Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 26
með áleggjunum frá Stjörnugrís
Eini íslenski framleiðandinn sem framleiðir
eingöngu úr íslensku grísakjöti
Þú finnur áleggin frá Stjörnugrís í öllum betri matvöruverslunum um land allt. www.svinvirkar.is
Afdrif áhrifamanna
í bankakerfinu
Bankastjórar, stórir hluthafar í bönkunum og aðrir áhrifamenn
í fjármálalífinu hurfu margir hverjir úr sviðsljósinu í kjölfar fjár-
málahrunsins. Flestir þeirra hafa þó náð að fóta sig að nýju.
Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björgólfsson var árið 2007 í 249.
sæti á lista tímaritsins Forbes yfir ríkustu menn
veraldar. Hann var aðaleigandi Landsbankans og
Actavis, auk þess að eiga í fjarskiptafyrirtækjum
erlendis.
Björgólfur Thor lauk skuldauppgjöri í ágúst
2014 en í því fólst að hann yrði áfram
hluthafi í félögum á borð við Actavis,
pólska fjarskiptafélagið Play, nýsköp-
unarfyrirtækið CCP og gagnaverið Verne
Holding.
Fjarskiptafélagið Nova, sem Björg-
ólfur stofnaði 2006, var selt til bandarísks
eignastýringarfyrirtækis árið 2016 og CCP var
nýlega selt til Suður-Kóreu fyrir 46 milljarða
króna. Greint var frá því í vor að Björgólfur væri
í sæti 1.215 á lista Forbes yfir ríkustu einstakl-
inga heims. Voru auðævi hans þá metin á
211 milljarð króna.
„Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti
að skríða undir stein og bíða eftir að
storminn lægði. Mér leið svo illa út af
þessu öllu saman,“ er haft eftir Björg-
ólfi í viðtali við Forbes.
Hannes Smárason
Hannes Smárason var um tíma einn
stærsti eigandinn í fjárfestingaris-
anum FL Group. Hann tók við for-
stjórastöðu hjá félaginu árið 2005
en lét síðan af störfum í árslok
2007 þegar Baugur varð aðaleigandi
í kjölfar hlutafjáraukningar.
Eftir hrun veitti Hannes ráð-
gjöf vegna sölu Íslenskrar erfða-
greiningar til banda-
ríska fyrirtækisins
Amgen. Hannes var
einn af stofnendum
líftæknifyrirtækisins
WuXI NextCODE árið
2013. Það var keypt
á 8,5 milljarða króna
tveimur árum
síðar.
Hreiðar Már Sigurðsson
Hreiðar Már Sigurðsson hafði
starfað hjá Kaupþingi frá árinu
1994 þegar hann var ráðinn for-
stjóri bankans árið 2003. Eftir fall
bankans sneru Hreiðar og fjöl-
skylda hans sér að rekstri gistihúsa.
Félagið Gistiver tengdist rekstri
gististaða víðsvegar um landið.
Meðal þeirra er lúxusgistihúsið ION
hótel á Nesjavöllum við Þingvalla-
vatn.
„Ég held að við
höfum verið kyn-
slóð stjórnenda sem
ætlaði ekki að láta
nappa sig í Öskju-
hlíðinni,“ sagði
Hreiðar Már við
rannsóknar-
nefnd Alþingis.
Halldór J. Kristjánsson
Halldór J. Kristjánsson var banka-
stjóri Landsbanka Íslands frá árinu
1998 en áður starfaði hann sem
ráðuneytisstjóri.
Halldór fór til Kanada í kjöl-
far hrunsins. Hann var ráðinn til
fjármálafyrirtækisins Prospect
Financial Group en það komst í
fréttir hérlendis þegar greint var
frá því að það væri tilbúið til að
gangast í ábyrgð fyrir
fjármögnun á hluta
tilboðs fyrrverandi
forstjóra og stofn-
anda Fáfnis Off-
shore í eignarhluti
tveggja stærstu
hluthafa íslenska
olíuþjónustu-
fyrirtækisins.
