Fréttablaðið - 06.10.2018, Blaðsíða 37
Leiðsögumenn flóttafólks er verkefni á vegum Rauða krossins þar sem einstakl-
ingar og fjölskyldur eru paraðar
saman við fólk sem hefur fengið
stöðu flóttafólks hér á landi. Leið-
sögumenn aðstoða fólk á ýmsa
lund og veita vináttu og hjálpar-
hönd í eitt ár. Markmiðið er að
stuðla að gagnkvæmri aðlögun að
íslensku samfélagi og oft myndast
falleg vinátta milli fólks.
„Okkur langaði að sinna mann-
úðarmálum í nærumhverfinu,“
segir Ásgeir Jóel Jacobson um
tildrög þess að þau Þrúður Arna
Briem kynntust Danila Krapvenko
en hann kom sem flóttamaður
hingað til lands fyrir tveimur og
hálfu ári.
„Það var afar hjálplegt fyrir mig
að komast í kynni við Ásgeir og
Þrúði og þau voru fús til að svara
mörgum spurningum sem mig
vantaði svör við. Það er mikil-
vægt fyrir flóttamenn að kynnast
Íslendingum og íslensku sam-
félagi,“ segir Danila.
„Málefni flóttamanna hafa lengi
verið í brennidepli um heim allan.
Okkur sárnaði framkoma íslenskra
yfirvalda við fólk sem var sent úr
landi og langaði að leggja okkar af
mörkum. Þegar við sáum auglýs-
ingu frá Rauða krossinum þar sem
óskað var eftir leiðsögumönnum
fyrir flóttafólk fannst okkur liggja
beint við að skrá okkur. Rauði
krossinn hafði strax samband
og í kjölfarið fórum við á nám-
skeið. Skömmu eftir að því lauk
vorum við komin í samband við
Danila,“ segir Ásgeir. „Álitið var
að við myndum smellpassa saman
því hann væri á svipaðri línu og
við. Hann er mjög sjálfstæður og
talar ensku en oft eru tungumála-
erfiðleikar helsta hindrunin þegar
kemur að samskiptum,“ bætir
Ásgeir við.
Útbúinn var samningur sem
þau þrjú skrifuðu undir og fljót-
lega hittust þau í mat. „Danila
sagði okkur að hann langaði til að
búa til sínar eigin sápur alveg frá
grunni. Við fórum strax í að hjálpa
honum af stað og höfðum sam-
band við sápugerðir til að finna
rétta hráefnið fyrir hann. Í fram-
haldinu datt okkur í hug að gaman
væri að hann gerði sápur fyrir
gistiheimili sem við rekum yfir
sumartímann að Öxl á Snæfells-
nesi. Danila bjó til þrívíddarmót
sem hann sendi til Rússlands og lét
prenta í þrívíddarprentara. Þegar
mótin komu til Íslands gat hann
byrjað að steypa sápurnar,“ rifjar
Ásgeir upp.
Í framhaldinu bjó Danila til
sérstakar sápur sem nú eru til
sölu á gistiheimilinu. Sápurnar
hafa vakið töluverða athygli og
flestir kaupa þær þegar þeir heyra
söguna á bak við þær.
Þau Ásgeir og Þrúður eru sam-
mála um að það hafi verið einstak-
lega ánægjulegt að hafa fengið að
taka þátt í þessu verkefni. „Ekki
síst vegna þess hvað við vorum
heppin að fá að kynnast Danila.
Það var mjög lærdómsríkt fyrir
okkur að fá að kynnast þessum
frábæra strák því hann er svo ein-
beittur í því sem hann gerir og er
alltaf jákvæður. Hann sér engar
hindranir, bara áskoranir og hann
heyrist aldrei kvarta yfir neinu.
Þetta var mjög áreynslulaust,
afslappað og skemmtilegt alveg frá
byrjun. Við smullum strax saman.
Það hjálpaði mjög mikið að við
deildum þeim lífsstíl að vera vegan
og höfum að mörgu leyti svipaðar
lífsskoðanir,“ segir Þrúður.
„Krakkarnir okkar kynntust
Danila, hann kom heim til okkar í
spjall og mat og við fórum saman
á andlega setrið okkar í sveitinni
að Öxl á Snæfellsnesi. Það var
einstaklega gaman að hafa afdrep
í sveitinni þar sem við gátum farið
og verið yfir helgi, þannig nær
maður oft betri tengslum, auk þess
sem hann naut þess að fá tækifæri
til að skoða landið,“ bætir hún við.
Nú er komið meira en ár frá
því að Ásgeir og Þrúður gerðust
leiðsögumenn Danila en þau
halda enn sambandi og reikna
ekki með að breyting verði þar á.
Spurð hvaða áhrif verkefni á borð
við þetta hafi fyrir flóttamenn
segja þau að það geti hjálpað fólki
að fóta sig í íslensku samfélagi.
