Verslunartíðindi - 01.02.1932, Síða 14

Verslunartíðindi - 01.02.1932, Síða 14
24 VERSLUNARTÍÐINDI Vjer skulum ofurlitið athuga fjárhag Japana um leið og aðstæður þeirra í þessu máli. í Japan eru nú 60 millj. íbúa; hver miljón, sem bætist við árlega eykur á- hyggjur þeirra um afkomuna. Iðnaðinum hefur fleygt áfram og dregið fólkið til borg- anna og vandræði þau, sem nú steðja að honum veldur miklu atvinnuleysi, enda þótt samheldni ættanna, sem byggist á forfeðradýrkuninni dragi nokkuð þar úr. Iðnaðurinn í Japan er ungur, fljótvaxinn, næmur fyrir öllum örðugleikum. Utflutning- urinn er einhliða og verða þeir að fá öll sin hráefni annarsstaðar að. 40°/0 af öllum útflutningi Japana fer til Bandarríkjanna og er mestmegnis silki. Um tíma ætlaði samkeppni með silkilíki að gjöra þeim skráveifur, en þá tóku þeir sjálfir að fram- leiða silkilíki í stórum stíl. En nú hefur eftirspurnin á silki í Bandaríkjunum mikið minkað. Af hráefnum nota Japanar 50 milj. smál. af kolum árlega, en framleiða sjálfir aðeins 30 milj., landið þarf 2 milj. tonn af olíu, en framleiðir sjálft aðeins 300,000; það framleiðir aðeins fjórða hluta af járni því og stáli, sem til iðnaðarins fer og af matvöru eru t. d. fluttar inn 2 milj. smál. af baunum. Þetta tvent, mannfjölgunin og hráefnin, ráða mestu í verslunarpólitík Japana og náið tvinnað deilunni um Man- churiu. Þegar Rússar gjörðu járnbrautina Moskva—Wladivostock og seinna brautina frá Harbur til Dalmv og Port Arthur, þá dróst Manchuria inn í málið. í stríðinu við Japan, urðu Rússar að láta af hendi mik- inn hluta brautarinnar frá Chanzun til Dalmy. Þessi braut varð Japönum drjúg í nýlendupólítík þeirra. Járnbrautarfjelagið South Manchuría Railvay Co. fjekk ekki einungis leyfi til að reka hana, heldur og alt svæðið fram með henni. Þar náði Japan fótfestu, sem það notaði sjer vel. Hluta- fjeð — 400 milj yen — sem Japanar og Kínverjar áttu, var í höndum japönsku stjórnarinnar. Svæði þetta náði yfir 64000 ekrur og 1925 voru íbúar þar 274.625, nfl. 180.534 Kinverjar, 82.625 Japanar og 1466 annarra þjóða. Fjelagið fjekk full umráð þessa svæðis. Japan hafði nú náð fótfestu á meginlandinu og er með því að ná Kóreu á vald sitt. 1910 hafði Japan fengið land- flæmi, sem bætti úr brýnustu þörf þeirra á hráefnum þeim, sem þá skorti, og hafn- irnar voru þannig lagaðar að óvinirnir gátu ekki stöðvað flutning ef til ófriðar bæri. En það var ekki eingöngu hráefnin, sem nota átti, heldur skyldi landið taka við öll- um þeim Japönum sem ekki höfðu rúm heima fyrir. Tvent var það, sem fjekkst með þessu. Aðstaðan bættist öll heimafyrir og um leið unnu þeir á í Kína. Höfðu menn í þeim efnum mikla trú á loforði því, sem Englendingar gáfu þeim er Bresk-Japönsku samningarnir voru endurnýjaðir. Því að þá viðurkendu Englendingar sjerrjettindi Japana í Manchuríu og hjeruðunum í kring, en það höfðu þeir ekki gjört áður. En nýlenduráða- gerðir þeirra verða mikil vonbrigði. Útflutn- ingurinn frá Japan varð sára lítill, og var að kenna bæði loptslaginu og ódýrri vínnu Kínverja. Þrátt fyrir 25 ára starf eru að- eins 200,000 Japanar búsettir í Manchuriu. En samt hafa þeir ekki hætt við það og hafa flutt inn um 1 milj. Koreumenn, sem eru japanskir þegnar og komið þeim fyrir á þessu svæði. Þrátt fyrir öll þessi von- brigði linntu þeir samt ekki látum, en tóku að fást við námugröft, hafnargerðir, skips- flutning, hótelrekstur o. s. frv. Hafa þeir lagt meira en 2 milliarða yen (4 milliarða krónur) í þessi fyrirtæki í Manchuriu, svo ekki hefir verið klipið við nögl sjer. Árið 1917—’28 var flutt með járnbrautum 8.226. 000 farþegar og 18.500.000 ton af vöruin svo að á þessu sjest að samgöngutæki þetta er ekki neitt smáræði þegar litið er á fje það, sem Japanar hafa lagt í að og einkum eins og öllu til hagar núna þá

x

Verslunartíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.