Fréttablaðið - 06.10.2018, Side 22
Dr. Teitur Guðmunds-
son gefur lesendum góð
ráð til að verjast pestum
vetrarins.
Flensur og kveisur?
– Hvernig er best að verjast því að
fá flensu og kveisur vetrarins?
Við vitum að það ganga mjög
margar pestir yfir haust- og vetrar-
mánuðina, inflúensan kemur iðu-
lega um miðjan vetur og er þá
bólusetning ágætis vörn. Það að
bólusetja sig reglulega byggir upp
ónæmi gegn flensuveiru sem er á
hverju ári nýr stofn og þess vegna
þarf að framkvæma bólusetninguna
árlega. Almenna reglan er svo sú að
fara vel með sig, fá nægan svefn
og huga að streituþáttum og vel-
líðan, álag hefur dempandi áhrif á
ónæmis kerfið og viðbragð þess.
– Á hverju á fólk að vara sig?
Það er ágætt að hafa það í huga
að flest smit eru dropa- og snertis-
mit, þannig að mikil nálægð við
veika einstaklinga getur valdið
veikindum og smiti, handþvottur er
ágæt regla líka til að draga úr líkum
á smiti.
– Áttu einhver góð ráð um matar
æði eða lífsstíl sem fólk ætti að
fylgja?
Þetta er mjög einstaklingsbundið
auðvitað en með vísan til þess sem
segir hér að ofan er aðalatriðið að
vera í góðu jafnvægi. Almennt má
segja að næringarríkur matur, fjöl-
breyttur og ferskur sé lykil atriði.
Skyndifæði og unnin matvara er
ekki skynsamleg almennt burtséð
frá því hvaða tími ársins er. Ávextir
og grænmeti eru rík af vítamín-
um og bætiefnum, sérstaklega
sítrusávextir.
– En bætiefni og vítamín?
Bætiefni og vítamín
fáum við flest hver
með réttu mataræði
og ef upptaka í
líkamanum er í
lagi. Það má þó
segja að líklega
fáum við ekki
nóg af D-víta-
míni og það má
bæta það upp sérstaklega.
Ýmis bætiefni eru nefnd til sög-
unnar líkt og C-vítamín, sink, ýmis
andoxunarefni og margt fleira. Flest
eru vítamínin vatnsleysanleg svo
það er erfitt að gera sér illt, B-víta-
mín hafa löngum verið notuð og við
vitum að þau dempast við streitu og
álag. Hin fituleysanlegu geta verið
varhugaverðari og ætti ekki að taka
inn í óhófi en það eru A-, D-, E- og
K-vítamín.
– Hvernig styrkir fólk ónæmis
kerfið ef það hefur hug á því?
Best er að hreyfa sig reglulega,
borða hollan mat og ferskan, elda
sjálfur og njóta, huga að svefninum
sérstaklega, að fá nægan svefn, og
draga úr streitu og álagi almennt ef
hægt er eru svona þessi hefbundnu
ráð. Það getur svo verið skynsam-
legt að iðka slökun og hugleiðslu
eða jóga til viðbótar. – kbg
Gott
Jóga og hugleiðsla
Sítrusávextir
Hollur heimalagaður matur
C-, B- og D-vítamín
Sink
Handþvottur
Hreyfing
Slæmt
Skyndifæði og unnin matvara
Streita og álag
Það er ágætt að hafa það í huga að
flest smit eru dropa- og snertismit,
þannig að mikil nálægð við veika
einstaklinga getur valdið veikindum
og smiti.
Slökun, sítrusávextir
og hollur
heimalagaður matur
Lax og egg eru matartegundir ríkar af d-vítamíni.
Heitt sítrónuvatn er mikil heilsubót.
Jóga styrkir og mýkir líkamann.
Það er ráð að þvo hendur til að forðast smit.
B-vítamínforðinn minnkar undir álagi.
Dr. Teitur Guðmundsson
leggur áherslu á gott mataræði,
slökun og hreyfingu.
Um helgina
Meira á www.frettablaðið.is.
Vefurinn Doktor.is hefur eignast
annað heimili á Lífinu á
www.frettabladid.is.
Sjónvarp: Hryllingur í október
Hryllingur verður alls ráðandi á stærstu veitunum, Netflix,
Hulu og Amazon Prime. Á Netflix verða teknar til sýninga
hin klassíska hryllingsmynd The Shining, Truth or Dare og
The Hunting of Molly Hartley. Þá verður einnig frumsýnd
Netflix-myndin The Haunting of Hill House. Á Hulu verða
American Psycho og Anaconda. Amazon Prime sýnir The
Amityville Horror, Curse of Chucky, Jeepers Creepers 2 og
The Texas Chainsaw Massacre 2.
Bók: Sænsk
gúmmístígvél
Stíll Hennings
Mankell er bæði
margslunginn og
fallegur. Óhætt
er að mæla með
nýútkominni
bók hans, Sænsk
gúmmístígvél, um
hinn sjötuga ein-
búa Fredrik Welin
sem vaknar upp
við að húsið hans
brennur. Hann
kemst undan en
allt er horfið og
hefst þá uppgjör.
Fyrir börnin:
Bangsi litli í skóginum
Franski rithöfundurinn og teiknarinn
Benjamin Chaud er væntanlegur
hingað til lands. Nýlega kom út bók
hans Bangsi
litli í skóginum
sem heillar
bæði börn og
fullorðna sem
lesa. Textinn
er hnyttinn
og teikning-
arnar undur-
fallegar og
skemmti-
legar. Bangsi
litli lendir í miklum ævintýrum
þegar hann ákveður að hætta að vera
björn og verða krakki.
Myndlist: Véfréttir
í Listasafninu
Í Listasafni Íslands verður
í dag opnuð sýningin Vé-
fréttir. Sýnd verða verk úr
samnefndri myndröð Karls
Einars-
sonar
Dung-
anon
(1897-
1972).
Einnig
verða
til sýnis
ljóð, úr-
klippu-
bækur
og
önnur skjöl Dunganons sem
Þjóðskjalasafn Íslands varð-
veitir og lánar á sýninguna.
6 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
2
-E
7
0
C
2
1
0
2
-E
5
D
0
2
1
0
2
-E
4
9
4
2
1
0
2
-E
3
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K