Verslunartíðindi - 01.04.1924, Side 10

Verslunartíðindi - 01.04.1924, Side 10
44 VEBSLUNARTÍÐINDI Noregur. Utdráttur úr frjettaskeytum frá norska aðalkonsúlnum. Reikningur Noregsbanka dags. 29/2, sýn- ir að seðlaumferðin hefur hækkað á síðasta mánuði úr 3(34,7 milj. kr. upp i 368,9 milj. kr. Verðlag heldur áfram að hækka. Vísi- talan var siðasta febrúar 261 en 251 síð- asta janúar. Allílestar vörutegundir hafa hækkað, aðeins trjáviður, trjámauk og pappír staðið í stað. Orsök verðhækkun- arinnar má telja bæði gensrismismun og akv'ðið urn gulltollim: Toiltekjurnar voru í febrúar 11 milj. kr. en 7,1 milj. kr. á sama tíma í fyrra. — Fyrstu 8 mánuði fjárhagsársins hafa kom- ið inn 73.1 milj. kr., en 67,9 milj. kr. á sama tímabili í fyrra. Innflutningurinn var minni en í febrúar í fyrra, en tolltekjurn- ar meiri vegna gulltollsins. Verkamannadeilur hafa haft talsverð áhrif á peningamarkaðinn, og á verðbrjefa- markaðinum hafa verið lítil viðskifti. Hlutabrjefamarkaðurinn hefur verið fjör- meiri, sjerstaklega skipaverðbrjef og verð- brjef innan trjáiðnaðarins, sem spurt hefur verið eftir og sem hafa hækkað í verði. Aftur á móti hafa verið lítil viðskifti með bankabrjef og hvalveiðahlutabrjef. Verð á stubbum og námutimbri hefur ekki breyst. Skráningin er á milli 117,00 og 120,00 fyrir stubba. Skráning á námu- timbri sömuleiðis óbreytt. Farmgjaldamarkaðurinn má heita að hafi verið stöðugur í febrúarmánuði, en þó nokkuð að aukast eftirspurn og farmgjöld fara hækkandi. Frá La Plata hefur verið samið um talsvert af kornflutningi til Eng- lands, Norðurlanda og Miðjarðarhafsland- anna. Farmgjöldin hafa hækkað úr 26,6 upp í 33,C0 í febrúarmánuði. Kolafarm- gjöld hafa staðið í stað. Trjáviðarfarm- gjöld frá Hvítahafinu eru aftur á móti lægri en þau voru í fyrra og er því lítið um viðskifti þaðan. Einnig eru trjáviðar- farmgjöld frá Austursjónum svo lág, að sá flutningur horgar sig ekki. Hafsíldveiðarnar hafa gengið vel í fe- brúarmánuði og er veiðin talin i ár til x/s 517000 hl., en 370000 hl. í fyrra. í ár hafa 264000 hl. verið saliaðir, en 223000 fryst- ir. Aflinn nemur 5,3 milj. kr. (2,2 milj. kr. í fyrra). Vorsildveiðarnar hafa einnig gengíð vel og var aflinn orðinn 1. mars 555000 hl. og nemur 4,8 milj. kr. Þorskveiðar hafa gengið heldur trpglega þíð sem af er. Utfiutningurinn nam í janúar samtals 69.4 milj. kr. og skiftist þannig niður: Matvörur úr dýraríkinu 19,7 milj. kr., (þar af síld og fiskur 12,8 milj. kr. og niður- suðuvörur 5,2 milj. kr.), feitmeti og olíur 4,5 milj. kr., trjáviður 5,2 milj. kr., papp- írsmauk, pappír og vinna úr því efni 18 milj. kr., óunnar og hálfunnar steinvörur 2.4 milj. kr., unnar steinvörur 7,8 milj kr. og óunnar og háifunnar málmvörur 7,5 milj. kr. Atvinnulausratalan var síðasta febrúar ca. 20000, en 19800 síðasta janúar. Um miðjan febrúar í fyrra var þessi tala 27200. Reikningur Noregsbanka dags. 31/s sýna að gullforðinn hefur verið kr. 147.284.000. Seðlar i umferð voru kr. 380.221.000. Á sama tíma í fyrra voru þessar tölur kr. 147.289.000 og 374 779.000. Verðlag hefur heldur farið hækkandi og er vísitalan nú 264, en 261 um fyrri mánaðarmót. Tolltekjurnar voru samtals í marsmán- uði 10 milj. kr., en 6,6 milj. kr. á sama tíma í fyrra. Trjáviðarmarkaðurinn hefur beðið tals- verðan skaða af verkamannadeilum, bæði á Englandi og i Noregi. Sama má að vísu segja um trjámauks og trjákvoðumarkað- inn, en þó hafa par orðjð talsverð við-

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.