Fréttablaðið - 06.10.2018, Page 16
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Við getum
ekki farið um
flugvöll,
keypt bensín
eða hósta-
mixtúru án
þess
að á vegi
okkar verði
stæðurnar af
snakki,
sælgæti og
hvers kyns
óhollustu.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og eira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M12™ rafhlöðum.
Verð 16.990 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
frá Milwaukee
vfs.is
Mildan vormorgun árið 2011 gekk Catherine Oxenberg eftir Venice Beach í Los Angeles ásamt nítján ára dóttur sinni, Indiu. India
átti sér þann draum heitastan að opna bakarí og hafði
Catherine skráð mæðgurnar á námskeið í rekstri fyrir-
tækja. Þann dag upphófst áralöng martröð kvennanna
tveggja.
Sex árum síðar fékk Catherine símtal frá kunningja-
konu. „Þú verður að bjarga Indiu.“
Þegar Catherine hitti Indiu næst var hún horuð,
fáskiptin, sljó og farin að missa hárið.
Catherine vildi helst ekki spyrja – hún óttaðist
svarið. En líf dóttur hennar lá við. „Er búið að brenni-
merkja þig?“
India hikaði. „Já, mamma, það er búið að brenni-
merkja mig. Og hvað með það?“
Örþrifaráð
Í mars síðastliðnum var Keith Raniere, leiðtogi „sjálf-
hjálparhópsins“ NXIVM, handtekinn grunaður um
mansal og kynlífsþrælkun. Var honum gefið að sök að
halda úti þaulskipulögðu „þrælakerfi“ þar sem konum
var gert að stunda með honum kynlíf, þær voru
sveltar, heilaþvegnar og brennimerktar með upphafs-
stöfum hans.
Það sem Catherine Oxenberg hafði talið námskeið
um fyrirtækjarekstur reyndist sjálfstyrkingarnám-
skeið NXIVM. India gekk til liðs við samtökin og sökk
djúpt í kviksyndi sértrúarsafnaðarins.
Þegar Catherine missti allt samband við dóttur sína
einsetti hún sér að heimta hana úr helju. Catherine
tókst að fá Indiu til að mæta á fund með fjölskyldunni.
India lét ekki segjast. Næst leitaði Catherine til lög-
reglunnar. Enginn vildi hlusta. Catherine átti ekki
annarra kosta völ en að grípa til örþrifaráða. Hún fór
með málið í fjölmiðla.
Eftir að Catherine, sem þekkt er fyrir leik sinn í
sápuóperunni Dynasty, lýsti vegferð dóttur sinnar í
dagblaðinu The New York Times gengu yfirvöld loks
í málið. Réttarhöld yfir Raniere hefjast í janúar næst-
komandi.
Hrollvekjandi snertiflötur
Skandall skekur Orkuveitu Reykjavíkur. Skemmst er
frá því að segja að Bjarni Már Júlíusson var rekinn úr
stöðu framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, dóttur-
félags OR, fyrir óviðeigandi hegðun og Bjarni Bjarna-
son, forstjóri OR, steig tímabundið til hliðar á meðan
úttekt er gerð á vinnustaðamenningu fyrirtækisins.
Aðdragandi málsins er brottrekstur Áslaugar Thelmu
Einarsdóttur sem gegndi starfi forstöðumanns ein-
staklingsmarkaðar Orku náttúrunnar. Telur Áslaug að
rekja megi uppsögn sína til þess að hún hafi ítrekað
kvartað við starfsmannastjóra fyrirtækisins undan
óviðeigandi hegðun Bjarna Más í garð kvenkyns
starfsmanna og viðskiptavina fyrirtækisins.
Til að forða lögfræðideild Orkuveitunnar frá því að
fara á límingunum skal það tekið fram strax að hér
stendur alls ekki til að líkja fyrirtækjamenningu OR
við sóðalegan kynlífs-költ. Við bíðum eftir niðurstöð-
um úttektarinnar. Það er þó hrollvekjandi snertiflötur
á máli Orku náttúrunnar og NXIVM.
Rotin vinnustaðamenning
#metoo byltingin hófst er leikkonur í Hollywood
greindu annars vegar frá kynferðisofbeldi sem þær
höfðu orðið fyrir í starfi og hins vegar atvinnumissi í
kjölfar þess að þær reyndu að segja frá.
Flestum var ljóst í kjölfar #metoo að fauskum og
níðingum yrði ekki útrýmt með einu myllumerki. Eitt
töldu þó flestir hafa áunnist: Þögnin var rofin.
