Fréttablaðið - 06.10.2018, Page 38
Almennt leggjum
við áherslu á að
hjálp berist þeim sam-
félagshópum sem eru í
hvað viðkvæmastri stöðu
og þurfa mest á aðstoð-
inni að halda.
Eins og margir höfum við verið að samþætta kynja- og jafn-réttissjónarmið í öllum verk-
efnum sem þýðir að við pössum
upp á að hugað sé að þörfum
mismunandi samfélagshópa, sér-
staklega mismunandi þörfum karla
og kvenna, stráka og stelpna,“ segir
Sólrún María. „Þannig reynum við
að koma í veg fyrir að verkefnin
viðhaldi eða styrki valdaójafnvægi
sem fyrir er í þeim samfélögum sem
við vinnum í og helst koma á meiri
jöfnuði. Undanfarið höfum við
verið að gera þetta á meira kerfis-
bundinn hátt til að auðvelda okkur
og samstarfslandsfélögum okkar
að samþætta kynja- og jafnréttis-
sjónarmið í verki.“
Hún segir reynsluna hafa sýnt að
samþætting kynja- og jafnréttis-
sjónarmiða ein og sér skili ekki allt-
af árangri. „Samþættingin verður
oft meiri í orði en á borði, eitthvað
sem gert er til málamynda, og því
erum við ekki einungis að styrkja
okkar innra starf heldur einnig að
styðja verkefni sem styrkja konur
og stúlkur sérstaklega. Almennt
leggjum við áherslu á að hjálp
berist þeim samfélagshópum sem
eru í hvað viðkvæmastri stöðu og
þurfa mest á aðstoðinni að halda.
Reynslan og tölfræðin sýnir að
vegna félagslegrar stöðu kvenna
og stúlkna eru það oft þær sem
verða verst úti í náttúruhamförum
og vopnuðum átökum. Konur eru
einnig líklegri til að vera fátækar, ef
þær fæðast fátækar eru þær síður
líklegar til að vinna sig upp úr því
en líklegri til að lifa við heilsubrest
og hljóta ekki menntun og því
beinum við sjónum okkar sérstak-
lega að þeim. Við hér á Íslandi erum
framarlega í jafnréttismálum og
hugsum um þessi mál. Við getum
ekki gert allt, alls staðar – en þarna
höfum við ýmislegt fram að færa.“
Hún nefnir verkefni í Líbanon
fyrir flóttafólk frá Sýrlandi þar sem
Rauði krossinn á Íslandi styður við
beinan fjárstuðning til einstæðra
mæðra. „Við erum einnig að styðja
verkefni gegn kynferðislegu ofbeldi
í Sýrlandi og Suður-Súdan og erum
að leggja grunninn að verkefni
sem miðar að því að vinna gegn
kynferðislegu ofbeldi gegn skóla-
stúlkum í Malaví. Alþjóðasamband
Rauða krossins og Rauða hálfmán-
ans er líka með okkar stuðningi að
vinna í handbókum og öðru efni
tengdu blæðingaheilbrigði sem
miðar að því að aðstoða stúlkur og
konur í þeim efnum.“
Hún segir helstu áskoranirnar
felast í því að koma inn í rótgróna
menningu og reyna að breyta
hlutunum. „Breytingar í venjum og
hugsunarhætti eru aldrei auðveldar
og það er alls ekki alltaf auðvelt að
koma á breytingum í rótgrónum
samfélögum. Við erum að vinna í
svo mörgum ólíkum menningar-
heimum og mætum ekki alltaf
fullum skilningi á því sem við erum
að reyna að gera. Á sama tíma
mætum við líka miklum stuðningi
og samstarfsfólk í öðrum lands-
félögum hefur verið mjög ánægt
með hversu mikla áherslu við
leggjum á jafnréttissjónarmið. Sum
landsfélög hafa leitað sérstaklega til
okkar eftir aðstoð við innleiðingu
jafnréttisverkefna og skilningurinn
á verkefnum sem þessum er
alltaf að aukast. Jafnréttismál eru
í deiglunni á Íslandi og við höfum
mikla reynslu í að miðla auk þess
sem yfirvöld á Íslandi styðja okkur
vel í þessum málaflokki.“
Höfum ýmislegt fram að færa
Sólrún María Ólafsdóttir hefur starfað að kynja - og jafnréttisverkefnum á
vegum Rauða krossins um allan heim, með áherslu og konur og stúlkur.
