Verslunartíðindi - 01.11.1923, Blaðsíða 7

Verslunartíðindi - 01.11.1923, Blaðsíða 7
VERSLUN ARTlÐINDI 123 aðila fyrir rannsókn sína eða upplýsing- ar hins. í 20. gr. er svo gert ráð fyrir að frv. geti orðið að lögum 1. jan. 1924 og þá jafnframt talin upp þau lagaboð, sem falli þá samtimis úr giidi. Þá er lokið lýsingu á frv. þessu. — Að sjálfsögðu er hægt að koma fram með margar og miklar mótbárur gegn því og athugasemdir við það. — Það á líka eftir að ganga gegnum hreins- unareld alþingis og gagnrýni þeirra, sem þessi mál láta sig skifta. — Verður þá vonandi margt bætt en engu spilt. — En eitt er víst — og það er það, að frv. er samið af góðum hug til verslunar- stjettarinnar. — Og ef það nær þeirri upp- hefð að verða að lögum og þeim lögum verður framfylgt, er jeg viss um að það á eftir að bæta mikið kaupmanna- stjettina íslensku í framtíðinni og gera hana færa um að verða máttarstoð þjóð- fjelagsins. — Lárus Jóhannesson. Skýrsla til Stjórnarráðs íslands, um erindisrekstur P. A. Ólafssonar til Eystrasaltslandanna, Póllands og Tjekkoslóvakíu sumarið 1923. Jeg lagði í þennan leiðangur frá Reykja- vík 16. júlí, og kom aftur með Botníu 22. október. Fór jeg eins og til stóð um þessi lönd: Finnland, Estland, Danzig, Lettland, Lit- hauen, Pólland og Tjekkóslóvakíu og rann- sakaði þar eftir föngum, söluhorfur fyrir íslenskar afurðir. Það skal þegar tekið fram, að til þess að geta rannsakað nokkuð ýtarlega sölu- mögulegleika í þessum löndum, hefði mað- ur þurft að geta haft mun meiri tima fyrir sjer, og farið um alla helstu bæi í hverju landi, og dvalið mun lengur, en jeg gerði í aðal-bæjunum. En að undan- teknu Finnlandi, þar sem jeg dvaldi í 12 daga og heimsótti 4 helstu staðina, gat jeg aðeins haft fárra daga viðdvöl í hverjum höfuðbæ hinna landanna. I alveg óþektum löndum og bæjum, og sjerstaklega þar, sem að nokkru leyti verður að eiga undir öðrum með málið, þá vinst lítið hvern daginn. Það bagaði líka, að á þeim tima er jeg fór gat jeg ekki fengið nein sýnishorn með mjer. En það er eitt höfuðskilyrðið til þess að tilætluð- um árangri verði náð sæmilega. Mán- uði eftir burtför mína fjekk jeg að vísu send sýnishorn af síld og ull, en það fór misjafnlega um þær sendingar, og á marga staðina komu þær fyrst löngu eftir að jeg var farinn þaðan. Framvegis verður að leggja mikla áherslu á, að sendimaðurinn hafi sjálfur meðferðis sýnishorn af öllum þeim afurðum, sem hann á að leita fyrir sjer með, allt í haganlegu fyrirkomnu íláti. Það mundi ekki eingöngu ljetta fyrir erindinu, en jafnframt spara mikið fje, sem ella fer í flutningskostnað, tolla o. fl. Hagskýrslunum er í þessum löndum, ekki síður en víða annarstaðar, mjög ábóta- vant. Þar sem á þeim er þó helst að byggja um sölumöguleikana, þá er það bagalegt mjög i svona erindagjörð, ýmist að geta ekki fengið opinberar skýrslur, eða þá alls ófullnægjandi, og í mörgum tilfellum að verða að byggja á eða draga líkur af því, sem Pjetur og Páll segir. En þrátt fyrir öll framangreind vand- kvæði, hefi jeg gert mitt besta til að ferð- in gæti þó borið einhvern árangur, og skal nú nánar skýrt frá horfunum og þeim upplýsingum, sem jeg átti kost á að fá.

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.