Fréttablaðið - 06.10.2018, Page 86
Þau hafa líka verið
voðalega dugleg að
bjóða mér í mat og leyfa
mér að smakka matinn.
Í okkar starfi leikur
veðrið stórt hlut-
verk. Veðrið er snarpara
nú en áður og fólk er líka
meira á ferðinni í hvaða
veðri sem er, allt árið um
kring.
Neyðarvarnarhópurinn í Borgarnesi sinnir neyðar-vörnum, líkt og Rauði
krossinn gerir á landsvísu, og
opnar fjöldahjálparstöð þegar á
þarf að halda. Það getur t.d. verið
vegna náttúruhamfara eða slysa.
Oftast nær er skólahúsnæði notað
fyrir þessa starfsemi. Hér í Borgar-
nesi höfum við góða aðstöðu í
Hjálmakletti sem er mennta- og
menningarhús Borgarbyggðar. Þar
er mötuneyti og hvíldaraðstaða og
fljótlegt að setja upp móttöku fyrir
slasaða,“ segir Haukur Valsson sem
hefur starfað með Rauðakross-
deild Borgarness í um tvo áratugi.
Hann er slökkviliðsmaður og
vinnur einnig við sjúkraflutninga.
„Ég kynntist starfi Rauða krossins
í gegnum konuna mína, Ragnhildi
Kristínu Einarsdóttur, en hún var
um tíma formaður deildarinnar í
Borgarnesi,“ segir Haukur.
Komu frönskum skóla-
börnum í skjól
Neyðarvarnarhópurinn sækir
reglulega æfingar og námskeið og
er ávallt viðbúinn til starfa. „Rauði
krossinn á höfuðborgarsvæðinu
er alltaf á bakvakt og Neyðar-
línan getur kallað út allar deildir
á landinu eftir því sem þörf er á,“
segir Haukur.
Honum er ofarlega í huga atvik
frá því fyrr á þessu ári þegar rúta
með um 30 manns, þar af 26
frönskum skólabörnum, fauk út af
Borgarfjarðarbraut, milli Hvann-
eyrar og Hests. Hann segir mikla
mildi að enginn hafi slasast alvar-
lega. „Í þessu tilviki var hópslysa-
áætlun Almannavarna virkjuð eftir
að kall barst frá Neyðarlínunni.
Björgunarsveitir og allt tiltækt
sjúkralið á svæðinu var kallað út.
Mesta áherslan var á að koma fólki
í skjól í Borgarnesi. Um leið og
neyðarvarnarhópurinn var ræstur
út var byrjað að undirbúa komu
slasaðra í húsnæði skólans. Veðrið
var svo vont að ekki var stætt úti.
Þeir sem ekki fóru beint á sjúkra-
hús voru skoðaðir í fjöldahjálpar-
miðstöðinni. Hlúð var að börn-
unum sem voru að vonum skelkuð
eftir þessa lífsreynslu.“
Veðrið snarpara nú en áður
Hann segir að stuttu áður hafi
neyðarvarnarhópurinn verið
kallaður út vegna fjöldaáreksturs á
Holtavörðuheiðinni. „Þá var einn-
ig sett upp fjöldahjálparmiðstöð
í skólanum. Í okkar starfi leikur
veðrið stórt hlutverk. Veðrið er
snarpara nú en áður og fólk er líka
Veðrið
mesta váin
Neyðarvarnir eru eitt mikilvægasta
verkefni sem Rauði krossinn sinnir.
Haukur Valsson er í neyðarvarnarhópi
Rauða krossins í Borgarnesi, sem er
sérhæfður í að takast á við hópslys og
setja upp fjöldahjálparmiðstöðvar.
Neyðarvarnarhópurinn á kerru en í henni eru dýnur, teppi og annar nauðsyn-
legur búnaður. Kerran var lánuð á Suðurlandið þegar gaus í Eyjafjallajökli.
Haukur
segir gaman og
gefandi að vinna
með Rauða
krossinum.
MYND/EINKASAFN
Inga Lára er hér með íröksku fjölskyldunni sem kom til Reyðarfjarðar frá
Írak. Hún segist hafa lært ótrúlega mikið af þessari líflegu fjölskyldu.
