Fréttablaðið - 19.09.2018, Page 14

Fréttablaðið - 19.09.2018, Page 14
Fjárfestingarfélagið Varða Capi- tal, sem er að stærstum hluta í eigu Jónasar Hagan Guðmunds- sonar og Gríms Garðarssonar, tapaði rúmlega 267 milljónum króna í fyrra borið saman við 221 milljónar króna hagnað á árinu 2016. Tap félagsins skýrist af því að bókfært virði eignarhluta í dóttur- og hlutdeildarfélögum er fært niður um liðlega 340 milljónir. Varða Capital, sem kemur meðal annars að fjármögnun lúxus- hótelsins við Hörpu og er hlut- hafi í Kortaþjónustunni, var í hópi stærstu hluthafa Kviku banka en félagið seldi í lok síðasta árs 7,7 prósenta hlut sinn í bankanum. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi fjárfestingarfélagsins nam inn- leystur hagnaður vegna sölunnar um 123 milljónum króna. Heildareignir Vörðu Capital, sem er aðaleigandi Nespresso á Íslandi, námu um 2,5 milljörðum króna í árslok 2017 en þar munar mest um eignarhluti í dóttur- og hlutdeildarfélögum upp á 1,36 milljarða króna. Eigið fé félags- ins er rúmlega 1.400 milljónir og einu langtímaskuldir þess eru við tengda aðila. – hae markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5800 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is 123 milljónum nam innleystur hagnaður félagsins vegna sölu á 7,7 prósenta hlut í kviku banka í árslok 2017. GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR 588 80 40 www.scanver.is RAFMÓTORAR Bláa lónið í hóp stærstu hluthafa í Icelandair Ferðaþjónustufyrirtækið er í hópi tuttugu stærstu hluthafa Icelandair Group með um eins prósents eignarhlut. Bláa lónið hefur bætt verulega við hlut sinn undan- farið og meira en þrefaldað hlutabréfaeign sína í flugfélaginu frá áramótum. Verð hlutabréfa í Icelandair Group hefur lækkað um meira en helming frá áramótum. FréttablaðIð/ErnIr B láa lónið hefur að undan förnu bætt veru-lega við eignarhlut sinn í Icelandair Group og er núna á meðal stærstu hluthafa flugfélagsins með um eins prósents hlut. Nýleg- ur hluthafalisti félagsins, sem ekki hefur verið gerður opinber, sýnir þannig að Bláa lónið er komið í hóp tuttugu stærstu eigenda Icelandair með um 50 milljónir hluta, sam- kvæmt heimildum Markaðarins. Miðað við núverandi gengi bréfa Icelandair er markaðsvirði hlutarins um 370 milljónir króna. Bláa lónið átti í árslok 2017 tæp- lega 14 milljónir hluta í Icelandair Group og hefur fyrirtækið því meira en þrefaldað hlut sinn í flugfélaginu það sem af er þessu ári. Hlutabréfa- verð Icelandair hefur hríðfallið síð- ustu misseri og mánuði og frá ára- mótum hafa bréf félagsins lækkað í virði um liðlega helming. Gengi bréfa félagsins, sem lækkaði um rúmlega þrjú prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í gær, stendur núna í 7,3 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra í nærri sex ár. Stærsti hluthafi Icelandair er Líf- eyrissjóður verslunarmanna með um 14 prósenta hlut en saman- lagt eiga íslensku lífeyrissjóðirnir meira en helmingshlut í félaginu. Innlendir einkafjárfestar hafa hins vegar löngum verið hverfandi í hlut- hafahópi Icelandair. Samkvæmt síðasta opinbera lista yfir tuttugu stærstu hluthafa félagsins, sem birtist 31. júlí síðastliðinn, var þar aðeins að finna eignarhaldsfélagið Traðarhyrnu, sem er meðal annars í eigu Samherja, með 1,7 prósenta hlut í gegnum safnreikning hjá Kviku banka. 