Fréttablaðið - 24.09.2018, Side 37

Fréttablaðið - 24.09.2018, Side 37
Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn af einni rafhlöðu sem skilar ai til þess að slípa, er léttari en snúrurokkur í sinni stærð. Sveigjanlegt rafhlöðuker sem virkar með öllum Milwaukee ® M18™ rafhlöðum. Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu) M18 FLAG Alvöru slípirokkur frá Milwaukee vfs.is Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! Nýjar vörur frá geoSilica Kísill Íslenskt kísilsteinefni Recover Fyrir vöðva og taugar Renew Fyrir húð, hár og neglur Repair Fyrir bein og liði Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. Nánari upplýsingar má fi nna á www.geosilica.is Engum tekist að hrifsa stig af Liverpool Liverpool er með tveggja stiga forskot á Manchester City og Chelsea eftir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla. Manchester United mistókst að leggja Wolves að velli, en nágrannaliðin Arsenal og Tottenham Hotspur höfðu betur í sínum leikjum. Jóhann Berg Guðmundsson lék svo á als oddi fyrir Burnley sem vann. miðjan ágúst síðastliðinn. Jóhann Berg lagði upp annað mark Burnley í leiknum, en hann sendi þá hár- nákvæma fyrirgjöf á Aaron Lennon sem kom aðvífandi á fjærstöngina og kláraði færið með góðu skoti. Þeir áttu báðir góðan leik á vængj- unum hjá liðinu. Íslenski landsliðs- maðurinn átti svo skot í stöngina sem Ashley Barnes fylgdi eftir og skilaði boltanum í netið. Burnley kom sér upp úr fallsæti með þessum sigri, en liðið er með fjögur stig og er tveimur stigum á undan Huddersfield, Cardiff og Newcastle sem eru með tvö stig hvert lið í fallsætunum. Það er gleðilegt að Jóhann Berg sé kominn á fulla ferð eftir að hafa tognað aftan í læri í upphafi tíma- bilsins og það er mikilvægt bæði í þeirri baráttu sem fram undan er hjá Burnley við að fikra sig upp töfluna og fyrir íslenska landsliðið í komandi verkefnum. Hann var í nokkrum enskum fjölmiðlum val- inn maður leiksins, en aðrir enskir fjölmiðlar heilluðust meira af frammistöðu Aarons Lennon. hjorvaro@frettabladid.is Fótbolti Lærisveinar Heimis Guð- jónssonar hjá HB urðu í gær fær- eyskir meistarar í knattspyrnu karla. Heimir tók við stjórnartaumunum hjá HB síðasta haust og gerir þar af leiðandi liðið að færeyskum meist- urum á sínu fyrsta keppnistímabili með liðið. HB fór einnig í bikarúrslit fyrr á þessari leiktíð, en tapaði þar á dramatískan hátt fyrir B36 eftir víta- spyrnukeppni. HB lagði KÍ Klaksvík að velli með tveimur mörkum gegn einu í gær og náði með þeim sigri 16 stiga forskoti á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Brynjar Hlöðvers- son sem kom til HB frá Leikni fyrir yfirstandandi leiktíð lék allan leikinn fyrir liðið, en Grétar Snær Gunnars- son sem kom frá FH í upphafi tíma- bilsins spilaði síðasta hálftímann. Þetta var 23. meistaratitill HB, en liðið hafði ekki unnið titilinn í fimm ár áður en Heimir kom til skjalanna. Hann framlengdi nýverið samning sinn um eina leiktíð og mun því stýra liðinu áfram á næsta tímabili. – hó HB varð færeyskur meistari GolF Ólafía Þór unn Krist ins dótt ir, atvinnukylfingur úr GR, hafnaði í 50. sæti á Estrella Damm-mót inu í golfi sem fram fór á Terram ar-vell in um á Spáni um helgina. Mótið er hluti af LET Evr ópu mótaröðinni, þeirri næst- sterk ustu í golfi kvenna í heiminum. Ólafía Þórunn lék hringina fjóra á sam tals þrem ur högg um und ir pari vallarins, en lokahringinn lék hún á 71 höggi, eða pari vallarins, í gær. Hún fékk þrjá fugla, þrjá skolla og tólf pör á hol un um 18 í gær. Hún lék fyrsta hringinn á einu höggi yfir pari vallarins og þann annan og þriðja á tveimur högg- um undir pari. Hollenski kylf- ingurinn Anne Van Dam vann mótið með þó nokkrum yfir- burðum, en hún lék hring- ina fjóra á 26 höggum undir pari vallarins. – hó Ólafía stóð sig vel á Spáni Mohamed Salah, framherji Liverpool, kemur boltanum yfir línuna og skorar þriðja mark Liverpool í sigrinum gegn Southampton á laugardaginn. Salah losar þarna um stífluna sem hann hafði glímt við í markaskorun í síðustu leikjum. nordicphotoS/ Getty pierre-emerick Aubameyang fagnar hér marki sínu fyrir Arsenal gegn everton í leik liðanna í gær með liðsfélaga sínum nacho Monreal. nordicphotoS/Getty Júdó Svein björn Iura komst í þriðju um ferð í 81 kg flokki á heims meist- ara mót inu í júdó sem fram fer þessa dag ana í Bakú í Aser baíd sj an. Svein- björn sat hjá í fyrstu um ferð keppn- inn ar, en mætti  Cedrick Kalonga í annarri umferðinni. Cedrick fékk refsistig  snemma í glímunni fyr ir stöðuga vörn, en skor- aði í kjölfarið waza ari. Eft ir það tók Svein björn alla stjórn í glímunni og sótti stíft án þess að skora. Svein björn fékk tæki færi í gólf glím unni og var ekki langt frá því að kom ast í fasta- tak, en Cedrick slapp með skrekk inn. Cedrick var orðinn þreytt ur undir lok glímunnar og  fékk sitt annað  refsistig  fyrir  ólög leg hand- tök. Skömmu áður en tím inn rann út fékk hann þriðja refsistigið fyr ir gervisókn, „fal se attack“, og tapaði þar af leiðandi glím unni. Svein björn féll svo úr keppni er hann tapaði í þriðju um ferð fyrir efsta manni heimslist ans, Sa eid Molla ei, sem stóð síðan uppi sem sig ur veg- ari í flokkn um. Þessi ár ang ur Svein- björns mun færa hann tölu vert ofar á heimslist anum. Eg ill Blön dal kepp ir í dag í -90 kg flokki. – hó Sveinbjörn mun hækka á heimslistanum S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ðS p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 17M Á N U d A G U r 2 4 . S e p t e M b e r 2 0 1 8 2 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E 5 -4 5 D 0 2 0 E 5 -4 4 9 4 2 0 E 5 -4 3 5 8 2 0 E 5 -4 2 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.