Fréttablaðið - 06.10.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
®
DÍSEL 3.0L 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, HÁTT OG LÁGT DRIF, DRIFLÆSING AÐ AFTAN.
STAÐALBÚNAÐUR MA: LOFTPÚÐAFJÖÐRUN, HITI OG KÆLING Í SÆTUM, HITI Í STÝRI,
RAFDRIFINN AFTURHLERI, ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI O.M.FL. AUKAHLUTIR Á MYND DRÁTTARKRÓKAR AÐ FRAMAN.
®
JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK®
jeep.is
JEEP 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
VERÐ FRÁ 9.990.000 KR. 33” BREYTTUR VERÐ FRÁ 10.590.000 KR.
Þrjú í fréttum
Ofurhlaup,
bætur og
léttburar
Elísabet Mar-
geirsdóttir
ofurhlaupari
og næringar
fræðingur
var í 9. sæti af 60
keppendum í 409
kílómetra hlaupi í
Góbíeyðimörkinni í Asíu. Elísabet,
sem kom í mark langfyrst kvenna,
kláraði hlaupið á fjórum dögum.
Ragnar Aðal-
steinsson
hæstaréttar
lögmaður
sem var
verjandi eins
hinna sýknuðu
í Guðmundar- og
Geirfinnsmálum, sagði fásinnu
að líta til sanngirnisbótamála við
ákvörðun bóta til þeirra. Ragnar
sagði þá eiga bótakröfur sem
unnt væri að fá úrlausn um fyrir
almennum dómstólum ef ekki
semdist.
Geir Gunn-
laugsson
prófessor
sem skoðaði
hvernig heilsa
og líðan barna
var fyrir og eftir
hrun og hvað gæti
breyst á tímum efnahagskreppu,
segir börn hafa fæðst léttari eftir
hrun miðað við meðgöngulengd.
TÖLUR VIKUNNAR 30.09.2018 – 06.10.2018
17,4 milljónum
króna eyddu ráðuneytin níu undan
farið ár í leigubílaferðir. Kostnaður
utanríkisráðuneytisins
var mestur eða 6,7
milljónir
króna.
23,7%
fækkun varð á
sölu nýrra fólks
bíla í september
miðað við sept
embermánuð
í fyrra. Nú voru
nýskráðir bílar
935 talsins en
voru 1.266 í sept
ember í fyrra.
13%
var hlutfall mat
vöru af útgjöldum
heimilanna árið
2016. Fullveldis
árið 1918 fór
stærstur hluti út
gjaldi heimilanna
í matvæli eða um
helmingur.
57%
eru mót fallin
aðild Ís lands
að Evrópu sam
bandinu sam
kvæmt könnun
sem Gallup gerði
fyrir sam tökin Já Ís land. 46
prósent eru fylgjandi því að
taka upp evru í stað krónunnar.
32,1%
eigna lands
manna var í
skuld í árslok
2017. Skulda
hlutfallið hefur
ekki verið
svona lágt
síðan 1992 en
þá var það 30,9
prósent.
586
byggingar eru á miðhálendinu
samkvæmt skýrslu Skipulagsstofn
unar. Aðeins 60 prósent þeirra eru
skráð í fasteignaskrá þjóðskrár.
UMHVERFISMÁL „Það er öllum ljóst
að þetta er brýnt úrlausnarefni.
Bæjarstjórnin vill hins vegar stíga
varlega til jarðar þegar kemur að því
að bæta við urðunarstað í sveitar-
félaginu,“ segir Elliði Vignisson,
bæjarstjóri Ölfuss, en meirihluti
bæjarstjórnar samþykkti í síðustu
viku tillögu um að hafna nýtingu
Nessands fyrir urðunarstað.
Í viljayfirlýsingu sorpsamlaga
á Suðvesturlandi, sem undirrituð
var í apríl síðastliðnum, segir að
nauðsynlegt sé að þessir aðilar sam-
einist um lausnir eins og kostur er.
Hámarkshagkvæmni verði náð
með því að hver og einn leggi sitt til
lausna sem nýst geti öðrum.
