Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.09.2018, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 24.09.2018, Qupperneq 36
Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 6. umferðar 2018-19 Fulham - Watford 1-1 0-1 Andre Gray (2.) - 1-1 Aleksander Mitrovic (78.). Cardiff - Man.City 0-5 0-1 Sergio Agüero (32.), 0-2 Bernardo Silva (35.), 0-3 Ilkay Gündogan (44.), 0-4 Riyad Mahrez (67.), 0-5 Riyad Mahrez (89.). C. Palace - Newcastle 0-0 Liverpool - Southampton 3-0 1-0 Wesley Hoedt (sjálfsmark) (10.), 2-0 Joël Matip (21.), 3-0 Mohamed Salah (45.). Leicester - Huddersfield 3-1 0-1 Mathias Jörgensen (5.), 1-1 Kelechi Ihe- anacho (19.), 1-2 James Maddison (66.), 1-3 Jamie Vardy (75.). Burnley - Bournemouth 4-0 1-0 Matej Vydra (39.), 2-0 Aaron Lennon (41.), 3-0 Ashley Barnes (84.), 4-0 Ashley Barnes (88.). Man.Utd - Wolves 1-1 1-0 Fred (18.), 1-1 Joao Moutinho (53.). Brighton - Tottenham 1-2 0-1 Harry Kane (vítaspyrna) (42.), 0-2 Érik Lamela 76., Anthony Knockaert (90.). West Ham - Chelsea 0-0 Arsenal - Everton 2-0 1-0 Alexandre Lacazette (56.), Pierre-Emerick Aubameyang (59.) FÉLAG L U J T MÖRK S Liverpool 6 6 0 0 14-2 18 Man.City 6 5 1 0 19-3 16 Chelsea 6 5 1 0 14-4 16 Watford 6 4 1 1 11-6 13 Tottenham 6 4 0 2 12-7 12 Arsenal 6 4 0 2 12-9 12 Man.Utd 6 3 1 2 9-9 10 B.mouth 6 3 1 2 10-11 10 Leicester 6 3 0 3 11-10 9 Wolves 6 2 3 1 6-6 9 C.Palace 6 2 1 3 4-6 7 Everton 6 1 3 2 8-11 6 Brighton 6 1 2 3 8-11 5 S’ton 6 1 2 3 6-9 5 Fulham 6 1 2 3 8-13 5 Burnley 6 1 1 4 7-10 4 West Ham 6 1 1 4 5-11 4 Newcastle 6 0 2 4 4-8 2 Cardiff 6 0 2 4 3-14 2 H.field 6 0 2 4 3-14 2 Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum á Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Lék allan leikinn í 2-0 tapi Everton gegn Arsenal, en Everton hefur nú leikið þrjá leiki í röð í deildinni án þess að vinna. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Var ekki í hóp hjá Cardiff vegna meiðsla þegar liðið steinlá fyrir Manchester City. Reading Jón Daði Böðvarsson Skoraði eitt marka Read- ing sem lagði Hull að velli með þremur mörkum gegn engu. Aston Villa Birkir Bjarnason Sat allan tímann á vara- mannabekk Aston Villa þegar liðið tapaði fyri Sheff. Wed. Burnley Jóhann Berg Guðm. Spilaði allan tímann þegar Burnley bar sigurorð af Bournemouth með fjórum mörkum gegn engu. Fótbolti Liverpool trónir tap- laust á toppi ensku úrvalsdeildar- innar í knattspyrnu karla þegar sex umferðir hafa verið leiknar í deild- inni. Liverpool sem hafði betur gegn Southampton er nú eina taplausa liðið á leiktíðinni þar sem Chelsea gerði markalaust jafntefli við West Ham United. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, gaf svissneska landsliðs- framherjanum Xherdan Shaqiri tækifæri í byrjunarliðinu í leiknum gegn Southampton og hann þakk- aði traustið með því að eiga þátt í tveimur af þremur mörkum liðsins í sannfærandi 3-0 sigri. Mohamed Salah batt svo endahnút á þriggja leikja markaþurrð sína þegar hann skoraði þriðja mark Liverpool í leiknum. Manchester City rak af sér slyðru- orðið eftir tap gegn franska liðinu Lyon í fyrstu umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku með því að gjörsigra Cardiff með fimm mörkum gegn engu. Manchester City og Chelsea fylgja fast á hæla Liverpool í toppbaráttu deildarinnar. Eins og staðan er núna stefnir í þriggja liða baráttu um enska meist- aratitilinn, en Manchester United mistókst að hafa betur í þriðja deildarleik sínum í röð þegar liðið gerði 1-1 jafntelfi gegn Wolves. Arse- nal bar hins vegar sigur úr býtum í fjórða deildarleik sínum í röð þegar liðið vann nokkuð þægilegan 2-0 sigur gegn Everton og Tottenham Hotspur komst aftur á sigurbraut