Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 77
Ef ég sæi konu með
stóma, með börnin
sín í sundi, þá myndi ég
hugsa: Vá, hvað hún er
dugleg að láta þetta ekki
stoppa sig.
Klara Jenný greindist með sáraristilbólgu árið 2008 eftir að hafa glímt við verki og
veikindi í fimm ár. Hún fór í með
ferð við sjúkdómnum en svo kom
að þeim tímamótum að hún varð
að fá stóma. „Það kom mér í opna
skjöldu en ég fékk þó tvo mánuði
til að undirbúa mig undir stóma
aðgerðina. Ég hafði val um að fara
í tvær aðgerðir, fá innri poka sem
kallast Jpoki eða að fá stóma. Eftir
að ég kynnti mér málið vel ákvað ég
að fara í stóma,“ segir Klara og bætir
við að það hafi ekki síst verið vegna
þess að hún á þrjú börn og vildi
fækka sjúkrahúsheimsóknum.
„Þetta er alveg nýtt líf fyrir mig.
Ég hef sem betur fer ekki fengið
neina fylgikvilla heldur þurfti ég
aðeins að fikra mig áfram með
plötur. Starfsfólk Eirbergs hefur
reynst mér mjög vel og leiðbeint
mér í gegnum allt þetta ferli. Þar er
til svo mikið af stómavörum að allir
ættu að geta fundið það sem þeim
passar,“ segir Klara sem þarf að
skipa um stómaplötur einu sinni til
tvisvar í viku.
Ekkert vesen
Klara segir marga halda að það sé
vesen að vera með stóma en svo
sé ekki, a.m.k. ekki í sínu tilfelli.
„Stómi hefur engin áhrif á lífsgæði
mín. Ég er í fullu ljósmóðurnámi
við Háskóla Íslands. Ég stunda fjall
göngur, sund og almenna hreyfingu
og hef aldrei verið í betra formi
en nú. Áður gat ég varla farið á
hlaupabretti vegna þess að ég átti
erfitt með að halda í mér og klósett
þurfti ætíð að vera nálægt. Ég hef að
gamni mínu tekið tímann hversu
lengi ég er að skipta um stóma. Það
tekur mig þrjár mínútur,“ segir hún.
Getur verið feimnismál
Í dag er Alþjóðlegi stómadagurinn
og segir Klara mikilvægt að minna
á að stómaþegar séu fjölmennur og
fjölbreytilegur hópur fólks. „Sumir
greinast með sjúkdóma, t.d. á
Öðlaðist nýtt líf með stóma
Klara Jenný Arnbjörnsdóttir fékk stóma í fyrra eftir að hafa þjáðst af sáraristilbólgu um árabil. Hún
segir stóma ekki hafa áhrif á lífsgæði sín, fer í ræktina og sund og hefur aldrei verið í betra formi.
„Stóminn hefur
engin áhrif á
lífsgæði mín.
Ég er í fullu
ljósmóðurnámi
við Háskóla
Íslands, stunda
fjallgöngur, sund
og almenna
hreyfingu og
hef aldrei verið
í betra formi
en nú. Áður gat
ég varla farið
á hlaupabretti
vegna þess að
ég átti erfitt með
að halda í mér
og klósett þurfti
ætíð að vera
nálægt,“ segir
Klara. MYND/SIG-
TRYGGUR ARI
unglingsárunum, og þurfa af þeim
völdum að fá stóma. Það getur
verið mikið feimnismál á svona
viðkvæmum aldri og því er brýnt
að halda umræðunni opinni. Þegar
ég var fimmtán ára átti ég að fara í
ristilspeglun en harðneitaði því. Ég
lifði því við verki, blóðugar hægðir
og fleiri heilsufarsleg vandamál
í fimm ár. Þegar ég hóf nám í
hjúkrunarfræði áttaði ég mig á því
hversu alvarleg þessi einkenni voru,
lét skoða mig og fékk sjúkdóms
greiningu,“ segir hún og vonast
til að hennar saga veki aðra til
umhugsunar.
Klara segir eina mestu hindrun
ina hafa verið að fara í sund í fyrsta
sinn með stóma. „Læknirinn minn
hvatti mig til að fara sem fyrst í
sund. Mér fannst það svo erfitt að ég
komst varla í bikiníið, ég skalf svo
mikið. Næst fór ég með börnin mín
og þá var það miklu auðveldara. Ég
hugsaði með mér að ef ég sæi konu
með stóma, með börnin sín í sundi,
þá myndi ég hugsa: Vá, hvað hún er
dugleg að láta þetta ekki stoppa sig.
Það er betra að vera með jákvætt
hugarfar og það hefur komið mér í
gegnum lífið,“ segir Klara glaðlega
að lokum.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
3
-2
7
3
C
2
1
0
3
-2
6
0
0
2
1
0
3
-2
4
C
4
2
1
0
3
-2
3
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K