Fréttablaðið - 06.10.2018, Side 12
Í dag er sléttur mánuður þar til Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu. Skoðanakönn-unum og stjórnmálaskýr-endum í Bandaríkjunum ber saman um að Demókratar séu
líklegir til þess að fá meirihluta sæta
í fulltrúadeildinni. Eins og stendur
hafa Repúblikanar 235 sæti, Demó-
kratar hafa 193 og og sjö eru auð.
218 sæti duga til að mynda einfaldan
meirihluta.
Það væru engin óvænt tíðindi að
Demókratar bættu við sig sætum í
kosningunum, sem fara fram eftir
sléttan mánuð. Það er nærri algild
regla að flokkur forsetans tapi í
kosningum á miðju kjörtímabili
hans. Ekki bætir úr skák að Donald
Trump mælist óvinsælli en Barack
Obama gerði árið 2010. Þá sögðust
45,5 prósent styðja forsetann, nú
42,2 prósent.
Donald Trump og aðrir Repúbl-
ikanar hafa því hvatt íhaldssama
kjósendur eindregið til þess að skila
sér á kjörstað. „Eina ástæðan fyrir því
að kjósa Demókrata er sú að þú sért
orðinn þreyttur á því að sigra,“ tísti
Trump forseti til að mynda í vikunni.
Ítarlegasta útgáfa spálíkans töl-
fræðisíðunnar FiveThirtyEight tekur
tillit til skoðanakannana, fjáröflunar
flokkanna, sögunnar og fleiri þátta.
Samkvæmt því eru 28,8 prósenta
líkur á því að Repúblikanar haldi
meirihluta sínum. Líkurnar á því að
Demókratar nái meirihluta eru þá
71,2 prósent.
Almennt eru bandarískir kjós-
endur ósáttir við störf fulltrúadeild-
arinnar en sáttir við sinn fulltrúa.
Er það því venjulega töluvert auð-
veldara að verja sæti sitt en að hirða
sæti af sitjandi þingmanni. Það bætir
því ekki úr skák fyrir Repúblikana
að mun fleiri þingmanna flokksins
eru að hætta á þingi en er raunin hjá
Demókrötum. Alls eru 39 Repúbl-
ikanar að segja það gott og er það
mun hærri tala en í undanförnum
kosningum.
Stefnir í sigur
Demókrata
Útlit er fyrir að Demókratar taki fulltrúadeildina.
Virðast ætla að bæta við sig um það bil þrjátíu sæt-
um. Metfjöldi Repúblikana hættir á þingi.
M jótt er á munum í öldungadeild-inni eins og staðan er nú, fyrir kosningar. Repúblikanar
hafa 51 sæti og Demókratar 47.
Tveir eru óháðir en þeir greiða alla
jafna atkvæði með Demókrötum og
má því segja að staðan í öldunga-
deildinni sé í raun 51-49. Í ljósi þess
að varaforsetinn Mike Pence hefur
oddaatkvæði mega Repúblikanar
við því að tapa einu sæti án þess að
tapa völdum.
Eins og venjulega er einungis
kosið um þriðjung öldungadeildar-
þingsæta. Þau eru reyndar 35 talsins
í ár. Ætti því að vera mögulegt fyrir
Demókrata að ná meirihluta í ljósi
óvinsælda ríkisstjórnar Trumps. En
málið er flóknara en svo.
Af þeim 35 sætum sem kosið er
um þurfa Demókratar og hinir tveir
óháðu að verja 26 sæti. Þar af tíu í
ríkjum sem Trump vann í forseta-
kosningunum 2016. Þeir þurfa því
að treysta á að vinna tveimur fleiri
sæti en þeir tapa.
Samkvæmt spálíkani FiveThirty-
Eight eru 78,7 prósenta líkur á að
Repúblikanar haldi meirihluta en
einungis 21,3 prósenta líkur á að
Demókrötum takist ætlunarverk
sitt. Forskot Repúblikana í könnun-
um hefur aukist undanfarnar vikur
á meðan mál Bretts Kavanaugh, sem
Trump hefur tilnefnt til hæstaréttar,
hefur verið í hámæli.
Þau sæti sem Repúblikanar halda
nú og jöfnust barátta er um eru í
Tennessee, þar sem Repúblikani
leiðir með hálfu prósenti sam-
kvæmt meðaltali skoðanakannana
sem RealClearPolitics tekur saman,
í Nevada leiðir Demókrati með 2,3
prósentum, í Arizona leiðir Demó-
krati með 3,5 prósentum og í Texas
leiðir Repúblikani með 4,6 pró-
sentum.
Fimm sæti Demókrata þykja hins
vegar afar viðkvæm. Útlit er fyrir að
Demókratar tapi sæti sínu í Norður-
Dakóta, en þar leiðir Repúblikani nú
með 8,7 prósentum. Meiri spenna er
í Flórída þar sem Demókrati leiðir
með 2,4 prósentum, Indiana þar
sem Demókrati leiðir með 2,5 pró-
sentum, Missouri þar sem Repúbl-
ikani leiðir með 0,4 prósentum og
Montana þar sem Demókrati leiðir
með þremur prósentum.
Gangi þessar skoðanakann-
anir eftir myndu Demókratar
tapa tveimur af sætum sínum.
