Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 10
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2019
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og
tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
• Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
• Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu.
• Áfengis, vímu- og tóbaksvarnir.
• Verkefni sem tengjast kynheilbrigði.
• Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.
Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum:
• Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi
• Stefna í áfengis- og vímuvörnum til 2020
• Stefna og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til 2020
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu.
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr
markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn
og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Opnað verður fyrir umsóknir þann 20. september en umsóknarfrestur rennur út
þann 15. október 2018. Sótt er um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs,
http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/.
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
Dómsmál „Vonandi lýkur þessu
hér,“ segir Ingibjörg Dögg Kjart-
ansdóttir, ritstjóri Stundarinnar,
sem hafði í gær betur gegn Glitni í
lögbannsmálinu svokallaða fyrir
Landsrétti.
Rétturinn staðfesti niðurstöðu
Héraðsdóms Reykjavíkur um
að fella úr gildi lögbann sýslu-
manns á fréttaflutning byggðan á
gögnum úr bankanum. Umfjöllun
Stundarinnar og Reykjavik Media,
fjölmiðlafyrirtækis Jóhannesar Kr.
Kristjánssonar, um málefni Bjarna
Benediktssonar og fjárfestingar
hans fyrir hrun vakti mikla athygli.
Lögbann hefur hvílt á Stundinni
frá 16. október í fyrra og þrátt fyrir
sigurinn fyrir Landsrétti í gær eru
hendur Stundarfólks og Reykjavik
Media enn bundnar. Lögbanninu
verður nefnilega ekki aflétt fyrr en
Glitnir hefur tekið ákvörðun um
hvort félagið láti reyna á að áfrýja
málinu til Hæstaréttar eða ekki.
„Það er mjög mikilvægt að fá
niðurstöðu í þetta mál. Það er
algjörlega óásættanlegt fyrir lýð-
ræðislega umræðu að hægt sé að
leggja lögbann á fréttaflutning, og
að sýslumaður geti ruðst inn á rit-
stjórnir og gengið fram með þessum
hætti,“ sagði Ingibjörg Dögg. – sks
Stundin lagði Glitni aftur
Ingibjörg Dögg og Jón Trausti, ritstjórar Stundarinnar. FréTTablaðIð/ErnIr
Það er mjög mikil
vægt að fá niður
stöðu í þetta mál.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir,
ritstjóri Stundarinnar
Noregur Nadia Murad og Denis
Mukwege hljóta friðarverðlaun
Nóbels í ár. Um þetta tilkynnti nób-
elsnefndin í Ósló í gær og sagði Beritt
Reiss-Andersen formaður að tví-
eykið hlyti verðlaunin fyrir „baráttu
þeirra fyrir því að hætt verði að nota
kynferðisofbeldi sem vopn í stríði“.
Hin 25 ára Murad er næstyngsta
manneskjan til að fá verðlaunin.
Hún er af þjóðflokki Jasída og var
á meðal þeirra fjölmörgu stúlkna
og kvenna sem hryðjuverkasam-
tökin sem kenna sig við íslamskt ríki
hnepptu í kynlífsþrældóm. Frá því
hún slapp hefur hún verið ein hávær-
asta rödd Jasída, talað gegn mansali
og fyrir því að alþjóðasamfélagið
beiti sér af hörku gegn þeim sem
beita kynferðisofbeldi sem vopni.
Kvensjúkdómalæknirinn Muk-
wege er öllu eldri, 63 ára, og hefur
með samstarfsmönnum sínum
meðhöndlað um 30.000 þolendur
kynferðisofbeldis. Hann hefur áður
fengið mannréttindaverðlaun SÞ og
var útnefndur Afríkumaður ársins
2009. Það var árið 1999 sem fyrsti
þolandinn kom á spítala Mukwege.
Henni hafði verið nauðgað og
skotið hafði verið úr byssu á kyn-
færi hennar og læri. Síðar átti Muk-
wege eftir að meðhöndla fleiri slíka
þolendur. – þea
Tvö fengu
friðarverðlaun
Jasídi og Kongómaður
fengu friðarverðlaun
Nóbels fyrir baráttu gegn
nauðgunum. Jasídinn
lifði af kynlífsþrælkun
ISIS en Kongómaðurinn
er læknir sem hefur
meðhöndlað tugi þús-
unda þolenda.
Þessi verðlaun eru
viðurkenning á
þeim þjáningum og skorti á
bótum til þeirra kvenna sem
eru fórnarlömb nauðgunar
og kynferðisofbeldis alls
staðar í heim
inum.
Denis Mukwege
Ég deili þessum
verðlaunum með
öllum Jasídum, Írökum,
Kúrdum, öðrum minnihluta
hópum sem eiga undir högg
að sækja og hinum óteljandi
þolendum
kynferðis
ofbeldis.
Nadia Murad
6 . o k t ó b e r 2 0 1 8 l A u g A r D A g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
2
-E
B
F
C
2
1
0
2
-E
A
C
0
2
1
0
2
-E
9
8
4
2
1
0
2
-E
8
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K