Verslunartíðindi - 01.02.1932, Blaðsíða 11

Verslunartíðindi - 01.02.1932, Blaðsíða 11
VERSLUNARTÍÐINDI 21 Engin ákveðin tollafrumvörp lágu fyrir við kosningarnar í fyrra, en kosningaúr- slitin gáfu tilefni til þess að kröfur um tollvernd komu fram frá ýmsum atvinnu- greinum, og verndartollaáhangendur í Parla- mentinu sóttu fast fram. Verslunarráðherra, Runciman tók þessum kröfum fálega, og gaf jafnvel opinberlega í skyn, að stjórnin myndi fara frá, ef hart væri gengið að með tollverndarstefnuna. Fyrsta skrefið, sem stjórnin tók í toll- málunum var að fá heimild til handa versl- unarráðuneytinu til þess að mega leggja altað 100°/0 toll á vissar vörur þegar of mikið bærist að af þeim. Eftir að þetta hafði verið lögfest (Abnormal Importat- ions (Customs Dutiés) Act 1931), hefir þessi heimild verið notuð þrem sinnum og lagt á nokkrar vörutegundir 50°/0 verðtoll. Seinna kom svo »HorticuItural Products (Emergency' Customs Duties) Act 1931«, sem veitir landbúnaðarráðuneytinu svipaða heimild viðvíkjandi ferskum ávöxtum, grænmeti og blómum. Sú heimild hefur verið notuð tvisvar með 50°/0 verðtolls- álagningu. Bæði þessi lög eru kreppuráð- stafanir, sem ekki áttu að gilda nema stuttan tíma. En svo kom tollskráin. Frumvarpið lagði fjármálaráðherran, Neville Chamberlain fram 4. febrúar og var það samþykt 9. s. m. Er þar lagður 10% verðtollur á nálega allar vörutegundir, sem ekki voru áður tollaðar, að örfáum undantekningum, svo sem: hveiti, kjöt, fisk sem Bretar hafa aflað, óunnin bómull, óunnin ull og te. Ennfremur hefir fjármálaráðherra heimild til að leggja viðbótartoll á ónauðsynlegar vörur eða vörur, sem hægt er að framleiða nóg af í landinu sjálfu eða sem talið er að muni verða hægt innan skamms. Enn- fremur hefur verslunarmálaráðherra heim- ild til að leggja altað 100% viðbótartoll á vörum frá þeim löndum, er ekki láta Breta njóta bestu kjara í viðskiftum. — Þessar nýju tollaálagningar gildi eigi gagn- vart bresku nýlendunum. Ekki vantaði viðvaranir gegn verndar- tollsstefnunni, áður en stjórnarfrumvarpið var lagt fram. Áhangendur fríversluparinn- ar voru vongóðir, þar sem þeir bjpggust við að ráðherrarnir úr frjálslynda flokknum myndu koma í veg fyrir frekari framkvæmd- ir í verndartollamálum, en svo fór að þeir urðu einnig fylgjandi frumvarpinu. Fjármálaráðherrann gat þess, að frum- varpið færi í mjög hóflega átt, enda hafa margir haldið því fram innan iðnaðarins og á meðal áhangenda tollverndunarstefn- unnar að verndin væri ekki nægileg, og má því búast við, að hert verði betur á, þar sem fríverslunarmennirnir eru of fáir í breska þinginu nú sem stendur. Síldarafli þýskra botnvörpuskipa 1931 Skýrsla er nú komin yfir þýska síldar- aflann síðastl. ár og má af eftirfarandi yfirliti sjá hve miklu hann hefur numið og hvar hann hefur verið seldur. Flutt til. Smál. Verð. Altona 31.900 5.280.000 mk. Hamburg 1.271 202.000 — Cuxhaven 21.950 3.478.500 — Wesermúnde 14.915 2.105.340 — Bremerhaven 665 94.300 — Samtals 73.701 11.160.140 mk. Árið 1930 vat aflinn 56.200 smál. og 1929 68.150 smál. En þó árið 1931 megi teljast með bestu aflaárum, þá hefur lansa

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.