Fréttablaðið - 02.08.2018, Page 34
V ið erum svona altmú-ligt-band. Bæði Örn og Valeria bregða sér í allra kvikinda líki, hann spilar á hvað sem er og hún
er fiðluleikari en líka lagasmiður,
söngkona og gítarleikari. Ég er hálf
vandræðaleg í miðjunni og syng
bara,“ segir Ösp Eldjárn glaðlega
þegar forvitnast er um það sem
fram undan er í Hannesarholti í
kvöld. Þar kemur Ösp fram ásamt
Erni, bróður sínum og Valeriu Pozzo.
Systkinin eru að norðan en Pozzo frá
Ítalíu.
„Við erum öll að flytja eigin laga-
smíðar í þessum túr. Örn brestur í
söng og Valeria líka. Við röddum og
spilum undir hvert hjá öðru, þannig
að úr verður samhljómur,“ útlistar
Ösp. En hvaða túr er hún að tala
um? „Við vorum að koma að austan
og norðan. Byrjuðum á Seyðisfirði,
í tónleikaröðinni Bláu kirkjunni,
það var mjög gaman. Svo fórum við
á Havarí á Berufjarðarströnd, þar var
líka ógurlega indælt. Enduðum svo
túrinn á Kópaskeri, þar er menn-
ingar félag sem kallar sig Flygilvini
og fékk okkur til að koma. Það er
mjög flottur flygill í Skjálftasafninu,
í gamla grunnskólanum á Kópaskeri.
Við héldum tónleika þar og það var
fallegt og gaman að koma þangað.“
Hver skyldi svo hafa spilað á
flygilinn fína? „Örn brá sér á flygil-
inn, það er fátt sem hann ekki getur.
Svo erum við með ljósmyndara með
okkur, sem heitir Stefano og er frá
Feneyjum, hann er konsertmeistari
og þegar hann sér flygil, sest hann
niður og lætur okkur djamma eitt-
hvað með sér.“
Ösp segir undirtektir hvar-
vetna hafa verið góðar. „Svo er
lokahnykkurinn eftir, í Hannesar-
holti í kvöld. Ég hef ekki verið með
tónleika þar áður en fylgdi tveimur
enskum vinkonum þangað fyrir
hálfum mánuði, þær sigldu frá Skot-
landi yfir til Orkneyja, þaðan til
Færeyja og svo til Íslands og héldu
tónleika í Hannesarholti. Mér leist
vel á salinn. Það er líka fallegt sam-
starf milli Hannesarholts og Kítón
(Konur í tónlist) og gaman að vera
með í þeirri tónleikaröð, sérstaklega
af því meirihluti bandsins er konur.“
Efninu sem hópurinn flytur lýsir
Ösp svo: „Það er þjóðlagaskotið –
smá indí – með djasstvisti. Mín tón-
list þykir draumkennd. Svo leggjum
við áherslu á þríraddaðan söng.
Þetta er alþýðustemning.“ Ösp hélt
til Lundúna í tónlistarnám árið 2011
og kynntist þar Valeriu Pozzo. Þær
hafa síðan starfað mikið saman,
Valeria lék til dæmis á fiðlu og víólu
á plötu Aspar, Tales from a Poplar
Tree, sem var tilnefnd til íslensku
tónlistarverðlaunanna 2018 í flokki
þjóðlagatónlistar. Spurð hvort
Valeria Pozzo búi á Íslandi svarar
Ösp: „Nei, Valeria býr í London,
kom bara með okkur í þessa ferð
og það var gaman. Ég vona að hún
komi á hverju ári, það væri partur af
sumrinu.“
Svo leggjum við áherslu á þríraddaðan söng
Örn Eldjárn, Valeria Pozza og Ösp Eldjárn í sælunni á Seyðisfirði í síðasta mánuði þar sem þau héldu tónleika í Bláu kirkjunni. MYND STEFANO PANDOAN
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Ösp Eldjárn,
Valeria Pozzo
og Örn Eldjárn
halda tónleika
í Hannesarholti
við Grundarstíg í
kvöld og flytja þar
eigið efni, gamalt
og nýtt. Ösp og Örn
eru að norðan en
Pozzo frá Ítalíu.
VIÐ ERUM ÖLL AÐ
FLYTJA EIGIN LAGA-
SMÍÐAR Í ÞESSUM TÚR. ÖRN
BRESTUR Í SÖNG OG VALERIA
LÍKA. VIÐ RÖDDUM OG SPILUM
UNDIR HVERT HJÁ ÖÐRU,
ÞANNIG AÐ ÚR VERÐUR SAM-
HLJÓMUR.
Marteinn Sindri Jónsson leik-
ur alþýðutónlist og popptónlist á
píanó og gítar í kirkjunni á Hólum í
Hjaltadal á sunnudaginn, og syngur
með.
„Þetta er sjöunda árið sem tón-
leikar eru haldnir hér í Hóladóm-
kirkju um verslunarmannahelgi.
Fram að þessu hafa flytjendur verið
handvaldir en nú var auglýst og ég
sótti um. Mér fannst spennandi að
fá að spila hér. Var einmitt að æfa í
morgun. Þetta er sérstök kirkja og
það er virkilega gaman að koma
hingað,“ segir Marteinn Sindri, sem
staddur er á Hólum með unnustu og
tveimur börnum.
„Ég verð með sitt lítið af hverju,
bæði eftir mig og aðra,“ segir Mar-
teinn Sindri um lagavalið á tónleik-
unum og kveðst yrkja jöfnum hönd-
um á íslensku og ensku. „Ég hef líka
samið lög við ljóð íslenskra skálda.
Það síðasta er við ljóðið Fagurt er í
fjörðum eftir Látra-Björgu, ég sæki
innblástur í ljóðmál 19. aldar skáld-
anna, meðal annars Jónas. Það er
ein stoðin í tónlistinni. Svo fer ég
mjög víða því ég er líka með popp-
tónlist síðustu fjörutíu, fimmtíu ára
undir, Leonard Cohen, Nick Cave og
fleira.“
Sindri er úr Reykjavík en hefur
búið í Hafnarfirði undanfarin ár.
Hann kveðst hafa farið að læra
heimspeki eftir að hafa verið í
ströngu píanónámi, bæði klassík
og djassi. „Ég lauk meistaraprófi
í hitteðfyrra og hef starfað mest
við fræðastörf undanfarin ár og
dagskrárgerð en alltaf verið í músík
með. Þegar ég var í hljómsveitum
samdi ég stundum fyrir söngvara
svo þegar ég fór út í mastersnám,
fór ég að syngja sjálfur.“
Tónleikarnir byrja klukkan
16 í framhaldi af guðsþjónustu
sem hefst klukkan 14, að sögn Mar-
teins Sindra. „Ég vona að fólk staldri
við eftir messuna,“ segir hann og
tekur fram að ókeypis sé inn.
gun@frettabladid.is
Sækir innblástur í ljóðmál 19. aldar skáldanna Látra-Bjargar og Jónasar
Marteinn Sindri nýtur þess að anda að sér helgi og fegurð Hólastaðar. MYND/BRYNDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR
2 . Á G Ú S T 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
2
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
4
-2
3
5
4
2
0
8
4
-2
2
1
8
2
0
8
4
-2
0
D
C
2
0
8
4
-1
F
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K