Mál Áslaugar bendir hins vegar til annars. Í átján
mánuði kvartaði Áslaug undan hegðun yfirmanns eftir
þeim boðleiðum sem OR bauð upp á. Á hana var þó
ekki hlustað fyrr en hún greip til örþrifaráða – þeirra
sömu og Catherine Oxenberg. Ekkert var gert til að huga
að rotinni vinnustaðamenningu OR fyrr en málið rataði
í fjölmiðla.
Á dögunum kom út bók um mál Catherine Oxenberg.
Endalokin eru hamingjurík: Catherine og dóttir hennar
eru sameinaðar á ný. Áslaug hefur hins vegar ekki fengið
lok sinna mála. Áhorfendur bíða óþreyjufullir loka-
þáttar sápuóperunnar Skömm Orkuveitunnar.
Orkuveitan og kynlífs-költið
Meðaljóninn í okkar heimshluta brennir um það bil fimmtungi þeirra hitaeininga sem afi hans og amma gerðu í daglegu amstri. Ræktin, fjallgöngur, útihlaup og hreyfing til
heilsubótar er ekki talið með.
Skortir okkur agann sem forfeðurnir bjuggu yfir?
Erum við kærulausari, látum okkur eigin heilsu og
velferð barna okkar í léttu rúmi liggja? Auðvitað
ekki. En eðli vinnu hefur breyst og freistingarnar eru
allt í kring. Hvernig snúum við þessu við – náum hinu
langþráða jafnvægi milli matar og hreyfingar, hinum
gullna meðalvegi sem allflestir fetuðu áður fyrr?
Íslendingar eru meðal feitustu þjóða. Viðbúið er
að senn komi að skuldadögum. Uppgjörið snertir
ekki einungis þá sem glíma við aukakílóin og sjúk-
dómana, sem tengjast óhófinu, og þeirra fólk. Heil-
brigðiskerfið er rekið fyrir skattfé. Þetta snertir alla.
Og þar spilar mataræðið langstærsta rullu og svo
hreyfingin.
Upp úr 1980 fór af stað mikil herferð gegn fitu.
Þegar fitan fór út af matseðlinum kom viðbættur
sykur í staðinn. Einnig fór að bera meira á unninni
matvöru. Því sem náttúran býður var skipt út fyrir
matvöru sem maðurinn sjálfur hafði fundið upp og
átt við.
Varla þarf að leita lengi á Íslandi til að sjá að
matarvenjum okkar er stórlega ábótavant. Við
hringveginn eru sykraðir gosdrykkir, unnar kjöt-
vörur og sælgæti meira áberandi en einfaldur, hollur
matur. Ekki bara hér á landi. Við getum ekki farið
um flugvöll, keypt bensín eða hóstamixtúru án þess
að á vegi okkar verði stæðurnar af snakki, sælgæti og
hvers kyns óhollustu.
Sjálft höfuðvígi heilsunnar – Landspítalinn – er
ekki barnanna bestur. Furðulegt er að sjúklingar,
sem fá úrvals þjónustu frá læknum og hjúkrunar-
fólki, fái matarbakka sem hæfir þorrablóti.
Meðal Bandaríkjamaður innbyrðir 36 kíló af fitu
árlega og setur 8000 teskeiðar af sykri inn fyrir varir
sínar. Gosdrykkjaþamb vegur þungt. Meðalþambið
er 215 lítrar. Það er ekki lítið. Rannsóknir sýna, að
þegar 100 manns sem berjast við aukakílóin fara í
megrun og æfa reglulega – eru færri en fimm þeirra
enn að tveimur árum síðar.
Uppeldi ræður miklu um mataræði og hreyfingu.
Foreldrum ber að leiðbeina börnum sínum um hollt
mataræði og hvetja þau til hreyfingar. En fólki sem
ekki hefur úr miklu að spila er vorkunn. Það kostar
mikla peninga að borða hollan mat og tómstundir
eru rándýrar. Þarna þarf hið opinbera – ríki og
sveitarfélög – að stíga inn. Skattkerfið á að hvetja til
neyslu hollari fæðu. Skipuleg hreyfing á að vera fyrir
alla – veigamikill hluti af skólagöngu.
Við gerum ábyggilega margt vel á Íslandi í þessum
efnum. Ef marka má afrek landans í alþjóðlegum
íþróttum er hann duglegur að hreyfa sig. En betur
má ef duga skal. Við erum meðal feitustu Evrópu-
þjóða. Leiðin til að reka af sér slyðruorðið er vel
þekkt. Við þurfum að sameinast um að feta einstigið
milli hófsemi í mat og drykk og hollrar hreyfingar.
8000 teskeiðar
6 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
2
-B
0
B
C
2
1
0
2
-A
F
8
0
2
1
0
2
-A
E
4
4
2
1
0
2
-A
D
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K