Meðal þessara lausna er fyrir-
huguð gas- og jarðgerðarstöð Sorpu
á Álfsnesi sem ætlað er að breyta
lífrænum úrgangi í lífdísil og sorp-
brennsla Kölku á Reykjanesi. Fyrir
liggur að urðun verði hætt í Álfs-
nesi 2020 og finna þarf stað fyrir
urðun óvirks úrgangs. Var nýr urð-
unarstaður hugsaður sem framlag
Suðurlands í þetta samstarf.
„Við höfum verið í viðræðum við
Sorpstöð Suðurlands um urðunar-
stað sem tæki að hluta til við af Álfs-
nesi. Þessi ákvörðun bæjarstjórnar
Ölfuss kemur mér svolítið á óvart
því það hefur legið í loftinu að það
væri vilji fyrir þessu. Þarna yrðu um
20 þúsund tonn urðuð á ári og ekki
yrði um að ræða úrgang sem rotnar
eða fýkur,“ segir Björn H. Halldórs-
son, forstjóri Sorpu.
Elliði segir að ýmislegt hafi breyst
frá því 2009 þegar Nessandur hafi
verið talinn ákjósanlegur staður
fyrir urðun. „Matvælavinnslan er
nær og sérstaða Ölfuss sem mat-
væla klasa hefur breyst. Svo höfum
við hér fyrirtæki í vatnsútflutningi.“
Hann bendir á að urðunarstaður
hafi verið í sveitarfélaginu fram til
2009. Nessandur hafi aðeins verið
einn af níu stöðum sem hafi þótt
koma til greina. „Það þarf að setja
aukna áherslu á að leysa þetta og
við munum fara í þá vinnu með
okkar samstarfsaðilum,“ segir Elliði.
Fulltrúar O-listans í bæjarstjórn
Ölfuss greiddu atkvæði gegn til-
lögunni um að hafna urðunarstað
á Nessandi. Í bókun minnihlutans
segir að það sé samfélagsleg ábyrgð
að taka þátt í því að leita lausna í
þessum málaflokki. Engar forsend-
ur séu fyrir því að leggjast gegn því
að viðkomandi urðunarstaður verði
áfram skoðaður sem valmöguleiki.
Jón Valgeirsson, sveitarstjóri
Hrunamannahrepps og formaður
stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands,
segir samvinnu á þessu sviði mikil-
væga og að styrkleikar hvers aðila
séu nýttir.
„Þessi gamla ímynd af sorpurðun
á ekki lengur við. Þetta er allt annað
í dag þegar búið er að taka lífræna
úrganginn út og engin lyktarmál
fyrir hendi. Hugmyndafræðin er
samt sú að urða sem allra minnst.
Aukin áhersla á endurvinnslu og
endurnýtingu gerir það að verkum
að eftir standa efni sem eru frekar
föst og ekki fokgjörn.“
Hann segir enga niðurstöðu
komna í málið en finnist rétti stað-
urinn eigi þetta ekki að vera neitt
mál. „Við ákváðum að halda áfram
að skoða okkar möguleika en það
þarf að kanna möguleikana á svæð-
inu betur. Nú reynum við að spýta
í lófana og sjá hvort við getum ekki
leyst þetta.“ sighvatur@frettabladid.is
Finna þarf urðunarstað fyrir
óvirkan úrgang á Suðurlandi
Meirihluti bæjarstjórnar Ölfuss vill ekki nýjan sorpurðunarstað í sveitarfélaginu. Urðunarstaðurinn hafði
verið hugsaður sem framlag Suðurlands í samvinnu sorpsamlaga á Suðvesturlandi. Formaður stjórnar
Sorpstöðvar Suðurlands segir að spýta þurfi í lófana til að leysa málið og að ímynd urðunar hafi breyst.
Sífellt minna sorp er urðað en eftir stendur úrgangur eins og múrbrot, gler og uppmokstur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
6 . o K T ó b E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R4 F R é T T I R ∙ F R é T T A b L A ð I ð
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
2
-C
9
6
C
2
1
0
2
-C
8
3
0
2
1
0
2
-C
6
F
4
2
1
0
2
-C
5
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K