Þeir myndu þó vinna tvö sæti af
Repúblikönum. Staðan yrði sem
sagt óbreytt í öldungadeildinni.
Repúblikanar
með forskot
Útlit er fyrir að Repúblikanar haldi meirihluta í öld-
ungadeildinni. Eru líklegri til að bæta við sig sætum.
Demókratar í íhaldssömum ríkjum í vondri stöðu.
Kosið er um ríkisstjórastólinn í
36 af 50 ríkjum Bandaríkjanna. Eins
og stendur halda Repúblikanar 33
ríkisstjórasetrum, Demókratar sex-
tán og einn er óháður. Samkvæmt
spá RealClearPolitics er útlit fyrir
að Repúblikanar haldi að minnsta
kosti 23 sætum og Demókratar
19 en í átta ríkjum er afar mjótt á
munum.
Einna mest spennandi er baráttan
í Flórída. Þar mætast algjörlega and-
stæðir pólar bandarískra stjórn-
mála. Demókratinn Andrew Gillum
er á meðal þeirra frjálslyndustu í
flokki sínum en Repúblikaninn Ron
DeSantis er harður íhaldsmaður. Í
síðustu tveimur könnunum sem
birst hafa mælist Gillum með eins
prósentustigs forskot. Forskot hans
hefur farið minnkandi undanfarnar
vikur en stóð til að mynda í fimm
prósentustigum um miðjan sept-
ember.
Demókratar mælast sigurstrang-
legri í flestum öðrum ríkjum þar
sem mjótt er á munum. Það er að
segja í Wisconsin, Oregon, Ohio,
Nevada og Iowa.
Einnig er spenna í Georgíu þar
sem Repúblikani mælist með 0,5
prósenta forskot og í Kansas þar
sem Repúblikani mælist með eins
prósents forskot.
Demókratar virðast svo líklegir
til þess að hirða fjóra stóla sem
Repúblikanar halda og Repúblik-
anar eru líklegir til að taka stól hins
óháða.
Verði þetta raunin myndu
Repúblikanar samtals halda 25
ríkisstjórastólum og Demókratar 25.
Ríkisstjórastólar gætu skipst jafnt
Hlutverk þingsins
og fyrirkomulag
Bandaríska þingið skiptist í tvær
deildir, fulltrúa- og öldunga-
deild. Þingið fer með löggjafar-
valdið. Forseti hefur takmarkað
neitunarvald og getur sjálfur
gefið út tilskipanir.
Nokkur munur er á starfi
deilda þingsins sem og
fyrirkomulagi þeirra. Hvert ríki
Bandaríkjanna sendir þingmenn
í báðar deildir. Mismargir sitja í
fulltrúadeild þingsins frá hverju
ríki Bandaríkjanna. Fjöldi þing-
manna hvers ríkis er ákveðinn
með tilliti til íbúafjölda ríkisins.
Þannig eru einhver ríki bara
með einn þingmann í fulltrúa-
deildinni á meðan önnur eru
með tugi. Tveir fara hins vegar
frá hverju ríki í öldungadeildina,
algjörlega óháð íbúafjölda.
Sömuleiðis eru kjörtímabilin
mislöng. Öldungadeildarþing-
menn sitja í sex ár en fulltrúa-
deildarþingmenn tvö. Þess
vegna er bara kosið um rétt
rúman þriðjung sæta í öldunga-
deildinni nú en öll sæti í full-
trúadeildinni.
Hlutverk deildanna er líka
misjafnt. Öldungadeildin getur
ein samþykkt milliríkjasamn-
inga og skipun embættismanna,
líkt og margir gætu hafa tekið
eftir í máli Bretts Kavanaugh
undanfarna daga. Hins vegar
sér fulltrúadeildin um almenna
alríkislöggjöf.
Varaforseti gegnir ávallt hlut-
verki forseta öldungadeildar-
innar en meirihlutinn kemur
sér saman um forseta fulltrúa-
deildar. Ef atkvæðagreiðslur í
öldungadeild enda í jafntefli
sker varaforsetinn úr um niður-
stöðuna.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Eina ástæðan fyrir
því að kjósa Demó-
krata er sú að þú sért orðinn
þreyttur á því að sigra.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna
Andstæðir pólar banda-
rískra stjórnmála berjast um
Flórída. Íhaldsmaður saxar á
forskot frjálslynds sem
mælist nú eitt prósent.
161
örugg sæti Demókrata
173
örugg sæti Repúblikana
Fulltrúadeild samkvæmt könnunum Staðan í öldungadeildinni samkvæmt skoðanakönnunum
14
18
36
20
13
Ríkisstjórar samkvæmt könnunum
Örugg sæti Re-
públikana
Sigur Re-
públikana
líklegur
Hallast að Re-
públikönum
Mjótt á
munum
Ekki kosið um
í ár
Hallast að
Demókrötum
Sigur Demó-
krata líklegur
Örugg sæti
Demókrata og
frjálslyndra
óháðra
6 . o k t ó b e R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R12 F R é t t i R ∙ F R é t t A b L A ð i ð
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
2
-D
8
3
C
2
1
0
2
-D
7
0
0
2
1
0
2
-D
5
C
4
2
1
0
2
-D
4
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K