Fréttablaðið - 06.10.2018, Side 43
D +K2
Dlux +K2 vítamín
vinna saman að
viðhaldi og heilbrigði
beina og hjarta
D 3000
Dlux 3000 munnúði,
hver úði innheldur
3000 a.e.
D 1000
Dlux 1000 munnúði,
hver úði inniheldur
1000 a.e.
JUNIOR
Dlux Junior munnúði
fyrir 3 ára og eldri, hver
úði inniheldur 400 a.e.
INfaNt
Dlux Infant munnúði
fyrir ungabörn, hver
úði inniheldur 400
a.e. og er bragðlaus
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaða og verslana.
VítamíNspRey sem tRyggJa hámaRKsUpptöKU
D-vítamín gegnir gríðarlega víðtæku hlutverki í líkams-starfsemi okkar og hafa
fjölmargar rannsóknir gefið okkur
vísbendingar um hversu alvarlegar
afleiðingar D-vítamínskortur hefur
í för með sér.
Beinþynning
og D-vítamínskortur
D-vítamínskortur er algengur í
vestrænum löndum en hann getur
haft mjög alvarlegar afleiðingar
til lengri tíma. Skiptir þetta víta-
mín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt
ónæmiskerfi, starfsemi vöðva og
fyrir sterkar tennur og bein. Rann-
sóknir gefa þó til kynna að það
gegni mun víðtækara hlutverki en
talið var og það sé í raun grund-
vallarefni til að viðhalda heilsu
og fyrirbyggja sjúkdóma. Vitað
er um a.m.k. 100 mismunandi
sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma
sem tengjast D-vítamínskorti.
D-vítamín er talið leika lykilhlut-
verk gegn bólgum í líkamanum
og skortur getur átt þátt í því að
ónæmiskerfið virkar ekki sem
skyldi. Einnig getur orðið aukin
hætta á öllum helstu krabba-
meinum, hjartasjúkdómum,
minnisglöpum, sykursýki 1 og 2,
MS, liðagigt, smitsjúkdómum og
jafnvel meðgöngueitrun.
D-vítamínskortur á
norðlægum slóðum
Sérfræðingar við Friedman School
of Nutrition Science and Policy
hafa birt rannsóknir sem gerðar
voru á skólabörnum í Boston og
sýndu að allt að 90% þeirra voru
með D-vítamínskort. Einnig kom
þar fram að þeir sem eru í ofþyngd,
með dökka húð og/eða lifa á norð-
lægum slóðum séu oftar með skort
en aðrir. Í september á síðasta ári
voru birtar niðurstöður klínískra
rannsókna við þennan sama
skóla þar sem skoðað var hversu
mikið D-vítamín þyrfti að taka
inn daglega til að hækka gildin hjá
þeim börnum sem mældust með
skort. Í ljós kom að stærstur hluti
barnanna þurfti að taka 2000 a.e.
(alþjóðlegar einingar) af D-víta-
míni í 6 mánuði til að ná ásættan-
legum gildum en hámarksskammt-
ur fyrir 9 ára og eldri er 4000 a.e.
á dag. Þetta segir okkur að ef um
D-vítamínskort er að ræða dugir
ekki að taka bara ráðlagðan dag-
skammt, enda eru þeir hugsaðir til
að viðhalda þeim gildum sem fyrir
eru, ekki til að hækka þau.
Skortur á Íslandi
Landskönnun á mataræði 6 ára
barna á Íslandi frá 2011–2012
sýndi að einungis um 25%
barnanna fengu ráðlagðan
dagskammt eða meira af
D-vítamíni og var neysla
fjórðungs barna undir lág-
marksþörf (2,5 µg/dag). Þessar
tölur eru væntanlega orðnar betri
í dag en það er full þörf á stöðugri
umfjöllun þar sem þetta vítamín er
okkur svo lífsnauðsynlegt. Önnur
rannsókn frá 2004 leiddi í ljós að
15% Íslendinga 30 ára og eldri þjást
af D-vítamínskorti. En á þeim tíma
taldist það skortur ef gildin voru
undir 25 nmól/l sem er af mörgum
erlendum sérfræðingum talið allt
of lágt viðmiðunargildi. Síðan þessi
rannsókn var gerð hefur Landlækn-
isembættið hækkað skortsmörkin
í 50 nmol/l en ákjósanlegast er að
hafa gildin á bilinu 75-125 nmol/l.
Hvar fáum við D-vítamín?
D-vítamín er ekki eins og önnur
vítamín sem við getum fengið úr
fjölbreyttri fæðu en aðeins um
10% af D-vítamíni koma úr matn-
um. Sólin er helsta og besta upp-
spretta D-vítamíns en það verður
til í líkama okkar vegna áhrifa
UVB-geisla sólarinnar á húðina.
Þetta gerist eingöngu þegar hún er
mjög hátt á lofti og ef hún skín á
stóran hluta líkamans. Því er erfitt
fyrir fólk á norðlægum slóðum að
tryggja sér nægilegt magn nema
kannski rétt yfir hásumarið. Land-
læknisembættið hvetur fólk til
þess að taka D-vítamín sérstaklega
á formi bætiefna.
D-vítamín frá fæðingu
Allir þurfa að taka inn D-vítamín
og er ráðlagt að gefa ungbörnum
það nánast alveg frá fæðingu eða
um 2 vikna aldur. D-Lux munn-
spreyin frá Better You eru hönnuð
sérstaklega með þetta í huga en
munnsprey fyrir yngstu krílin eru
bragðlaus og innihalda ráðlagðan
dagskammt í einum úða. Munn-
úði kemur einnig í veg fyrir maga-
ónot sem margir kannast við.
Munnsprey frá Better You
Nú er komin heildstæð lína af
D-vítamín munnspreyjum sem
henta hverju aldursbili fyrir sig
og í réttum skammtastærðum.
Spreyin eru einnig góð fyrir þá
sem vilja hækka gildin sín og svo
eru þau afar bragðgóð og auðveld
í notkun. Munnsprey er góður
kostur þar sem meltingin getur
verið undir álagi og dregið úr
frásogi en með því að úða D-Lux
út í kinn förum við fram hjá
meltingarkerfinu og tryggjum
hraða og mikla upptöku.
D-Lux hentar grænmetisætum
og sykursjúkum, sem og þeim
sem eru á glútenlausu fæði.
Hrönn Hjálmars-
dóttir, heilsu-
markþjálfi hjá
Artasan. D-vítamínskortur
og heilsubrestur
Rekja má allt að 100 mismunandi sjúkdóma og sjúk-
dómseinkenni til skorts á D-vítamíni. D-Lux munn-
úðarnir frá Better You skila vítamíninu beint út í
blóðrásina og tryggja hámarks upptöku.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
3
-2
C
2
C
2
1
0
3
-2
A
F
0
2
1
0
3
-2
9
B
4
2
1
0
3
-2
8
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K