Fréttablaðið - 06.10.2018, Page 43

Fréttablaðið - 06.10.2018, Page 43
D +K2 Dlux +K2 vítamín vinna saman að viðhaldi og heilbrigði beina og hjarta D 3000 Dlux 3000 munnúði, hver úði innheldur 3000 a.e. D 1000 Dlux 1000 munnúði, hver úði inniheldur 1000 a.e. JUNIOR Dlux Junior munnúði fyrir 3 ára og eldri, hver úði inniheldur 400 a.e. INfaNt Dlux Infant munnúði fyrir ungabörn, hver úði inniheldur 400 a.e. og er bragðlaus Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaða og verslana. VítamíNspRey sem tRyggJa hámaRKsUpptöKU D-vítamín gegnir gríðarlega víðtæku hlutverki í líkams-starfsemi okkar og hafa fjölmargar rannsóknir gefið okkur vísbendingar um hversu alvarlegar afleiðingar D-vítamínskortur hefur í för með sér. Beinþynning og D-vítamínskortur D-vítamínskortur er algengur í vestrænum löndum en hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma. Skiptir þetta víta- mín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, starfsemi vöðva og fyrir sterkar tennur og bein. Rann- sóknir gefa þó til kynna að það gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það sé í raun grund- vallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja sjúkdóma. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti. D-vítamín er talið leika lykilhlut- verk gegn bólgum í líkamanum og skortur getur átt þátt í því að ónæmiskerfið virkar ekki sem skyldi. Einnig getur orðið aukin hætta á öllum helstu krabba- meinum, hjartasjúkdómum, minnisglöpum, sykursýki 1 og 2, MS, liðagigt, smitsjúkdómum og jafnvel meðgöngueitrun. D-vítamínskortur á norðlægum slóðum Sérfræðingar við Friedman School of Nutrition Science and Policy hafa birt rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra voru með D-vítamínskort. Einnig kom þar fram að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka húð og/eða lifa á norð- lægum slóðum séu oftar með skort en aðrir. Í september á síðasta ári voru birtar niðurstöður klínískra rannsókna við þennan sama skóla þar sem skoðað var hversu mikið D-vítamín þyrfti að taka inn daglega til að hækka gildin hjá þeim börnum sem mældust með skort. Í ljós kom að stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-víta- míni í 6 mánuði til að ná ásættan- legum gildum en hámarksskammt- ur fyrir 9 ára og eldri er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um D-vítamínskort er að ræða dugir ekki að taka bara ráðlagðan dag- skammt, enda eru þeir hugsaðir til að viðhalda þeim gildum sem fyrir eru, ekki til að hækka þau. Skortur á Íslandi Landskönnun á mataræði 6 ára barna á Íslandi frá 2011–2012 sýndi að einungis um 25% barnanna fengu ráðlagðan dagskammt eða meira af D-vítamíni og var neysla fjórðungs barna undir lág- marksþörf (2,5 µg/dag). Þessar tölur eru væntanlega orðnar betri í dag en það er full þörf á stöðugri umfjöllun þar sem þetta vítamín er okkur svo lífsnauðsynlegt. Önnur rannsókn frá 2004 leiddi í ljós að 15% Íslendinga 30 ára og eldri þjást af D-vítamínskorti. En á þeim tíma taldist það skortur ef gildin voru undir 25 nmól/l sem er af mörgum erlendum sérfræðingum talið allt of lágt viðmiðunargildi. Síðan þessi rannsókn var gerð hefur Landlækn- isembættið hækkað skortsmörkin í 50 nmol/l en ákjósanlegast er að hafa gildin á bilinu 75-125 nmol/l. Hvar fáum við D-vítamín? D-vítamín er ekki eins og önnur vítamín sem við getum fengið úr fjölbreyttri fæðu en aðeins um 10% af D-vítamíni koma úr matn- um. Sólin er helsta og besta upp- spretta D-vítamíns en það verður til í líkama okkar vegna áhrifa UVB-geisla sólarinnar á húðina. Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans. Því er erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að tryggja sér nægilegt magn nema kannski rétt yfir hásumarið. Land- læknisembættið hvetur fólk til þess að taka D-vítamín sérstaklega á formi bætiefna. D-vítamín frá fæðingu Allir þurfa að taka inn D-vítamín og er ráðlagt að gefa ungbörnum það nánast alveg frá fæðingu eða um 2 vikna aldur. D-Lux munn- spreyin frá Better You eru hönnuð sérstaklega með þetta í huga en munnsprey fyrir yngstu krílin eru bragðlaus og innihalda ráðlagðan dagskammt í einum úða. Munn- úði kemur einnig í veg fyrir maga- ónot sem margir kannast við. Munnsprey frá Better You Nú er komin heildstæð lína af D-vítamín munnspreyjum sem henta hverju aldursbili fyrir sig og í réttum skammtastærðum. Spreyin eru einnig góð fyrir þá sem vilja hækka gildin sín og svo eru þau afar bragðgóð og auðveld í notkun. Munnsprey er góður kostur þar sem meltingin getur verið undir álagi og dregið úr frásogi en með því að úða D-Lux út í kinn förum við fram hjá meltingarkerfinu og tryggjum hraða og mikla upptöku. D-Lux hentar grænmetisætum og sykursjúkum, sem og þeim sem eru á glútenlausu fæði. Hrönn Hjálmars- dóttir, heilsu- markþjálfi hjá Artasan. D-vítamínskortur og heilsubrestur Rekja má allt að 100 mismunandi sjúkdóma og sjúk- dómseinkenni til skorts á D-vítamíni. D-Lux munn- úðarnir frá Better You skila vítamíninu beint út í blóðrásina og tryggja hámarks upptöku. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 0 6 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :1 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 0 3 -2 C 2 C 2 1 0 3 -2 A F 0 2 1 0 3 -2 9 B 4 2 1 0 3 -2 8 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.