Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.09.2018, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 19.09.2018, Qupperneq 6
Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i REYKJAVÍK „Í raun má kristalla þetta í tveimur valkostum. Að halda áfram á sömu braut eða að breyta ferðavenjum. Ekki með því að þvinga fólk heldur með því að búa til góða valkosti,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um borgar- línu sem var til umræðu í borgar- stjórn í gær. Tillaga um aðgerðir til að tryggja framgang borgarlínu var samþykkt á fundi borgarstjórnar. Greiddu allir tólf borgarfulltrúar meiri- hlutans atkvæði með tillögunni en átta borgarfulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði gegn henni. Tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins, þær Hildur Björnsdóttir og Katrín Atladóttir, greiddu ekki atkvæði og það gerði fulltrúi Sósí- alistaflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, ekki heldur. Frávísunartillaga Sönnu var felld með tólf atkvæðum gegn ellefu. Sanna sagðist í grunninn ekki mót- fallin hugmyndinni um borgar- línu. Hins vegar vantaði alveg rödd almennings. Vinna þyrfti málið betur í samráði við þá sem treysta á almenningssamgöngur. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagði að enn væri það óljóst hvað fælist í borgarlínu. „Við höfum ekki fjármagn í þessa draum- sýn,“ sagði Vigdís. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðismanna, sagði það vonbrigði hversu illa tillagan væri unnin og því ætti að vísa henni frá. Allir vildu bæta almenningssamgöngur en það væri óljóst hver ætti að borga fyrir uppbygginguna. „Við erum að fara af stað í óvissuferð í samgöngumálum.“ Borgarstjóri lagði áherslu á að halda yrði til haga stóru myndinni. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hefðu unnið að verkefninu í sam- einingu. Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, líkti borgarlínu við uppbyggingu stofnvegakerfisins á sínum tíma. Tillagan boði tíma- mót og tími sé til kominn að hugsa kerfið upp á nýtt. „Við þurfum að finna leið til að nýta samgönguæð- arnar, sem eru takmarkaðar auð- lindir, takmörkuð verðmæti, betur en verið hefur.“ Hann sagði þetta eina viðamestu og vönduðustu vinnu sem unnin hefði verið í borginni í langan tíma. Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, sagði einn af kostum borgarlínu vera að hægt yrði að byggja kerfið upp í áföngum. Hann sagðist ekki óttast að tæknibreyt- ingar myndu gera borgarlínu úrelta. Ný tækni eins og sjálfkeyrandi bílar breytti ekki grundvallarrúmfræði. „Það verður alltaf skynsamlegt að veita þeim samgöngukostum for- gang sem flytja mikið af fólki hratt á milli staða,“ sagði Pawel. sighvatur@frettabladid.is Tillaga um framgang borgarlínu samþykkt Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær tillögu sem tryggja á framgang borgarlínu. Minnihlutinn gagnrýndi það hversu óskýr tillagan væri og að mikil óvissa ríkti um kostnaðinn og hver ætti að bera hann. Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar telur hins vegar um tímamótatillögu að ræða. Róa í sömu átt þrátt fyrir mismunandi áherslur Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og stjórnarmaður í Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, segir sveitarfélögin róa í sömu átt hvað borgarlínuna varðar. „Það eru eitthvað misjafnar áherslur hjá bæjarstjórunum en viðræður við ríkið munu hafa áhrif á það hvernig sveitarfélögin framkvæma þetta. Það stendur auðvitað margt út af ennþá eins og kostnaðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga.“ Hann segist finna fyrir vilja hjá ríkisstjórninni til að taka næstu skref. „Við þurfum samt líka að skoða samspil borgarlínu við aðrar brýnar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu.“ Hvað felst í tillögunni? l Klára á breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. l Hefja á skipulagsvinnu rammaskipulags fyrir almenningssamgöngur í sérrými. l Gerð verði áætlun fyrir fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu meðfram þróunarásum borgarlínu. l Gerðar verði tillögur að reitum innan áhrifasvæðis borgarlínu með lausnir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur í huga. TæKni Nýjasta stýrikerfið fyrir snjalltæki Apple, iOS 12, er komið út og hafa tæknimiðlar vestan hafs fjallað ítarlega um þær nýjungar sem finna má í stýrikerfinu. Sá eiginleiki sem hefur vakið mesta athygli er ein- faldur. Kerfið er sagt auka hraða og afkastagetu snjalltækja Apple svo um munar. Þá býður stýrikerfið upp á svokallaða „Live Listen“ stillingu fyrir þráðlausu heyrnartólin AirPods sem eiga í raun að breyta heyrnar- tólunum í heyrnartæki. Öryggi í stafrænum heimi hefur verið í deiglunni undanfarin miss- eri og eru nýir stillingarmöguleikar stýrikerfisins til þess gerðir að auka öryggi notenda. Hægt er að hafa flóknari lykilorð en í eldri stýri- kerfum og krefjast SMS-skilaboða fyrir innskráningar. Sé eigandi símans að nota sama lykilorð fyrir marga aðganga minnir stýrikerfið notandann á að það sé óöruggt og ráðleggur eigandanum að breyta lykilorði sínu. – þea Aukið öryggi með iOS 12 iPhone XS og XS Max, nýjustu símarnir frá Apple. NordicPhotoS/AFP Fundur í borgarstjórn reykjavíkur í gær þar sem tillaga um framgang Borgarlínu var samþykkt. FréttABlAðið/Sigtryggur Ari 1 9 . s E p T E m b E R 2 0 1 8 m i Ð V i K U D A G U R6 f R é T T i R ∙ f R é T T A b L A Ð i Ð 1 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D C -0 3 D 0 2 0 D C -0 2 9 4 2 0 D C -0 1 5 8 2 0 D C -0 0 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.