Rauði krossinn
leggur mikla
áherslu á kynja-
og jafnréttissjón-
armið í alþjóða-
starfinu. Sólrún
María Ólafsdóttir
er sendifulltrúi og
verkefnastjóri í al-
þjóðamálum hjá
Rauða krossinum
á Íslandi en hún
hefur áralanga
reynslu í kynja- og
jafnréttismálum á
alþjóðavettvangi.
Undanfarin ár hafa nám-skeiðin Mannúð og menn-ing/Gleðidagar verið kennd í
Barnaskólanum í Hnífsdal í júlí. Þar
fá börn á aldrinum 6-9 ára fræðslu
um starf og hugsjónir Rauða kross-
ins, að starfa með eldri borgurum
og læra skyndihjálp. Margrét Heiða
Magnúsdóttir, tómstunda- og
félagsmálafræðingur, er verkefna-
stjóri námskeiðsins Mannúð og
menning.
„Námskeiðið snýst fyrst og
fremst um að kynna starf Rauða
krossins fyrir börnum og fræða
þau um hlutverk hans og helstu
hugtökin sem tengjast starfinu,“
segir Margrét. „Við kennum þeim
líka um mannúð, ólíka menningu
og vinnum verkefni út frá hugsun
og grundvallarmarkmiðum Rauða
krossins. Þetta er líka bara mikil
hreyfing, útivera, leikir og skemmt-
un. Þetta er mjög fjölbreytt.
Þegar krakkarnir vinna verkefni
út frá grundvallarmarkmiðum
Rauða krossins skapast umræða
og við leyfum þeim að túlka þau
sjálf, en á þessum aldri skilja þau
ekki endilega öll hugtökin sem við
tölum um,“ segir Margrét. „Í lokin
er svo alltaf haldin sýning fyrir for-
eldra, þar sem þeir fá að koma og
sjá verkefnin sem krakkarnir hafa
verið að vinna.
Svo blandast við þetta svokall-
aðir Gleðidagar, sem er námskeið
þar sem við fengum eldri borgara
með okkur í lið,“ segir Margrét.
„Hugmyndin er að brúa bilið milli
yngstu og elstu kynslóðarinnar og
leyfa eldri borgurum sem eru hættir
að vinna að koma og vera sjálfboða-
liðar og verja tíma með börnunum.
Við fáum líka heimsókn frá
slökkviliðinu og sjúkraflutninga-
fólki sem kennir börnum hvað
þau geta gert í neyð og fræðir þau
um störf sín,“ segir Margrét. „Þá
fá þau líka að fara upp í sjúkrabíl
og slökkviliðsbíl, sem þeim finnst
mjög spennandi. Við höfum líka
farið að hitta björgunarsveitina
í Bolungarvík og skoðað skipið
þeirra.
Námskeiðið skilar árangri og
skapar áhuga á hjálparstarfi. Þetta
eru oft fyrstu kynni barnanna af
Rauða krossinum en mörg þeirra
halda áfram í námskeiðum hjá
félaginu,“ segir Margrét. „Margir
af krökkunum sem komu til mín
fyrst fyrir tíu árum eru orðnir sjálf-
boðaliðar hjá Rauða krossinum
eða starfa í hjálparsveitunum í
dag. Okkur fannst líka mikilvægt
að byrja snemma að kenna þeim
skyndihjálp, því þau geta hjálpað
ótrúlega mikið ef eitthvað kemur
upp á. Þetta námskeið er hluti af
fræðslustarfinu „Skyndihjálp út
lífið“ sem allar deildir Rauða kross-
ins á norðanverðum Vestfjörðum
standa fyrir.
Námskeiðið var ekki haldið
í sumar vegna persónulegra
aðstæðna og það er smá óvissa með
námskeiðið næsta sumar, en við
viljum endilega halda áfram, því
námskeiðið er rosalega vinsælt,“
segir Margrét.
Mannúð, menning og gleði á Ísafirði
Á Ísafirði hafa verið haldin námskeið fyrir börn til að kynna starf Rauða krossins fyrir þeim og leyfa
þeim að verja tíma með eldri borgurum. Námskeiðin hafa skapað mikinn áhuga á hjálparstarfi.
Margrét Heiða Magnúsdóttir, tóm-
stunda- og félagsmálafræðingur,
er verkefnastjóri námskeiðsins
Mannúð og menning.
Á námskeiðunum læra börn um starf Rauða krossins, fá kennslu í skyndihjálp og starfa með eldri borgunum.
4 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
3
-2
C
2
C
2
1
0
3
-2
A
F
0
2
1
0
3
-2
9
B
4
2
1
0
3
-2
8
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K