Fréttablaðið - 06.10.2018, Page 78
Eftir að ég byrjaði að nota nýju
kollagen húðvörurnar frá
COLWAY hefur húðin breyst alveg ótrú-
lega mikið. Hún er miklu stinnari og
fallegri. Galdurinn er að geta borið
kollagenið beint á þau húðsvæði sem
mér finnst vera farin að láta á sjá og
þannig næ ég að vinna á þeim línum og
hrukkum sem hafa verið að myndast og
gera mér lífið leitt.
Erna P. Einarsdóttir.
Það eru allir að hrósa mér fyrir
útlitið og spyrja mig að því hvað
ég sé að gera öðruvísi. Það eina sem ég
hef breytt er að ég byrjaði að nota nýju
kollagen húðvörurnar frá COLWAY. Og
ég verð að segja að árangurinn er ótrú-
legur. Ég elska þessar vörur.
Fríða Pétursdóttir
Sumir vinnustaðir
hvetja jafnvel starfs-
fólk sitt til að koma með
hundana sína í vinnuna á
ákveðnum dögum.
Það nota flestir
húðvörur daglega.
Með því velja húðvörur
sem innihalda kollagen
nærðu að seinka öldrun
húðarinnar og halda
henni unglegri og fallegri
mun lengur.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Kollagen húðvörurnar frá COLWAY innihalda hágæða kollagen sem hægir á nátt-
úrulegri öldrun húðarinnar, gerir
húðina stinnari og teygjanlegri,
vinnur gegn fínum línum og
hrukkum og gefur húðinni góðan
raka. „Rannsóknir sýna að hægt er
að bæta sér upp minnkandi kolla-
gen framleiðslu líkamans með því
að bera kollagenið beint á húðina
og á þá staði sem okkur finnast vera
farnir að láta á sjá og vinna þannig
á móti minnkandi framleiðslu
efnisins. Kollagenið frá Colway
er vatnsbundið hágæða kollagen
sem tryggir virkni þess niður í öll
þrjú lög húðarinnar,“ segir Sigrún
Kjartansdóttir, markaðsstjóri
Colway á Íslandi.
100% hreint KOLLAGEN –
Platinum og Silver
Colway býður upp á 100% hreint
kollagen gel/serum bæði fyrir and-
litið og líkamann. 100% hreina
kollagenið hentar öllum en sérstak-
lega þeim sem eru með viðkvæma
ofnæmis- og vandamálahúð.
Kollagen andlitsgelið heitir Plat-
inum og líkamskollagenið heitir
Silver. Þetta hreina kollagen er talið
það allra besta sem hægt er að fá
fyrir húðina.
ATELO húðvörulínan
Colway býður einnig upp á heila
húðvörulínu sem heitir ATELO og
innihalda allar vörurnar kollagen.
Þessi lína innheldur einnig kollagen
gel fyrir andlitið og líkamann ásamt
rakakremi, bæði léttu og með meiri
raka, næturmaska, augnkremi, and-
litsvatni, farðahreinsa og sérstöku
líkamskremi sem vinnur sérstak-
lega á appelsínuhúð og annarri
vandamálahúð.
Einnig framleiðir Colway sér-
staka hárþykkingarlínu fyrir þá sem
eru að glíma við lélegan hárvöxt,
hárlos, lélegt og slitið hár.
Sölustaðir: Flest apótek, Heilsu-
húsið og www.heilsanheim.is
Kollagen – það besta fyrir húðina
Húðvörurnar frá Colway innihalda hágæða kollagen sem hægir á öldrun húðarinnar, vinnur á fín-
um línum og hrukkum og heldur henni fallegri lengur. Viðskiptavinir segja árangurinn ótrúlegan.
Meðmæli frá viðskiptavinum:
Flestir yfirmenn myndu ekki gefa starfsmönnum sínum frí ef gæludýrin þeirra myndu
deyja. Þó að það séu góðar líkur á
að þeir sýni samúð er líka líklegt
að slík beiðni myndi vekja nokkra
furðu. En gæludýrahald verður
sífellt algengara, fólk eyðir meiri
peningum í gæludýrin sín en áður
og vitund um jákvæð áhrif gælu-
dýra hefur aukist, þannig að það er
aukinn þrýstingur á vinnustaði að
móta stefnu í þessum málum. BBC
fjallaði um málið fyrir skömmu.
