Fréttablaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 3 6 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r l a u g a r d a g u r 6 . o k t ó b e r 2 0 1 8
Góðir Íslendingar.
Ég hef óskað eftir því að fá að
ávarpa ykkur á þessari stundu, nú
þegar miklir erfiðleikar steðja að
íslensku þjóðinni. Heimsbyggðin
öll gengur nú í gegnum mikla fjár-
málakreppu og má jafna áhrifum
hennar á bankakerfi heimsins við
efnahagslegar hamfarir. Stórir og
stöndugir bankar beggja vegna
Atlantshafsins hafa orðið krepp-
unni að bráð og ríkisstjórnir í
mörgum löndum róa nú lífróður
til að bjarga því sem bjargað
verður heima fyrir. Í aðstæðum
sem þessum hugsar auðvitað
hver þjóð fyrst og síðast um sinn
eigin hag. Jafnvel stærstu hagkerfi
heims eiga í tvísýnni baráttu við
afleiðingar kreppunnar.
Íslensku bankarnir hafa ekki
frekar en aðrir alþjóðlegir bankar
farið varhluta af þessari miklu
bankakreppu og staða þeirra nú
er mjög alvarleg. Á undanförnum
árum hafa vöxtur og velgengni
íslensku bankanna verið ævin-
týri líkust. Mikil sóknarfæri
sköpuðust þegar aðgengi að
lánsfé á erlendum mörkuðum var
í hámarki og bankarnir, ásamt
öðrum íslenskum fyrirtækjum,
nýttu sér tækifærið til sóknar og
útrásar.
Á þessum tíma hafa íslensku
bankarnir stækkað gríðarlega
og nema skuldbindingar þeirra
nú margfaldri þjóðarframleiðslu
Íslands. Undir öllum eðlilegum
kringumstæðum væru stórir
bankar líklegri til að standa af
sér tímabundinn mótbyr en þær
hamfarir sem nú ríða yfir heims-
byggðina eru annars eðlis og
stærð bankanna í samanburði við
íslenska hagkerfið er í dag þeirra
helsti veikleiki.
Þegar alþjóðlega fjármála-
kreppan hófst fyrir rétt rúmu ári
með hruni fasteignamarkaðarins
í Bandaríkjunum og keðjuverkun
vegna svokallaðra undirmálslána
var staða íslensku bankanna talin
sterk, enda höfðu þeir ekki tekið
þátt í slíkum viðskiptum að neinu
marki. En afleiðingar þeirrar
keðjuverkunar sem þá hófst hafa
reynst alvarlegri og umfangs-
meiri en nokkurn óraði fyrir.
Á allra síðustu vikum hefur
fjármálakerfi heimsins orðið fyrir
gríðarlegum áföllum. Nokkrir
af stærstu fjárfestingabönkum
heims hafa orðið kreppunni að
bráð og lausafé á mörkuðum í
raun og veru þurrkast upp. Þetta
hefur haft þau áhrif að stórir
alþjóðlegir bankar hafa kippt að
sér höndum við fjármögnun ann-
arra banka og algjört vantraust
hefur skapast í viðskiptum banka
á milli. Af þessum völdum hefur
staða íslensku bankanna versnað
mjög hratt á allra síðustu dögum.
Góðir landsmenn.
Ríkisstjórn Íslands, Seðla-
bankinn og Fjármálaeftirlitið
hafa síðustu daga og vikur unnið
baki brotnu að lausn á þeim
gríðarlegu erfiðleikum sem steðja
að íslensku bönkunum í góðu
samstarfi við þá sjálfa. Að þeirri
vinnu hafa ýmsir aðilar komið, til
að mynda lífeyrissjóðir og aðilar
vinnumarkaðarins. Af hálfu
ríkisstjórnarinnar hefur allt kapp
verið lagt á að íslensku bank-
arnir seldu erlendar eignir sínar
og minnkuðu umsvif sín svo að
íslenska ríkið, svo smátt í saman-
burði við íslensku bankanna,
hefði bolmagn til að styðja við
bakið á þeim. Við
skulum hafa í huga í
því samhengi að þær
risastóru aðgerðir
sem bandarísk yfir-
völd hafa ákveðið
til bjargar þarlendu
bankakerfi eru
um 5% af þeirra
landsframleiðslu.