Inga Lára Ásgeirsdóttir er afar öflugur sjálfboðaliði sem hefur starfað sem stuðningsaðili fyrir
fjölskyldu kvótaflóttafólks frá Írak
sem kom til Reyðarfjarðar í boði
íslenskra stjórnvalda. Hún segir að
starfið sé virkilega gefandi, en það
geti líka tekið á, því menningar-
munurinn sé mikill og fólkið hafi
gengið í gegnum erfiða lífsreynslu
sem setji mark sitt á það.
„Í febrúar auglýsti Rauðakross-
deildin hér á Reyðarfirði eftir sjálf-
boðaliðum til að standsetja íbúðir
fyrir fólkið,“ segir Inga. „Ég ákvað
að taka þátt í því þar sem ég er vön
að starfa sem sjálfboðaliði og mér
finnst það gefa manni mikið að gefa
af sér út í samfélagið.
Um páskana ákvað ég svo að
ganga lengra og gerast stuðn-
ingsaðili. Ég sinni fyrst og fremst
félagslegum stuðningi, skutla þeim
í ýmis erindi, fer í heimsóknir og
hjálpa þeim að aðlagast íslensku
samfélagi,“ segir Inga. „Þau hafa
líka verið voðalega dugleg að bjóða
mér í mat og leyfa mér að smakka
matinn frá heimalandinu, þannig
að ég hitti þau töluvert oft.
Mér finnst þetta rosalega
skemmtilegt og ég læri ótrúlega
mikið af þeim. Það skemmtilegasta
við þetta er að kynnast nýju fólki
og nýrri menningu og að láta gott af
sér leiða, en mér finnst mikilvægt að
vita að maður sé að gera gott fyrir
aðra,“ segir Inga. „Börnin eru líka
rosalega skemmtileg og að upplagi
er öll fjölskyldan afskaplega kát og
þakklát.
En auðvitað getur þetta líka tekið
á og maður þarf að passa sig að
taka ekki of mikið inn á sig,“ segir
Inga. „Eðlilega fara þau í gegnum
Veitir flóttamönnum stuðning
Inga Lára Ásgeirsdóttir er stuðningsaðili fyrir fjölskyldu flóttamanna sem kom til Íslands frá Írak í
boði íslenskra stjórnvalda. Hún segir starfið skemmtilegt og gefandi, en að það geti verið erfitt.
meira á ferðinni í hvaða veðri sem
er, allt árið um kring. Ferðamönn-
um hefur einnig fjölgað mikið.
Þetta þýðir að oft koma upp atvik
sem þarf að sinna,“ segir Haukur.
Honum finnst bæði gaman og
gefandi að taka þátt í sjálfboðaliða-
starfi Rauða krossins og segir að
oftast sé auðvelt að fá fólk til starfa.
„Svo smitar þetta út frá sér. Tvö
yngri börnin mín og tengdasonur
eru að læra lögreglufræði. Sonur
minn vinnur við sjúkraflutninga og
er með neyðarflutningsréttindi,“
segir Haukur stoltur að lokum.
miklar sveiflur, því þau hafa gengið í
gegnum mikið og fólkið þeirra er úti
um allan heim, bæði sem flóttafólk
og við misgóðar aðstæður í Írak. Svo
eru það mikil viðbrigði að koma til
Íslands, það er allt öðruvísi hér.
Það geta verið tungumálaörðug-
leikar og auðvitað er erfitt að horfa
upp á fólk sem líður illa, en maður
þarf að muna að leyfa fagaðilum að
sjá um ákveðna hluti,“ segir Inga.
„Maður þarf að passa sig að fara
ekki að reyna að leysa öll vanda-
málin, maður á bara að hjálpa og
veita stuðning.
Þetta gengur vel, en það er eðli-
legt í þessum aðstæðum að þetta sé
miserfitt. Þess vegna skiptir máli að
veita svona félagslegan stuðning,“
segir Inga. „Krakkarnir eru í skóla,
þar sem þau læra íslensku hratt,
en þau eldri þurfa að læra meiri
íslensku og æfa sig meira til að hafa
fleiri starfstækifæri. En heilt yfir
finnst mér þeim ganga vel og þau
vera ánægð.“
Það er nóg
að byrja á
Ekkert vandamál
er of stórt eða of lítið
fyrir netspjall 1717
8 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
3
-1
3
7
C
2
1
0
3
-1
2
4
0
2
1
0
3
-1
1
0
4
2
1
0
3
-0
F
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K