Fréttablaðið - 06.10.2018, Síða 92
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
Þorsteinn Kristjánsson
frá Gásum,
Suðurbyggð 12 á Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 1. október.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 15. október kl. 13.30.
Þórey Ólafsdóttir
Stefanía Þorsteinsdóttir Gísli Pálsson
Kristín J. Þorsteinsdóttir Kristinn Sigurharðarson
Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir Rögnvaldur Ólafsson
Ásdís Alda Þorsteinsdóttir Árni Þór Bjarnason
Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir Sigurþór Guðmundsson
afa og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristjana Helga
Guðmundsdóttir
Núpalind 6, Kópavogi,
lést á hjartadeild Landspítalans
miðvikudaginn 3. október.
Útför auglýst síðar.
Kristjana Bjarnadóttir Þorsteinn Sigurðsson
Ólöf Bjarnadóttir Guðlaugur G. Jónsson
Ása Bjarnadóttir Árni Valur Árnason
Elín Hreindal Bjarnadóttir
Birna Bjarnadóttir Gísli Örn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elínbjörg Kristjánsdóttir
sem lést á heimili sínu mánudaginn
1. október, verður jarðsungin í
Garðakirkju þriðjudaginn 9. október kl. 13.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigrún Snævarr
lést á líknardeild Landspítalans
þann 30. september.
Útför verður gerð frá Háteigskirkju
föstudaginn 12. október klukkan 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
minningarsjóð líknardeildar Landspítala.
Jakob Möller
Sunna Dóra Möller Bolli Pétur Bollason
Kristín Þóra Möller Örn Ævar Hjartarson
Árni Baldur Möller Hildur Freysdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Okkar yndislega eiginkona,
móðir, tengdamóðir og amma,
Sesselja Sigurrós Gísladóttir
(Setta)
Starengi 30,
andaðist laugardaginn 29. september.
Hún verður jarðsungin frá Grafarvogs-
kirkju fimmtudaginn 11. október kl. 13.00.
Viggó Vilbogason
Reynir Örn Viggósson Berglind Harpa Helgadóttir
Rósa Viggósdóttir Emil Sigurður Magnússon
Gísli Páll Jónsson
og barnabörn.
Það eru vinir, kunningjar og gamlir nemendur sem hafa tekið það upp hjá sjálfum sér að gera svona mikið úr afmælinu mínu,“ segir
Jón Ásgeirsson tónskáld sem verður
níræður þann 11. október. Þegar því er
slegið fram að þetta fólk líti á hann sem
guðföður sinn í tónlist, tekur hann því
sem fjarstæðu. „Nei, nei, blessuð vertu,“
segir hann ákveðinn.
En þú ert nú búinn að kenna ansi mörg-
um, er það ekki?
„Jú, tugum. Meðal þeirra eru tónskáld-
in Gunnsteinn Ólafsson og Kjartan Ólafs-
son. Mamma hans Kjartans kenndi mér á
píanó. Hún hringdi í mig og spurði hvort
ég væri ekki til í að taka að mér strákinn.“
Jón kveðst hafa sjálfur verið með í
ráðum þegar ákveðið var að hafa opið
hús í Von, sal SÁÁ við Efstaleiti, á afmæl-
isdaginn, þann 11. október. Þar kemur
tónlistarfólk fram og formlega verður
kynnt ný útgáfa Ísalaga á öllum söng-
lögum hans í tveimur heftum og eitt
hefti með aríum og dúettum úr óperum.
Meðal þess sem sungið verður er upp-
hafskafli nýjustu óperunnar hans, sem
fjallar um Vatnsenda-Rósu. „Það er aría
um vorið og ástina,“ segir Jón og tekur
fram að um frumflutning sé að ræða.
En margt annað er á döfinni. Í dag
verða Maximús-tónleikar í Hörpu og
þar á Jón eitt verk, Tröllaslag. Svo tekur
Salurinn forskot á afmælissæluna með
tónleikum annað kvöld, þar sem söng-
lög Jóns, bæði einsöngslög og kvar-
tettar, hljóma og líka aríur og dúettar úr
óperum hans, Þrymskviðu, Galdra-Lofti
og Möttulssögu.
Jón starfaði lengi við kennslu við
Söngskólann í Reykjavík og Kennara-
háskólann og 1996 var hann skipaður
prófessor við þann síðarnefnda. Hann
stjórnaði líka kórum, Liljukórnum,
Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræðrum.
Eftir hann liggur mikið af tónsmíðum
sem munu halda nafni hans á lofti um
ókomin ár.
Byrjaðir þú ungur að semja?
„Ég var um tíu ára aldurinn þegar
ég lærði nótur, bara af sjálfum mér.
Mamma hafði keypt píanó handa bróð-
ur mínum en hann hafði engan áhuga.
Ég varð hins vegar hrifinn og byrjaði
strax að búa til lög, skrifaði þau niður og
sýndi kennaranum mínum þau. Hann sá
náttúrlega strax að ég hefði búið þetta
til sjálfur en ég sagðist hafa fundið þetta
í bók. Kennarinn var gæðamaður og
þegar leið langt á milli þess að ég kom
með eitthvað frumsamið þá spurði
hann: „Hefurðu ekki séð neitt í bókum
nýlega?“ Svo fór ég að læra á píanó og
Kristinn Ingvarsson, sem var organisti
í Reykjavík, kenndi mér fyrstu tvö árin.
Alger öðlingur.“
Hvernig skyldi svo afmælisbarninu líða
með aldurinn?
„Ágætlega nema hvað ég er að verða
blindur. Ég get ekki lesið lengur og ekki
skrifað nótur. Það er dálítið bagalegt.“
gun@frettabladid.is
Fór tíu ára að semja en
sagðist hafa fundið lögin
Jón Ásgeirsson tónskáld fagnar níræðisafmæli 11. október. Íslenskt tónlistarfólk
fagnar því allan mánuðinn og hver viðburðurinn rekur annan. Sá fyrsti er í Salnum.
Jón Ásgeirsson. Aría um vorið og ástina úr nýrri óperu hans um Vatnsenda-Rósu verður frumflutt í næstu viku. FRéttAblAðið/Anton bRink
6 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r40 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
2
-D
3
4
C
2
1
0
2
-D
2
1
0
2
1
0
2
-D
0
D
4
2
1
0
2
-C
F
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K