Efnahagur íslensku
bankanna er hins
vegar marg-
föld lands-
framleiðsla
Íslendinga.
Ákvörð-
un um
umfangs-
miklar
björgun-
araðgerðir
til handa
íslensku
bönk-
unum er því ekki
spurning um
að skattgreið-
endur axli þyngri
byrðar tíma-
bundið heldur
varðar hún stöðu
íslensku þjóðar-
innar í heild sinni
til langrar fram-
tíðar.
Ríkisstjórnin
hefur lýst því yfir að hún muni
gera það sem í hennar valdi
stendur til að styðja við banka-
kerfið. Í þeirri viðleitni hafa
margir mikilvægir áfangar náðst
á síðustu vikum og mánuðum. En
í því ógnarástandi sem nú ríkir
á fjármálamörkuðum heimsins
þá felst mikil áhætta í því fyrir
íslensku þjóðina alla að tryggja
bönkunum örugga líf línu. Þetta
verða menn að hafa í huga þegar
talað er um erlenda lántöku ríkis-
sjóðs upp á þúsundir milljarða
til að verja bankana í þeim
ólgusjó sem þeir eru nú staddir
í. Sú hætta er raunveruleg, góðir
landsmenn, að íslenska þjóðar-
búið myndi, ef allt færi á versta
veg, sogast með bönkunum inn
í brimrótið og afleiðingin yrði
þjóðargjaldþrot. Engin ábyrg
ríkisstjórn teflir framtíð þjóðar
sinnar í slíka tvísýnu, jafnvel þótt
sjálft bankakerfi þjóðarinnar sé í
húfi. Til slíks höfum við, ráða-
menn þjóðarinnar, ekki leyfi.
Íslenska þjóðin og framtíð hennar
gengur framar öllum öðrum hags-
munum.
Um helgina var fundað nær
linnulaust um stöðu fjármála-
kerfisins. Ég get fullyrt að allir
þeir sem komu að því borði
reyndu sitt ítrasta til að búa
svo um hnútana að starfsemi
banka og fjármálastofnana gæti
haldið áfram í dag og ávinn-
ingur af vinnu helgarinnar gerði
það að verkum að í gærkvöldi
var útlit fyrir það að bankarnir
gætu fleytt sér áfram um sinn. Af
þeim sökum gat ég þess í gær-
kvöldi að það væri mat mitt og
ríkisstjórnarinnar að ekki
væri ástæða til sérstakra
aðgerða af okkar hálfu.
Engin ábyrg stjórn-
völd kynna afdrifaríkar
aðgerðir varðandi banka-
og fjármálakerfi sinnar
þjóðar nema allar aðrar
leiðir séu lokaðar.
Þessi staða hefur nú
í dag gerbreyst til hins
verra. Stórar lánalínur við
bankana hafa lokast
og ákveðið var í
morgun að loka
fyrir viðskipti með
bankastofnanir í
Kauphöll Íslands.
Nú reynir á ábyrg
og fumlaus við-
brögð. Ég mun nú
á eftir mæla fyrir
frumvarpi á Alþingi
sem
mun
gera
ríkis-
sjóði
kleift að
bregð-
ast við
því
ástandi
sem
nú er á
fjár-
mála-
mörkuðum. Ég hef rætt við for-
ystu stjórnarandstöðunnar í dag
og fengið góð orð um að frum-
varpið verði afgreitt í dag. Þakka
ég þeim samstarfið í því efni.
Með lagabreytingum þessum
munum við aðlaga banka-
kerfið að íslenskum aðstæðum og
endurreisa traust erlendra aðila
á banka- og fjármálastarfsemi á
Íslandi. Verði lögin samþykkt í
dag má gera ráð fyrir að þessar
heimildir verði virkar strax í
kjölfarið.
Ég vil taka af öll tvímæli um að
innstæður Íslendinga og séreigna-
sparnaður í íslensku bönkunum
öllum er tryggur og ríkissjóður
mun sjá til þess að slíkar inn-
eignir skili sér til sparifjáreigenda
að fullu. Um þetta þarf enginn að
efast. Þá munu stjórnvöld sjá til
þess að atvinnulíf landsins hafi
aðgang að fjármagni og banka-
þjónustu eftir því sem frekast er
unnt.