Aukið gæludýrahald skilar
sér á vinnustaði
Gæludýrahald hefur aukist mikið
síðustu fimm til tíu ár og sam-
kvæmt stærsta markaðsrann-
sóknarfyrirtæki Þýskalands, GfK,
átti meira en helmingur mannkyns
að minnsta kosti eitt gæludýr árið
2016.
Á sama tíma hafa gæludýr
orðið vinsæl sem sálfræðilegur
stuðningur, en margar rannsóknir
sýna að gæludýr geti látið fólki
líða betur andlega og líkamlega.
Stórar skurðaðgerðir á gæludýrum
eru líka orðnar algengari, því það
eru alltaf fleiri og fleiri sem eru til í
að eyða háum fjárhæðum í heilsu
ferfættra félaga sinna. Samkvæmt
markaðsrannsóknum Euromonitor
International velti iðnaðurinn í
kringum umönnun gæludýra 110
milljörðum Bandaríkjadollara árið
2017.
Þessar auknu vinsældir gæludýra
hafa skilað sér inn á vinnustaði.
Gæludýr eru leyfð á mörgum þeirra
og sumir vinnustaðir hvetja jafn-
vel starfsfólk sitt til að koma með
hundana sína í vinnuna á ákveðn-
um dögum. Stórir vinnustaðir, eins
og Google, Amazon og Ben & Jerry’s
bjóða gæludýr velkomin á skrif-
stofuna hvenær sem er.
Samúð og virðing skiptir máli
En það er eitt að bjóða dýrin vel-
komin á skrifstofuna og annað að
gefa fólki frí þegar þau deyja. Susan
Stehlik, sem kennir mannauðs-
stjórnun við New York-háskóla,
segir að hennar fyrstu viðbrögð
við þessari hugmynd séu einfald-
lega nei og að kollegar hennar séu
almennt sammála.
En hún segir hins vegar að henni
finnist alltaf meira vit í þessu eftir
því sem hún veltir þessu meira fyrir
sér. Hún segir að yfirmenn verði að
sýna samúð og „virða það hvernig
fólk setur ást í líf sitt“. Annars sé
hætta á að starfsmaðurinn telji
vinnuumhverfið óvinveitt.
Cary Cooper, prófessor í skipu-
lagssálfræði við Manchester-
háskóla, segir að ef svona beiðnum
sé hafnað og fólki fái ekki tíma til
á syrgja geti það orðið til þess að
starfsfólkið sé bara á staðnum, en
skili engu.
Flókið í framkvæmd
En jafnvel þó fyrirtæki vilji móta
stefnu í þessum málum getur það
verið flókið í framkvæmd. Í fyrsta
lagi er því miður alltaf til fólk sem
vill misnota reglur og það getur
verið erfitt að sanna að fólk hafi átt
gæludýr sem dó. En það er reyndar
ekki sérlega líklegt að fólk myndi
misnota svona reglur í miklum
mæli ef það langar að halda
vinnunni.
Það er stærra vandamál að skil-
greina hvað telst sem gæludýr, eða
með öðrum orðum hvenær sorgin
„á rétt á sér“. Ættu reglurnar líka að
ná til fiska, fugla, nagdýra og skrið-
dýra? Eða bara til spendýra sem
við getum faðmað? Það gæti orðið
flókið að ákveða hverjir hafa rétt á
frítíma og hverjir ekki og það þyrfti
að skapa skýrar reglur.
En miðað við vöxtinn sem hefur
verið undanfarin ár er líklegt að
gæludýrahald eigi frekar eftir að
aukast en minnka og því verði til
sífellt fleira fólk sem syrgir gæludýr.
Fyrirtæki þurfa að ákveða hvort og
þá hvernig þau ætla að bregðast við
þessum breytingum á þörfum starf-
krafta sinna.
Frí til að syrgja gæludýrin
Það er sjálfsagt að fólk fái frí til að syrgja þegar einhver nákominn þeim deyr. En fólk fær ekki frí frá
vinnu þegar gæludýrin þeirra deyja, þó að þau séu oft nánir vinir, jafnvel fjölskyldumeðlimir.
Það getur verið flókið að ákveða hvort og þá hvenær á að gefa fólki frí til að
syrgja ef gæludýrin þeirra deyja. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTY
Síðustu ár hefur orðið algengara að gæludýr séu boðin velkomin inn á vinnustaði.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
3
-2
C
2
C
2
1
0
3
-2
A
F
0
2
1
0
3
-2
9
B
4
2
1
0
3
-2
8
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K