Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 2
Veður
Hvöss suðaustanátt með slyddu
eða rigningu á SA-, S- og V-landi, en
hríðarveður til fjalla. Hægari vindur
og þurrt NA-lands. Lægir SV til í
kvöld með skúrum. sjá síðu 48
Hugnaðist ekki mótmælin
Samtökin Reykjavík Animal Save stóðu fyrir samstöðuvöku við sláturhús SS á Selfossi í gær og mótmæltu illri meðferð dýra. Nokkrar harðar kjöt-
ætur gátu ekki hugsað sér að grænkerarnir tækju afstöðu með dýrunum og virtust, af ummælum á Facebook-síðu gagnmótmæla sinna að dæma, líta
á mótmælin sem persónulega árás á sinn lífsstíl. Brugðu þær því á það ráð að grilla SS pylsur hinum megin við götuna. Fréttablaðið/anton brink
umhverfismál Bæjarfulltrúar á Ísa-
firði íhuga að takmarka landgöngu
ferðamanna á skemmtiferðaskip-
um og vilja svör um heimildir sínar
til að að setja reglur um þyrluflug í
friðlandinu á Hornströndum.
Bæjarstjórnin ákvað í maí 2014
að takmarka verulega þyrluflug í
atvinnuskyni yfir friðlandinu. Flug-
ið yrði algjörlega bannað á sumrin
og að ekki mætti lenda þyrlum í
atvinnustarfsemi nema á viður-
kenndum lendingarstöðum sem eru
að Látrum í Aðalvík og í Fljótavík.
Í ljósi þess segir bæjarstjórnin
nú að það veki „furðu að Ferða-
þjónustufyrirtæki hafi flogið ferða-
mönnum til Hornvíkur þar sem þeir
voru skildir eftir í nokkra daga“ eins
og segir í fundargerð bæjarstjórnar.
„Ekki var leitað eftir leyfi Ísafjarðar-
bæjar né landeigenda í Hornvík
vegna þessarar ferðar. Upp komst
um þessa ferð þegar leita þurfti
aðstoðar ferðaþjónustuaðila á Ísa-
firðir til að sækja farþegana á bát
þar sem ekki var hægt að lenda í
Hornvík vegna veðurs.“
Samþykkti bæjarstjórnin að fá
svör Umhverfisstofnunar við því
hvort bærinn hafi heimild til að
banna þyrluflug og lendingar í frið-
landinu, til dæmis í gegn um skipu-
lag svæðisins. „Hver hefur heimild
til að heimila þyrluflug og lendingar
þyrlu í friðlandinu á Hornströnd-
um?“ spyrja bæjarfulltrúar
Sérstaklega er undirstrikað að í
Hornvík sé ekki viðurkenndur lend-
ingarstaður. „Þar sem ekki var um
neyðarflug að ræða er ekki heimilt
að lenda þar nema með leyfi land-
eigenda eða Ísafjarðarbæjar,“ segir
um áðurnefnt þyrluflug. Eðlilegt sé
að fá svar frá Umhverfisstofnun sem
fari með friðlýsingu svæðisins um
það hvar heimildir Ísafjarðarbæjar
liggi og hver fari með eftirlitshlut-
verk í friðlandinu.
Afgreiðslu tillögu um að tak-
marka landtöku farþega skemmti-
ferðaskipa var hins vegar frestað.
Tillagan er um að banna landtöku
skemmtiferðaskipa og farþega-
báta með fimmtíu farþega eða fleiri
nema í viðurkenndum höfnum
sveitarfélagsins.
Í tillögunni er sagt að það sé
stefna margra skemmtiferðaskipa
og þjónustuaðila þeirra fyrir árið
2020 að sniðganga hafnir á Vest-
fjörðum og bjóða gestum sínum
frekar að fara frá borði í Hornvík,
Hesteyri, Aðalvík, í minni Lóna-
fjarðar, í Dynjandisvogi og undir
Látrabjargi.
„Þeir spara þá hafnargjöld og
tekjur af ferðum gesta verða allar
eftir um borð í stað þess að deilast út
í hagkerfi sveitarfélaganna, átroðn-
ingur þessara farþega mun engu að
síður eiga sér stað innan sveitar-
félagsins og hafa áhrif á upplifun
annarra gesta sem og landeigenda
sem borga fasteignagjöld af húsum
sínum,“ segir í tillögunni sem taka
á aftur fyrir síðar. gar@frettabladid.is
Túristaþyrla í Hornvík
vekur furðu Ísfirðinga
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar vill að Umhverfisstofnun svari því hvort sveitar-
félagið geti bannað þyrluflug og -lendingar í friðlandinu á Hornströndum.
Ferðaþjónustufyrirtæki hafi brotið gegn takmörkunum sem settar voru 2014.
Ferðamenn af skemmtiferðaskipi stíga á land á Ísafirði. Fréttablaðið/Pjetur
Átroðningur þessara
farþega mun engu
að síður eiga sér stað innan
sveitarfélagsins og hafa áhrif
á upplifun annarra gesta sem
og landeigenda sem borga
fasteignagjöld af húsum.
Úr tillögu í bæjarstjórn Ísafjarðar
utanríkismál Geir H. Haarde mun
láta af störfum sem sendiherra
Íslands í Washington D.C. þann
1. júlí næstkomandi. Í staðinn tekur
hann sæti í stjórn Alþjóðabankans.
No r ð u r l ö n d i n o g Eyst ra -
saltsríkin skiptast á að eiga
f u l l t r ú a í st j ó r n b a n ka n s .
Geir var gerður að sendiherra árið
2015.
Bergdís Ellertsdóttir, fastafulltrúi
Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum
mun taka við stöðu sendiherra í
Bandaríkjunum af Geir.– smj
Geir færir sig til
í Washington
Geir H.
Haarde.
Dómsmál Lögreglumaður sem
ákærður hefur verið fyrir brot í
starfi og fyrir að hafa af gáleysi
valdið manni stórfelldu líkams-
tjóni, neitaði sök við þingfestingu
málsins í vikunni. Atvikið átti
sér stað við Hamborgarabúlluna
í Kópavogi í fyrra en lögreglu-
manninum er gefið að sök að hafa
ítrekað skellt bílhurð lögreglubíls
á fætur hins handtekna með þeim
afleiðingum að hann tvífótbrotnaði.
Hinn handtekni kærði handtök-
una en málið var látið niður falla og
ákvörðun tekin um að ákæra ekki
þá tvo lögreglumenn sem komu
að handtökunni. Sú ákvörðun var
kærð til ríkissaksóknara sem sneri
ákvörðuninni við og fól héraðssak-
sóknara að gefa út ákæru í málinu.
Brotaþolinn fer fram á 7 milljónir í
bætur. – aá
Lögreglumaður neitar sök
atvikið átti sér stað á Hamborgarabúllunni í kópavogi. Fréttablaðið/eyþór
6 . o k t ó b e r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
2
-B
5
A
C
2
1
0
2
-B
4
7
0
2
1
0
2
-B
3
3
4
2
1
0
2
-B
1
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K