Verslunartíðindi - 01.02.1932, Qupperneq 10

Verslunartíðindi - 01.02.1932, Qupperneq 10
VERSLUNARTÍÐINDI 20 Suður-Afríka: Þar hafa ýmsar tollhækk- anir átt sjer stað, og ennfremur almnnn verðtollshækkun er nemur 5°/0. Þar hefir einnig verið komið á gjaldeyrisráðstöfunum. Tyrkland: í árslok 1931 var viðbótar- tollur lagður á nálega allar vörur. Ungverjaland: Þar valda gjaldeyrisráð- stafanir erfiðleikum á vöruinnflutningi, og í janúar 1932 var bannaður innflutningur á ýmsum vörum nema með sjerstöku leyfi og fyrir slík innflutningsleyfi á að greiða gjald, er nemur '/j0/,, af vöruverðinu. Búlgaría: í desembermánuði lagði sijórn- in bann á ýmsan óþarfa varning: gjald- eyrisráðstafanir valda þar einnig erfiðleik- um með vöruinnflutninginn. V erndartollastef nan á Englandi. Menn voru orðnir vanir að skoða England sem forvígi frjálsrar versiunar. Hvergi var jafn mikið samræmi í fríverslunarpólitíkinni og þar, og hvergi jafn rótgróin andúð gegn verndartollum sem þar. Að vísu hafa nokkrar tilraanir verið gerðar á undan- förnum árum ti! þess að koma á tollvernd en þær tilraunir hafa jafnan mistekist. En nú er þetta vígi fallið. England hefur tekið upp nýja tollamálastefnu, sem til þessa hefur verið þar óþekt, þó hún hafi viða verið kunn annarstaðar. En vafasamt er þó hvort skoðun manna þar hefur'al- ment hneigst í tollverndunaráttina, þó hins- vegar megi segja, að þeirri stefnu hafi aukist mikið fylgi. Ræturnar til þessarar nýju tollmálastefuu liggja i stjórnmálaviðburðum síðasta hálfárs en þar að baki er fjármálakreppan, er náði hámarki í ágústmánuði síðastl. Þegar enska stjórnin fjell á atvinnu- lausrastyrktarmálinu mynduðu Mac Donald og Snowden þjóðstjórn með stuðningi í- haldsflokksins, nokkrum hluta af frjálslynda flokknum og einhverju broti af verkamanna- flokknum. Aðalmarkmið stjórnarinnar að koma jöfnuði á fjárhagsáætlun ríkisins og halda uppi gengi sterlingspundsins. Enn- fremur átti hinn óhagstæði verslunarjöfn- uður að takast til rækilegrar athugunnar. Jöfnuði á fjárhagsáætlun ríkisins var kom- ið á, en það eitt var ekki nægilegt. Traust- ið hafði orðið fyrir hnekkir, og 21. septem- ber varð að hverfa frá gullinnlausn. Parla- mentið var leyst upp, og undirbúningur til nýrra kosninga hófst. Stjórnin hafði ekki lagt fram neina sameiginlega stefnuskrá. Mac Donald hjelt fram þeirri kröfu, að stjórnin hefði áfram óbundnar hendur til þess að vinna að fjárhagslegri endurreisn. íhaldsmennirnir heimtuðu tolla. Þrír stjórn- armeðlimir úr frjálslynda flokknum vildu hafa fríverslun, en hinir vildu hafa hóflega tolla. Stjórnin vann glæsilegan sigur við kosningarnar og fengu hennar flokkar 554 þingsæti. Spursmálið um fríverslun eða vernda- tollastefnu hefur ávalt verið eitt af þýð- ingarmestu pólitísku stefnumálunum á Englandi, og þegar legið hafa fyrir toll- frumvörp, sem höfðu í för með sjer veru- lega breytingu á verslunarstefnu þjóðar- innar, hafa kjósendurnir spyrnt á móti, þetta kom fyrir 1906, þegar Joseph Cham- berlain vildi láta leggja toll á erlendar vörur með forrjettindum til handa nýlend- unum. Hann beið ósigur í kosningum. Sama sagan endurtók sig 1923 þegar Baldvins- stjórnin kom með sín forrjettindafrumvörp, og það þó Austin Chamberlain hefði fengið dálitla ívilnun fyrir nýlendurnar hvað snerti örfáar vörutegundir árið 1919,

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.