„Fyrstu skrefin hjá flóttamönnum
sem koma til Íslands felast oft í
samskiptum við stofnanir. Þetta er
leið til að komast inn í samfélagið
og í tengsl við innfædda sem fólk
getur leitað til,“ segir Ásgeir.
Danila hefur eignast nokkra
íslenska vini og segir hvorki
auðveldra né erfiðara að kynn-
ast Íslendingum en fólki af öðru
þjóðerni. Hann hefur áhuga á að
bæta íslenskukunnáttu sína og
langar að fara í skóla til þess. „Það
var mjög gott að kynnast Ásgeiri
og Þrúði og fá aðstoð þeirra við
að gera drauminn um sápuna að
veruleika.“
Leiðsögumenn flóttafólks
eru lykill inn í samfélagið
Ásgeir Jóel Jacobson og Þrúður Arna Briem skráðu sig sem leiðsögumenn flóttafólks á vegum
Rauða krossins. Í kjölfarið kynntust þau Danila Krapivenko frá Rússlandi, sem átti sér þann draum
að búa til vegan-sápur. Með samvinnu þeirra þriggja varð draumurinn að veruleika.
„Okkur langaði að sinna mannúðarmálum í nærumhverfinu,“ segja Ásgeir Jóel Jacobson og Þrúður Arna Briem. Þau
kynntust Danila Krapvenko en hann kom sem flóttamaður hingað til lands fyrir tveimur og hálfu ári. MYND/ERNIR
Unnur Katrín Valdimarsdóttir segir að þetta hafi verið í boði undanfarin ár með
mjög góðum árangri. Í bókasafn-
inu er frábær aðstaða til að taka
við börnunum, þau geta jafnt lesið,
skrifað og reiknað. Ef þau lenda í
erfiðleikum fá þau aðstoð hjá Unni
Katrínu og Elvu Dögg Sigurðar-
dóttur háskólanema.
„Það voru þær Kolbrún Sveins-
dóttir kennari og Stefanía Gunn-
arsdóttir, forstöðumaður bóka-
safnsins, sem byrjuðu á þessu.
Þetta var hugsað fyrir börn sem
þurftu á aðstoð að halda með
heimalærdóminn, bæði íslensk
börn og börn af erlendum upp-
runa. Aðstoðin er opin öllum
börnum frá fjórða bekk og upp úr.
Þau hafa reyndar komið yngri og
eru velkomin. Eldri krakkar hafa
komið hingað og nýtt sér aðstöð-
una til að læra undir próf. Við
erum með opið á þriðjudögum og
fimmtudögum frá klukkan 14.30
til 16,“ segir Unnur Katrín og bætir
við að krakkarnir biðji um aðstoð
við hitt og þetta.
„Stundum þurfa þau bara
stuðning og hjálp við að byggja
upp sjálfstraust. Aðrir þurfa hjálp
við stærðfræðina, náttúrufræði eða
lestur. Það koma alls konar beiðnir
um aðstoð til okkar. Við viljum
gjarnan að fleiri börn komi og nýti
sér þessa aðstoð því mikil ánægja
hefur verið með þetta. Ég er búin
að fá sömu krakkana ár eftir ár og
þau hafa bætt sig í námi með þess-
ari aðstoð. Það mættu fleiri vita af
þessum möguleika.“
Aðstoðin heldur áfram í vetur á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Þegar Unnur Katrín er spurð hvort
þær Elva standi aldrei á gati gagn-
vart námsefni krakkanna, játar
hún því. „Jú, það kemur fyrir. Við
höfum til dæmis þurft að rifja upp
stærðfræðina en það kemur fljótt.
Við lærum mikið af krökkunum
og þau af okkur. Þessi félagsskapur
er einstaklega skemmtilegur og
gefandi. Þetta er annað árið mitt
í þessu starfi og mér finnst þetta
ótrúlega gaman. Ég vil endilega
hvetja foreldra á Suðurnesjum til
að senda börnin til okkar og létta
undir með heimalærdóminn,“
segir hún.
Fullvíst má telja að þetta getur
komið mörgum foreldrum og
börnum vel í annasömum nútím-
anum.
Bókasafn Reykjanesbæjar er
staðsett að Tjarnargötu 12, sími
421 6770.
Aðstoða börn með heimalærdóm
Bókasafn Reykjanesbæjar hefur boðið börnum og unglingum upp á námsaðstoð með heimalær-
dóm í samstarfi við Rauða krossinn. Starfið hefur gefist vel og börnin hafa tekið nám sitt alvarlega.
Unnur Katrín aðstoðar börn á Suðurnesjum við heimalærdóm í bókasafninu.
Sápan sem Danila býr til fæst á gisti-
heimili sem Ásgeir og Þrúður reka.
FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS HJÁLPIN 3 L AU G A R DAG U R 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
3
-2
7
3
C
2
1
0
3
-2
6
0
0
2
1
0
3
-2
4
C
4
2
1
0
3
-2
3
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K