Fréttablaðið - 06.10.2018, Qupperneq 36
Ég þarf að geta
talað við nýju vini
mína og geta hjálpað
börnunum í skólanum.
Þá er Ísland mitt nýja
land og íslenska mitt nýja
tungumál. Ég er svo glöð
þegar ég sé börnin mín
tala íslensku við bekkjar-
félaga sína.
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Rauði krossinn
Rauði krossinn á Íslandi er fjöldahreyfing. Félagar eru yfir 20.000 og sjálfboðaliðar
skipta þúsundum. Þar að auki
nýtur félagið virks og mikilvægs
fjárhagslegs stuðnings fólks sem
við nefnum Mannvini. Rauði
krossinn á einnig í miklum og
árangursríkum samskiptum og
samvinnu við stjórnvöld og sveitar
félög. Íslendingar þekkja Rauða
krossinn og stuðningur almenn
ings við félagið er mikill. Við sem
vinnum sem sjálfboðaliðar hjá
félaginu þökkum landsmönnum
fyrir samstarfið og munum leggja
okkur fram um að það verði gjöfult
á komandi tímum.
Verkefni Rauða krossins eru
margvísleg. Félagið er hluti af
stærstu mannúðarhreyfingu heims
og því er í mörg horn að líta, því
víða ríkir neyð og hörmungar.
Meginkraftur félagsins fer þó í
að sinna fjölþættum málefnum í
okkar eigin landi, þar er að mörgu
að hyggja því margir standa
höllum fæti. Deildir félagsins um
allt land sinna sínu nærsamfélagi
af dugnaði og í þessu blaði má sjá
umfjöllun um mörg viðfangsefni
þeirra. Þá eru æpandi úrlausnar
efni í fjarlægum löndum, allir sem
fylgjast með fréttum vita að víða
ríkir ófriður sem er þess valdandi
að fólk í milljónatali rekst á ver
gang, ýmist í sínu eigin landi eða
hrekst land úr landi til að finna frið
og skjól. Enginn þekkir nema sá
sem í því lendir hversu sárt það er
að yfirgefa allt sitt og leggja af stað
út í fullkomna óvissu með börnin
sín oft ung og smá.
Við lifum í við
sjálum heimi.
Ófriður, náttúru
hamfarir og loftslagsbreytingar
geta orðið miklir áhrifavaldar í lífi
einstaklinga og þjóða. Þó margt
bendi til þess að afleiðingar þessa
alls geti á komandi árum orðið
miklar og viðvarandi skulum við
ekki gleyma því að aldrei hefur
mannkynið verið betur í stakk
búið til að takast á við slík við
fangsefni. Mannkynið hefur í heild
aldrei verið ríkara, betur menntað
og heilbrigðara en nú. Mikilvæg
ustu verkefni framtíðarinnar verða
því þau að koma í veg fyrir stríðs
átök, tryggja sem best viðbrögð
við náttúruvá, bæta umgengni við
náttúruna og skipta auði jarðar
jafnar milli barna en við höfum
hingað til gert. Hin alþjóðlega
mannúðarhreyfing Rauða krossins
á þar miklu hlutverki að gegna
og Rauði krossinn á Íslandi er þar
virkur þátttakandi.
Með kærri kveðju,
Sveinn Kristinsson
formaður
Ágætu lesendur
Sveinn
Kristinsson,
formaður
Rauða kross
Íslands.
Ragna og Halima hafa hist á hverjum þriðjudegi í hátt í tvö ár og stefna á að gera það áfram. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Ég var að fletta í gegnum gamla Dagskrá, sem ég geri annars aldrei, þegar ég rakst á aug
lýsingu þar sem óskað var eftir
sjálfboðaliðum til að kenna sýr
lenskum flóttamönnum á Akureyri
íslensku. Mér fannst þetta strax
rosalega áhugavert enda taldi ég
að þetta gæti verið mjög þroskandi
upplifun. Mér fannst spennandi að
fá að kynnast fólki með allt aðra
menningu, heyra sögu þess og geta
aðstoðað það með einhverjum
hætti,“ segir Ragna um af hverju
hún ákvað að gerast sjálfboðaliði.
Hún starfar sem aðstoðarversl
unarstjóri í Húsgagnahöllinni.
„Ég hafði aldrei komið nálægt
íslenskukennslu áður og tók það
fram þegar ég sótti um. Þá var mér
bent á að íslenskuþjálfunin væri
aðeins hluti af verkefninu og það
skipti líka máli að rjúfa félagslega
einangrun.“
Ragna fékk það verkefni að
hjálpa Halimu, sýrlenskri flótta
konu sem hafði komið til Íslands
árið 2016 með fjölskyldu sinni.