Sigurjón Þ. Árnason
Sigurjón Þ. Árnason tók við stöðu bankastjóra
Landsbanka Íslands vorið 2003 við hlið Halldórs
J. Kristjánssonar. Hann var áður framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Búnaðarbankans.
Eftir fjármálahrunið tók Sigurjón að sér
stundakennslu við tækni- og verkfræði-
deild Háskólans í Reykjavík. Sigurjón
hefur undanfarið starfað sem sér-
fræðingur hjá Veritas ráðgjöf. Hann
veitti til að mynda ráðgjöf í deilu Sunshine
Press og Datacell við Valitor. Deilan snýst um
lok á greiðslugátt fyrir fjáröflun Wikileaks og
lagði Sigurjón mat á tjón félaganna. Sigurjón
mun auk þess hafa veitt ráðgjöf í tengslum við
fjármögnun á United Silicon.
„Ég var sannfærður fram á síðustu
stundu um að við myndum lifa þetta
af.“
Bjarni Ármannsson
Bjarni Ármannsson lét af störfum sem for-
stjóri Glitnis vorið 2007 eftir tíu í ár stólnum í
kjölfar breytinga á eignarhaldi bankans. Síðan
þá hefur hann verið virkur í fjárfestingum hér-
lendis. Bjarni hefur frá árinu 2012 byggt upp
flutningastarfsemina Cargow á Norður-Atlants-
hafi á grundvelli þjónustusamnings við álrisann
Alcoa. Þá varð hann nýlega næststærsti
hluthafinn í sjávarútvegsfyrirtækinu Iceland
Seafood. Fjárfestingarfélag Bjarna, Sjávarsýn,
hagnaðist um 420 milljónir króna á síðasta ári en
félagið á meðal annars hluti í hreinlætisvörufyrir-
tækinu Tandri og Ellingsen.
„Ég get verið sjálfum mér reiður fyrir að hafa
tekið ákvarðanir í uppbyggingu kerfis sem ekki
stóðst,“ skrifaði Bjarni í grein í Morgun-
blaðið í ársbyrjun 2009.
Lárus Welding
Lárus Welding var ráðinn banka-
stjóri Glitnis vorið 2007 og tók við
af Bjarna Ármannssyni. Lárus hefur
frá hruni sinnt ýmsum ráðgjafar-
störfum og kom meðal annars að
sölu á helmingshlut í Sjóklæðagerð-
inni 66°Norður í sumar. Þá hefur
hann unnið fyrir Malcolm Walker,
eiganda verslanakeðjunnar Iceland
í Bretlandi og veitti honum ráðgjöf í
tengslum við kaup Bretans á brugg-
húsi Ölgerðarinnar í
Borgarfirði árið 2012.
„Ákvörðunin sem
ég myndi vilja taka
aftur er að taka að
mér starf forstjóra
Glitnis,“ sagði Lárus í
yfirlýsingu í dóm-
sal 2017.
Ágúst og Lýður
Guðmundssynir
Ágúst og Lýður Guðmundssynir,
oftast kenndir við fyrirtækið Bakka-
vör, voru fyrir fall Kaupþings í hópi
stærstu eigenda bankans.
Bræðurnir misstu tökin á Bakka-
vör í kjölfar fjármálahrunsins en
fyrir rúmum tveimur árum keyptu
þeir hlut íslenskra lífeyrissjóða og
Arion banka í félaginu sem síðan
var skráð á markað.
Ágúst og Lýður voru í 197. sæti
yfir ríkustu íbúa Bretlands sam-
kvæmt lista The Sunday
Times frá síðustu ára-
mótum. Voru
eignir þeirra
metnar á
rúmlega 100
millj-
arða
króna.
Jón Ásgeir Jóhannesson
Kaupsýslumaðurinn Jón Ásgeir
Jóhannesson byggði upp verslunar-
veldi út frá stofnun Bónuss 1989 og
varð einn stærsti eigandinn í Glitni í
gegnum FL Group vorið 2007.
Á meðal eigna hans og eiginkonu
hans Ingibjargar Stefaníu Pálma-
dóttur í dag eru Fréttablaðið, 101
Hótel og yfir fimm prósenta hlutur
í Högum en nýlega var greint frá því
að þau hefðu selt allan hlut sinn
í Sýn, tæplega 11 prósenta hlut,
fyrir tæpa tvo milljarða
króna til þess að
bæta við hlut sinn í
Högum.
365 miðlar
eignuðust hlut sinn
í Sýn þegar Sýn
keypti stærstan
hluta reksturs
365 miðla í
fyrra.
hrunið
6 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
2
-F
5
D
C
2
1
0
2
-F
4
A
0
2
1
0
2
-F
3
6
4
2
1
0
2
-F
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K