með 2-1 sigri sínum gegn Brighton. Watford er svo áfram í námunda við toppliðin eftir 1-1 jafntefli gegn Fulham. José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, sagði að leik- menn liðsins hefðu ekki sýnt nægi- lega löngun og ákefð til þess að fara með sigur af hólmi gegn nýliðunum í Wolves sem hafa nú náð í stig á móti bæði Manchester United og Manchester City. Man chester Uni- ted er nú átta stigum á eftir toppliði deildarinnar, Liverpool, og má ekki misstíga sig mikið meira fram að jólum ætli liðið að vera með í titil- baráttunni eftir áramót. Það er huggun harmi gegn fyrir stuðningsmenn Manchester United að þrátt fyrir að ekki hafi ekki tekist að kreista fram sigur inni á vellinum vann Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri liðsins, persónu- legan sigur með því að mæta á völl- inn í fyrsta skipti eftir að hafa fengið heilablóðfall í vor. Jóhann Berg Guðmundsson lék einkar vel fyrir Burnley sem vann langþráðan sigur þegar liðið vann sannfærandi 4-0 sigur gegn Bourne- mouth. Þetta var fyrsti sigur liðsins í deildinni á yfirstandandi leiktíð og raunar fyrsti sigur liðsins í rúman mánuð. Síðasti sigurleikur liðsins var gegn tyrkneska liðinu Istanbul Basaksehir í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar um Engum tekist að hrifsa stig af Liverpool Liverpool er með tveggja stiga forskot á Manchester City og Chelsea eftir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla. Manchester United mistókst að leggja Wolves að velli, en nágrannaliðin Arsenal og Tottenham Hotspur höfðu betur í sínum leikjum. Jóhann Berg Guðmundsson lék svo á als oddi fyrir Burnley sem vann. Leikmaður helgarinnar Ashley Barnes, framherji Burnley, skorað tvö mörk þegar Burnley braut ísinn og vann sinn fyrsta deildarsigur á leiktíðinni. Annað marka hans kom eftir að skot Jóhanns Berg Guðmundssonar hafnaði í stönginni og hann var réttur maður á réttum stað og setti boltann yfir línuna. Barnes er framherji sem gerir hlutina á einfaldan máta og minnir á gamla tíma í enska boltanum þegar breskir framherjar voru kannski ekki þeir flinkustu, en þeim mun skilvirkari. Hann fellur eins og flís við rass við þann leikstíl sem Sean Dyche vill spila hjá liðinu. Hlutverk hans er að vera réttur maður á réttum stað og skila fyrirgjöfum eða skot- tilraunum Jóhanns Berg og félaga hans af vængjunum í markið. Því hlutverki skilaði hann með mikl- um sóma og fær því sæmdarheitið leikmaður helgarinnar. Mörkin tvö áttu þátt í að hífa Burnley upp úr fallsæti deildarinnar sem kætir stuðningsmenn liðsins ytra og hér heima. Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Manchester City minnti hressilega á sig í titilbaráttunni með því að gjörsigra lánlaust lið Cardiff. Hvað kom á óvart? Að léttleikandi og sóknar- þenkjandi liði Chelsea sem farið hefur með himinskautum á fyrstu dögum Maurizio Sarri í starfi hafi ekki tekist að brjóta varnarmúr West Ham United á bak aftur. Mestu vonbrigðin Það eru gríðarleg vonbrigði fyrir Manchester United að ná ekki að halda áfram sigurgöngu sinni i deildinni þegar liðið mætti Wolves sem er nýliði í deildinni á yfirstandandi leiktíð. Mohamed Salah, framherji Liverpool, kemur boltanum yfir línuna og skorar þriðja mark Liverpool í sigrinum gegn Southampton á laugardaginn. Salah losar þarna um stífluna sem hann hafði glímt við í markaskorun í síðustu leikjum. NoRDiCPHoToS/ GETTy 2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m Á N U D A G U r16 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 2 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 E 5 -4 F B 0 2 0 E 5 -4 E 7 4 2 0 E 5 -4 D 3 8 2 0 E 5 -4 B F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.