„Ég byrjaði að læra íslensku
með hinum Sýrlendingunum við
komuna til landsins. Þetta var stutt
námskeið og ég fékk lítið út úr
tímunum af því ég kunni hvorki að
lesa arabísku né ensku. En ég hélt
áfram að reyna með hjálp kennara
eins og Önnu og Sóleyjar,“ segir
Halima sem finnst afar mikilvægt
að læra íslensku. „Ég þarf að geta
talað við nýju vini mína og geta
hjálpað börnunum í skólanum.
Þá er Ísland mitt nýja land og
íslenska mitt nýja tungumál. Ég er
svo glöð þegar ég sé börnin mín
tala íslensku við bekkjarfélaga sína
og ég er svo stolt af þeim. Þau eru
ekki búin að læra málið alveg og
eiga enn í vandræðum en reyna sitt
besta.“
Halima segir sjálfboðaliðafram
tak Rauða krossins hafa hjálpað
sér mikið. „Ingibjörg hjá Rauða
krossinum sagði mér frá tveimur
sjálfboðaliðum, þeim Grétu og
Rögnu, sem væru til í að hjálpa mér
að þjálfa mig í íslenskunni. Gréta
hjálpaði mér í smá tíma en þurfti
að hætta en Ragna hefur kennt
mér núna í bráðum tvö ár. Hún
kemur heim til mín alla þriðjudaga
eftir vinnu og saman höfum við
náð miklum árangri.“
Þær Ragna og Halima hittust
fyrst í janúar 2017. „Við hitt
umst alltaf á þriðjudögum, oftast
heima hjá Halimu, og því hef ég
kynnst allri fjölskyldunni líka,
en hún á eiginmann, sex börn og
tengdamóður. Stundum förum
við reyndar út, á kaffihús eða í
göngutúr. Við spjöllum um daginn
og veginn. Hún segir mér oft frá
fjölskyldu sinni, systkinum og
foreldrum, sýnir mér myndir og
við tölum um þær. Hún segir mér
líka frá sýrlenskum mat. Stundum
sýni ég henni myndir, og svo tölum
við bara um það sem við höfum
verið að gera vikuna á undan,“ lýsir
Ragna. Hún reynir líka að vera
Halimu og fjölskyldu til aðstoðar
við ýmislegt sem kemur upp á. „Ég
reyni að útskýra fyrir þeim pósta
sem þau fá til dæmis frá skólanum
og bendi þeim á hvar þau geti
leitað sér aðstoðar.“
Ragna segir Halimu afar áhuga
sama um að læra íslensku og
komast inn í samfélagið. „Hún er
afskaplega dugleg kona og mér fór
fljótt að þykja vænt um hana.“
„Það er frábært að geta fengið
hjálp frá Rauða krossinum og fólk
inu í samfélaginu eins og Rögnu. Þá
eru börnin á leikskólanum þar sem
ég vinn líka frábærir kennarar, þau
hjálpa mér að þjálfa mig í íslensk
unni og því þarf ég að þakka þeim,“
segir Halima glaðlega.
Ragna getur tekið undir að
Halimu hafi fleygt fram í íslensk
unni eftir að hún fór að vinna á
leikskólanum. „Við hittumst ekki
í nokkrar vikur í sumar. Þegar við
hittumst aftur fann ég hvað henni
hafði farið mikið fram.“
Ragna segir að þótt verkefnið
miði að því að hún aðstoði og
hjálpi Halimu þá hafi það gefið
henni sjálfri mikið. „Ég er svo
ánægð með að ég skyldi álpast til
að skoða þessa gömlu Dagskrá á
sínum tíma. Ég hef fengið heilmik
ið til baka og sé fram á að halda
áfram að hitta Halimu á meðan
hún nennir að hitta mig. Svo skora
ég bara á fleiri að gerast sjálfboða
liðar hjá Rauða krossinum.“
Ræða allt milli
himins og jarðar
Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Eyjafirði aðstoða fólk af
erlendum uppruna við að efla íslenskukunnáttu sína. Þær
Ragna Þórisdóttir og Halima Darwish Alhamo hittast öll
þriðjudagskvöld og tala um daginn og veginn.
Vilt þú
gerast sjálf-
boðaliði?
Skráðu þig
á raudikrossinn.is
2 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
3
-1
8
6
C
2
1
0
3
-1
7
3
0
2
1
0
3
-1
5
F
4
2
1
0
3
-1
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K