspyrnu. FH, Valur og Stjarnan leika þá seinni leiki sína í einvígjum sínum í ann- arri umferðinni. FH og Valur eru í heimahögum sínum á meðan Stjarnan fer til Kaupmannahafnar. FH fær ísraelska liðið Hapoel Haifa í heimsókn í Kaplakrika, en fyrri leiknum í miklum hita og raka í Haifa lyktaði með 1-1-jafn tefli. Miðvörðurinn Eddi Gomes skoraði mikilvægt útivallarmark Hafnfirð- inga í Ísrael. Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, telur að liðið eigi ágætis möguleika á að komast áfram, en liðið verði í hlutverki Davíðs gegn Golíat í leik liðanna á morgun. „Við munum líklega liggja aftar- lega og treysta á skyndisóknir í þessum leik líkt og við gerðum í útileiknum. Við horfðum á leikinn aftur og sáum þá höggstað á þeim og að við hefðum getað verið rólegri á boltann þegar við unnum hann. Þeir eru ekki í góðu leikformi og þeir sækja á mörgum leikmönnum þegar þeir herja á andstæðinga sína. Það er því nóg pláss til að sækja í þegar þeir tapa boltanum,“ sagði Davíð Þór í samtali við Fréttablaðið. „Það er spennandi verkefni í boði í þriðju umferðinni hvort sem það verður Sarajevó eða Atalanta. Það er alltaf meiri fiðringur fyrir Evrópu- leiki en aðra leiki og við hlökkum mikið til þessa leiks. Við erum orðnir reynslumiklir, margir í leik- mannahópnum, á þessum vettvangi og við bættum við okkur leikmönn- um fyrir þetta keppnistímabil sem eiga þó nokkra Evrópuleiki undir beltinu. Það ætti að koma okkur til góða í þessu erfiða verkefni,“ sagði Davíð Þór enn fremur. Valur mætir svo Santa Coloma frá Andorra á Origo-vellinum að Hlíðarenda, en þar þurfa Valsmenn að snúa taflinu sér í hag eftir svekkj- andi 1-0-tap ytra. Ólafur Jóhannesson getur ekki stýrt liði sínu í þessum leik þar sem hann afplánar tveggja leikja bann fyrir að ýja að því að maðkur væri í mysunni hjá UEFA þegar liðið féll úr leik fyrir Rosenborg í forkeppni Meistaradeildarinnar. Stjarnan fer með veika von til Danmerkur þar sem liðið mætir FB Köbenhavn, en liðið laut í lægra haldi í fyrri leiknum á Sam- sung-vellinum. Þar reið danski landsliðsmaðurinn Viktor Fischer baggamuninn, en hann lagði upp fyrra mark danska liðsins og skor- aði það seinna eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik. Lokatölur urðu 2-0 og vonandi að Stjarnan nái að velgja danska liðinu undir uggum. hjorvaro@frettabladid.is Teljum okkur hafa fundið höggstaði í leiknum í Ísrael FH náði í fín úrslit þegar liðið mætti ísraelska liðinu Hapoel Haifa í fyrri leik liðanna í annarri umferð í for- keppni Evrópudeildarinnar í knattpyrnu karla ytra í síðustu viku. Liðin leiða saman hesta sína að nýju á Kaplakrikavelli í kvöld. Davíð Þór Viðarsson telur að leikmenn FH hafi séð veika bletti hjá Ísraelunum. KÖRFUBOLTI Tryggvi Snær Hlina- son, landsliðsmaður í körfubolta, hefur verið lánaður frá Valencia til Monbus Obradoiro sem staðsett er í Compostela á Spáni. Liðið leikur í efstu deild og hafnaði í 12. sæti hennar á síðustu leiktíð. Hann mun að öllum líkindum fá meiri spiltíma þar en hjá Valencia síðasta vetur, en mínúturnar inni á vellinum voru af skornum skammti í frumraun hans á spænskri grundu. Valencia er afar vel mannað hvað miðherja varðar og því beggja hagur að hann finni sér nýjan vettvang næsta vetur. Tryggvi gekk til liðs við Valencia frá Þór Akureyri síðasta haust og var á sínu fyrsta ári sem atvinnu- maður. Hann tók þátt í nýliðavali NBA fyrr í sumar, en hlaut ekki náð fyrir augum forráðamanna liðanna og var svo á mála hjá Toronto Rapt- ors í Sumardeild NBA í júlí. – hó Tryggvi Snær kominn með nýtt lið Tryggvi Snær Hlinason í leik með Valencia. NORDICPHOTOS/GETTY KR-konur fyrstar til að vinna Íslandsmeistarana Ein óvæntustu úrslit tímabilsins Katrín Ómarsdóttir tæklar Söndru Stephany Mayor Gutierrez í leik KR og Þórs/KA á Alvogen-vellinum í gær. KR bar sigur úr býtum, 2-1, og varð þar með fyrsta liðið til að vinna Íslandsmeistara Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna í sumar. KR-konur eru á fínum skriði, hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og eru nú þremur stigum frá fallsæti. Norðankonur eru áfram í 2. sætinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN Eddi Gomes skoraði fyrir FH í fyrri leiknum gegn Hapoel Haifa. Það gæti reynst dýrmætt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI KR - Þór/KA 2-1 1-0 Tijana Krstic (16.), 2-0 Mia Celestina Annete Gunter (70.), 2-1 Sandra Stephany Mayor Gutierrez (71.). Nýjast Pepsi-deild kvenna Hefja keppni í Glasgow í dag FIMLEIKAR Kvennalið Íslands í áhaldafimleikum hefur keppni á fyrsta Meistaramóti Evrópu í dag. Um er að ræða nýtt mót þar sem keppt er í hinum ýmsu íþrótta- greinum. Mótið er haldið í Glasgow í Skotlandi nema hvað keppni í frjálsum íþróttum fer fram í Berlín í Þýskalandi. Keppni í kvennaflokki í áhalda- fimleikum hefst klukkan 12.15 að íslenskum tíma í dag. Á morgun hefur íslenska stúlknaliðið á keppni. Ísland á einnig lið í drengjaflokki. Næstu daga munu svo fleiri íslenskir íþróttamenn hefja leik á Meistara- mótinu. – iþs 2 . Á G Ú S T 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 2 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 4 -3 C 0 4 2 0 8 4 -3 A C 8 2 0 8 4 -3 9 8 C 2 0 8 4 -3 8 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.