2,7 milljarðar í verðbréfum Vöxtur Bláa lónsins á undanförnum árum hefur sem kunnugt er verið ævintýralegur. Tekjur fyrirtækisins námu þannig rúmlega 102 millj- ónum evra, jafnvirði 13 milljarða króna, á síðasta ári og jukust um 25 milljónir evra á milli ára. Þá var hagnaður Bláa lónsins um 31 millj- ón evra á árinu 2017 og hækkaði um þriðjung frá fyrra ári. Tæplega tveir milljarðar voru greiddir út í arð til hluthafa fyrr á þessu ári. Í árslok 2017 námu fjárfestingar Bláa lónsins samtals um 20,9 millj- ónum evra. Eignir í verðbréfasjóð- um voru þannig um 18,7 milljónir evra á meðan bein hlutabréfaeign Bláa lónsins í skráðum félögum í Kauphöllinni nam um 2,2 millj- ónum evra í lok síðasta árs. Þar var fyrst og fremst um að ræða hluta- bréfaeign fyrirtækisins í Icelandair Group. Hlutafélagið Hvatning er stærsti eigandi Bláa lónsins með ríflega 39 prósenta hlut. Framtakssjóðurinn Horn II, sem er í eigu lífeyrissjóða, fjármálafyrirtækja og annarra fag- fjárfesta, á 49,45 prósenta hlut í félaginu en Kólfur heldur hins vegar utan um 50,55 prósenta hlut í Hvatningu. Eigendur Kólfs eru Grímur Sæmundsen, forstjóri og stofnandi Bláa lónsins (75 prósent), og Eðvard Júlíusson (25 prósent). Þá á eignarhaldsfélagið Keila 9,2 pró- senta hlut í Bláa lóninu en það er í meirihlutaeigu Hvatningar. Aðrir hluthafar í Keilu eru meðal annars Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og varaformaður stjórnar Bláa lónsins, en hann er jafnframt stjórnarformaður Icelandair Group. HS Orka er næststærsti hluthafi Bláa lónsins með um 30 prósenta hlut. Þá eiga Helgi Magnússon, stjórnarformaður Bláa lónsins, og Sigurður Arngrímsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Morgan Stanley í London, einnig hvor um sig um 6,2 prósenta hlut í fyrirtækinu. hordur@frettabladid.is 370 milljónir króna er núverandi markaðsvirði eignarhlutar Bláa lónsins í icelandair Group. WOW air hefur tryggt sér fjármögn- un upp á samtals 60 milljónir evra, jafnvirði um 7,7 milljarða íslenskra króna, en skuldabréfaútboði félags- ins lauk í gær. Í tilkynningu sem flugfélagið sendi frá sér segir að það hafi nú þegar selt skuldabréf fyrir 50 milljónir evra og 10 milljónir evra verði seldar fjárfestum í framhaldi af útboðinu. Þátttakendur í útboðinu voru bæði erlendir og innlendir fjár- festar. Þá hefur WOW air ráðið Arion banka og Arctica Finance til að hefja undirbúning að skráningu hluta- bréfa félagsins innan 12-18 mánaða, bæði hérlendis og erlendis. Skuldabréfaútgáfan er hugsuð sem brúarfjármögnun fram að áformuðu hlutafjárútboði. Fjár- festar sem tóku þátt í skuldabréfa- útboðinu fá kauprétt að hlutafé á 20 prósenta afslætti, þegar félagið verður skráð á markað, sem nemur helmingi af höfuðstól bréfanna en kauprétturinn verður að fullu fram- seljanlegur og gildir til fimm ára. – hae Safnaði 7,7 milljörðum Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air. Lúxemborgska hýsingar- og gagna- vinnsluþjónustan Etix Group hefur fjárfest í Borealis Data Centers sem rekur tvö gagnaver á Íslandi. Með fjárfestingunni er Etix komið með ráðandi hlut, um 55 prósent, í BDC sem hefur formlega skipt um nafn og mun framvegis heita Etix Every- where Borealis. Þetta staðfestir Björn Brynjúlfs- son, framkvæmdastjóri Borealis Data Centers, í samtali við Mark- aðinn. „Etix er að koma inn sem ráðandi hluthafi hjá okkur. Þetta er alþjóðlegt fyrirtæki með rekstur úti um allan heim sem mun styrkja uppbyggingu hér heima verulega,“ segir Björn. „Við erum á kafi í upp- bygginu með þeim sem er smátt og smátt að taka á sig góða mynd.“ BDC rekur eitt gagnaver á Fitjum í Njarðvík og annað á Blönduósi við Svínvetningabraut. Það var nýlega gangsett en áætlað er að uppbygg- ingu á aðstöðunni ljúki fyrir árslok. Saman hafa þessi gagnaver hýs- ingargetu fyrir 30 þúsund netþjóna en vegna mikillar eftirspurnar frá alþjóðlegum fyrirtækjum er öll hýs- ingin uppseld. „Ísland er hagkvæm staðsetning fyrir gagnaver af þessum toga þökk sé köldu loftslagi og raforkuöryggi,“ segir Björn og vísar því til stuðnings til niðurstaðna úr alþjóðlegum rannsóknum. – tfh Lúxemborgarar fjárfesta í Borealis björn brynj- úlfsson, fram- kvæmdastjóri borealis. Varða Capital tapaði 267 milljónum í fyrra Jónas Hagan Guðmundsson, einn hluthafa Vörðu Capital. 1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn 1 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D B -F 9 F 0 2 0 D B -F 8 B 4 2 0 D B -F 7 7 8 2 0 D B -F 6 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.