Fréttablaðið - 24.09.2018, Side 8

Fréttablaðið - 24.09.2018, Side 8
GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 8 2 8 R e n a u lt C li o 5 x 2 0 a lm e n n s e p t Renault NÝR RENAULT CLIO Á TILBOÐI *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri Innifalið í Intens búnaðarpakka er m.a.: Lykillaust aðgengi, fjarlægðarskynjarar að framan og aftan, bakkmyndavél, regnskynjari, LED aðalljós, Intens sætaáklæði með leðri á slitflötum, krómlistar og tölvustýrð tveggja svæða miðstöð. Renault Clio Intens, bensín: TILBOÐSVERÐ 2.490.000 kr. Verð áður: 2.690.000 kr. ÍRAN Æðstu ráðamenn í Íran segja að Bandaríkin og bandamenn þeirra við Persaflóa beri ábyrgð á árás á skrúð- göngu hermanna í borginni Ahvaz í suðvesturhluta landsins á laugardag. 29 fórust í árásinni. Sem fyrr segir átti árásin sér stað í fyrradag. Ganga hermannanna var í tilefni þess að 38 ár eru liðin frá því að stríð milli Írans og Íraks hófst en það stóð yfir í átta ár. Fjöldi áhorf- enda, bæði óbreyttir borgarar og ráðamenn, var saman kominn til að berja gönguna augum. Það var þá sem fjórir árásarmenn, klæddir í fullan hermannaskrúða, hófu skot- hríð á viðstadda. Í hópi hinna látnu voru tólf hermenn en aðrir sem létust voru áhorfendur, þar á meðal konur og börn. Hermenn felldu árásar- mennina fjóra. Samtökin al-Ahvaziya hafa lýst því yfir að árásin hafi verið á þeirra vegum. Ráðherrar og menn í æðstu stöðum innan hersins hafa ekki tekið þá yfirlýsingu góða og gilda. Þess í stað beina þeir fingri í átt að þeim sem þeir telja að styðji við bak samtakanna og annarra hryðjuverka- manna á svæðinu. „Hryðjuverkasveitir, þjálfaðar, æfðar, vopnaðar og launaðar af stjórnvöldum erlends ríkis, hafa ráðist á Ahvaz. Að mati Írans liggur ábyrgðin hjá nærliggjandi ríkjum sem styðja slíkar sveitir og banda- rískum herrum þeirra,“ segir utan- ríkisráðherra Írans, Javad Zarif, í tísti um árásina. Ríkin eru ekki nefnd í tístinu en talið er að Zarif hafi átt við Sádi-Arab- íu, Sameinuðu arabísku furstadæm- unum (SAF) og Ísrael. Þau eiga sam- merkt að vera óvinveitt Íran og hafa lýst því yfir að þau muni gera það sem þau geta til að draga úr áhrifamætti samtakanna í Miðausturlöndum. Ayatollah Ali Khamenei, æðsti klerkur Írans, tók í svipaðan streng í sinni yfirlýsingu. Sagði hann að árás- ina mætti rekja til „strengjabrúðna Bandaríkjanna“ sem hefðu það mark- mið að skapa glundroða og ringulreið í landi sínu. Hið sama gerði Hassan Rouhani, forseti Írans. „Þessir hryðjuverkamenn voru þjálfaðir af tveimur Persaflóaríkjum. Þeir eru ekki frá Daesh [ISIS] eða öðrum hópum sem berjast gegn hinu íslamska ríki Íran. Þess í stað eru þeir tengdir Bandaríkjunum og Mossad [leyniþjónustu Ísraels],“ segir Abolfazl Shekarchi, talsmaður íranska hersins, í samtali við íranska miðilinn IRNA. Fréttaveitan AP hefur eftir Yacoub Hor al-Tostari, talsmanni al-Ahva- ziya samtakanna, að þessi dagur hafi verið valinn fyrir árásina með til- liti til skrúðgöngunnar. Þennan dag vildi Íran einmitt sýna umheiminum að ríkið væri „voldugt“ og með fulla stjórn. Abdulkhaleq Abdulla, einn af ráðgjöfum Mohammed bin Zayed, krónprins SAF, sagði í tísti að árás á hernaðarlegt skotmark væri ekki hryðjuverkaárás. Atburðurinn er ekki til þess fallinn að lægja öldurnar á milli Bandaríkj- anna og Írans en leiðtogar þjóðanna munu hittast á miðvikudag í New York á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna (SÞ). „Rouhani hefur bælt þjóð sína í fjölda ára og honum væri nær að líta í eigin barm í stað þess að kenna öðrum um. Bandaríkin for- dæma allar hryðjuverkaárásir um allan heim,“ segir Nikki Haley, sendi- herra Bandaríkjanna hjá SÞ. joli@frettabladid.is Telja að strengjabrúður Bandaríkjanna hafi staðið að baki hryðjuverkaárás Tuttugu og níu týndu lífi þegar fjórir menn hófu skothríð á skrúðgöngu hermanna í borginni Ahvaz í Íran um helgina. Þarlend samtök hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni en írönsk yfirvöld benda á Bandaríkin og vini þeirra. Leiðtogar ríkjanna hittast á þingi SÞ um miðja viku. Þátttakendur í göngunni, sem og aðrir viðstaddir, áttu fótum sínum fjör að launa þegar skothríðin hófst. Tólf hermenn og þrettán áhorfendur fórust auk árásarmannanna. Íranir segja önnur ríki styðja vígamennina. FréTTablaðið/epa 2 4 . s e p t e m b e R 2 0 1 8 m Á N U D A G U R8 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A ð i ð 2 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E 5 -6 D 5 0 2 0 E 5 -6 C 1 4 2 0 E 5 -6 A D 8 2 0 E 5 -6 9 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.