Góðir Íslendingar.
Mér er ljóst að þetta ástand er
mörgum mikið áfall sem veldur
okkur öllum bæði ótta og angist.
Undir þeim kringumstæðum er
afar brýnt að stjórnvöld, fyrir-
tæki, félagasamtök, foreldrar og
aðrir sem geta látið gott af sér
leiða, leiti allra leiða til að daglegt
líf fari ekki úr skorðum.
Ef einhvern tímann hefur verið
þörf á því að íslenska þjóðin
stæði saman og sýndi æðruleysi
andspænis erfiðleikum – þá er sú
stund runnin upp. Ég hvet ykkur
öll til að standa vörð um það sem
mestu máli skiptir í lífi hvers
einasta manns, standa vörð um
þau lífsgildi sem standast það
gjörningaveður sem nú geisar.
Ég hvet fjölskyldur til að ræða
saman og láta ekki örvæntingu
ná yfirhöndinni þótt útlitið sé
svart hjá mörgum. Við þurfum að
útskýra fyrir börnunum okkar að
heimurinn sé ekki á heljarþröm
og við þurfum sjálf, hvert og eitt,
að finna kjark innra með okkur
til að horfa fram á veginn.
Þrátt fyrir þessi miklu áföll
er framtíð þjóðarinnar bæði
trygg og björt. Það sem mestu
máli skiptir er að undirstöður
samfélagsins og efnahagslífsins
eru traustar, þótt yfirbyggingin
gefi eftir í þeim hamförum sem
nú ríða yfir. Við eigum auðlindir,
bæði í sjó og á landi, sem munu
tryggja okkur góða lífsafkomu
sama hvað á dynur. Menntun
þjóðarinnar og sá mannauður
sem hér er til staðar er ekki síður
öfundsverður í augum annarra
þjóða en náttúruauðlindirnar.
Við höfum að sama skapi tæki-
færi til endurreisnar í fjármála-
kerfinu. Við höfum lært af þeim
mistökum sem gerð voru á hinum
miklu uppgangstímum og sú
reynsla verður okkur dýrmæt
þegar fram í sækir. Með sameigin-
legu átaki og af þeirri bjartsýni
sem einkennir íslenska þjóð
munum við komast í gegnum
þessa erfiðleika og hefja nýja og
þróttmikla sókn.
Góðir landsmenn.
Verkefni stjórnvalda á næstu
dögum er skýrt: að koma í veg
fyrir að upplausnarástand skap-
ist, ef íslensku bankarnir verða
óstarfhæfir að einhverju marki.
Til þess hafa stjórnvöld marg-
vísleg úrræði og þeim verður
beitt. Á hinum pólitíska vett-
vangi, jafnt sem annars staðar, er
mikilvægt að slíðra sverðin við
þessar aðstæður. Miklu skiptir að
við sýnum bæði stillingu og yfir-
vegun þá erfiðu daga sem nú fara
í hönd, látum ekki hugfallast og
styðjum hvert annað með ráðum
og dáð. Á þann hátt, með íslenska
bjartsýni, æðruleysi og samstöðu
að vopni, munum við standa
storminn af okkur.
Guð blessi Ísland.
… sagði Geir
H. Haarde þá-
verandi forsætis-
ráðherra við
íslenska þjóð
fyrir nákvæm-
lega tíu árum.
En hvernig
blessaðist þetta?
Og hvar eru
helstu áhrifa-
menn hrunsins
í dag?
➛ 24–30
Guð
blessi
Ísland
K R I N G L U K A S T
20–50% AFSLÁTTUR AFNÝJUM VÖRUM
FIMMTUDAG TIL MÁNUDAGS
4.–8. OKT.
SUNNUDAGUR
1 3 –1 810 –1 8
LAUGARDAGUR
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
2
-B
0
B
C
2
1
0
2
-A
F
8
0
2
1
0
2
-A
E
4
4
2
1
0
2
-A
D
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K