Fréttablaðið - 19.09.2018, Page 30

Fréttablaðið - 19.09.2018, Page 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5407. Skákkennsla verður efld í grunnskólum Akureyrar Akureyrarbær, Skákskóli Íslands og Skákfélag Akureyrar undirrituðu í gær samning um skák- kennslu í grunnskólum Akureyrar. Markmið samningsins er að efla iðkun skáklistarinnar í 3. til 5. bekk grunnskóla á þeim forsendum að skákin sé stór hluti af menningararfi Íslendinga. Bæjarstjórinn á Akureyri segir mikilvægt að ungmenni í bænum kynnist skáklistinni af eigin raun. FréttABlAðið/Anton Brink Skákskóli Íslands styður við verk-efnið með mánaðarlegum fjár-hagslegum stuðningi til ársloka 2018 og nema greiðslurnar alls 1.170.000 króna. Fjármunina skal nýta til kennslulauna og annars kostnað- ar. Auk þess veitir Skákskóli Íslands ráð- gjöf og leiðbeiningar og útvega kennslu- efni eftir því sem þörf krefur. Kennt verður á ákveðnum tímum vikulega sam- kvæmt stundatöflu. Allir nemendur 3. og 4. bekkjar fá skákkennslu og nemendur 5. bekkjar þar sem því verður við komið. Samningurinn gildir á haustmisseri 2018. Samningsaðilar stefna að áfram- haldandi skákþjálfun nemenda á vor- misseri í ljósi þeirrar reynslu sem fæst á gildistíma, það er frá september 2018 til janúar 2019. Aðilar áforma áframhald kennslu á vormisseri 2019, þar með talið að haldin verði meistaramót í hverjum skóla og milli skóla á fyrstu tveimur mán- uðum nýs árs. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir mikilvægt að ungmenni í bænum kynnist skáklistinni af eigin raun. „Ég held að skákin sé til þess fallin að þroska nemendur, efla rökræna hugs- un og það hefur sýnt sig að taflmennska styrkir ungmenni í námi. Það er mikil- vægt að Skákskóli Íslands komi að þessu verkefni með svo rausnarlegum hætti og því ber að fagna.“ Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Íslands, segir að skákkennsla á Akureyri hafi sannað gildi sitt áður fyrr og muni gera aftur. „Skák þjálfar einbeitni og getur stuðlað að bættum námsárangri,“ segir hann. benediktboas@frettabladid.is Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, Ásthildur Salbergsdóttir Grænlandsleið 49, lést á líknardeild LSH sunnudaginn 2. september síðastliðinn. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju föstudaginn 21. september kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar og Heimahlynningar LSH. Friðrik F. Söebech Berglind Söebech Þórarinn Söebech Stefanía Unnarsdóttir Birta Kristín, Ásta Fanney, Friðrik Fannar Vilhelmína Þórdís Salbergsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Þóra Lilja Bjarnadóttir Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést á hjartadeild Landspítalans fimmtudaginn 13. september. Útförin verður auglýst síðar. Bjarni Valdimarsson Guðfinna Karlsdóttir Eygló Valdimarsdóttir Guðjón Þorvaldsson Halldóra Valdimarsdóttir Valur Svavarsson og ömmubörnin. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður afa og langafa, Inga Tryggvasonar bónda og fyrrverandi alþingismanns. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Skógarbrekku, hjúkrunardeildar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík, fyrir góða umönnun. Þorsteinn Ingason Steingrímur Ingason Guðný Eygló Gunnarsdóttir Unnsteinn Ingason Rósa Ösp Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ásgeir Sigurðsson Naustahlein 14, Garðabæ, lést að Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 1. september. Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sveinveig Guðmundsdóttir Unnur Ásgeirsdóttir Hanna Ágústa Ásgeirsdóttir Halla Ásgeirsdóttir Már Kristjánsson Hrefna Ásgeirsdóttir Theodór S. Sigurbergsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Haukur Otterstedt hjúkrunarheimilinu Eir, lést 16. september síðastliðinn. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 21. september kl. 13. Hanna Margrét Otterstedt Guðrún Kolbrún Otterstedt Lena Kristín Otterstedt Steinunn Erna Otterstedt tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, Gunnar Már Jóhannsson Vindakór 1, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 14. september síðastliðinn. Útförin verður auglýst síðar. Helga Jónína Steindórsdóttir Sigríður Jóna Gunnarsdóttir Óskar Ingi Gunnarsson og fjölskyldur. Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa. Halldórs Skaftasonar veitingastjóra. Þorgerður Ína Gissurardóttir Arna Björk Halldórsdóttir Hallur Halldórsson Petra Sigurðardóttir Sigurveig Halldórsdóttir Hermann Haukur Aspar barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, Sigurður Bergþórsson lést fimmtudaginn 13. september Jarðarförin auglýst síðar. Herdís Stephensen Ingvar Sigurðsson Unnur Sigurðardóttir Steindór Ögmundsson Bergþór Atlason Friðrik Þór Steindórsson Hafdís Snorradóttir Yngvi Steindórsson Hafrún Sigurðardóttir Ástkær eiginkona mín, Sjöfn Halldórsdóttir lést miðvikudaginn 5. september. Útförin fer fram miðvikudaginn 19. september kl. 14.00 frá Kotstrandarkirkju. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Eyvindur Erlendsson 1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r14 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tímamót 1 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D B -E 1 4 0 2 0 D B -E 0 0 4 2 0 D B -D E C 8 2 0 D B -D D 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.