Víkurfréttir - 30.08.2018, Blaðsíða 16
16 LJÓSANÆTURBLAÐ VÍKURFRÉTTA f immtudagur 30. ágúst 2018 // 33. tbl. // 39. árg.
„Þetta ár er búið að vera magnað. Ég
hef aldrei selt fleiri bíla,“ segir Kjartan
Steinarsson, bílasali og eigandi
K.Steinarsson bílasölunnar í Njarðvík.
Kjartan hefur selt bíla í á þriðja
áratug og byrjaði bílasöluferilinn
á því að selja Toyotur á Bílasölu
Brynleifs en nú renna fleiri Kia bílar
úr af planinu hjá honum en hann gat
órað fyrir.
„Þetta eru bara svo góðir bílar,“ segir
hann og brosir þegar hann er spurður
út í ástæðurnar fyrir rífandi sölu á
KIA bílum en þeir eru orðnir ansi
algengir á götunum á Suðurnesjum.
Kjartan hefur rekið K.Steinarsson
bílasöluna frá árinu 1999 en hann rak
lengi vel bílasölu á Fitjum í Njarðvík
þar sem hann var umboðsaðili fyrir
Heklu umboðið.
Kjartan fór illa út úr bankahruninu
þegar hann hamaðist á móti vindinum
en ákvað að taka höggið sem af varð
og nú er sá baggi að baki. „Já, þetta
er búið að vera strembið en nú er það
að baki og ég held áfram eins og ég
hef gert undanfarin ár, að selja góða
bíla,“ segir hann og vill ekki frekar
ræða það mál.
Kjartan segir að bílasala undanfarinna
ára sé ólík því sem gerðist í góðærinu
á sínum tíma. Núna sé fólk miklu
meðvitaðra um hvernig kaupin gangi
á eyrinni. Kaupendur eru almennt
að greiða miklu meira í bílunum og
algengt sé að þeir greiði helminginn
með peningum en fyrir hrun var
algengt að stærsti hlutinn væri að láni.
Hluti af velgengninni má rekja til sölu
til bílaleiga en undanfarin ár hafa ein-
staklingar og fyrirtæki verið að koma
sterk inn. „Við erum að selja mest af
KIA bílum en erum einnig með um-
boð frá Ösku sem er með Mercedes
Benz og svo frá Suzuki umboðinu
með samnefnda bíla. Við höfum náð
ótrúlegum árangri með KIA bílana
en þeir hafa höfðað til margra. Það er
ekkert skrýtið því gæðin eru mikil og
þeir eru vel útbúnir og á mjög góðu
verði. Þá hefur sjö ára ábyrgð sitt að
segja líka. Það eru margir sem horfa
til þess,“ segir Kjartan en bætir því við
að einnig hafi gengið vel með Suzuki
og Benz.
Bílasalinn er með nýja drauma sem
hann langar að sjá rætast. Hann
er búinn að sækja um lóð undir
nýtt hús hinum megin við veginn
og á teikniborðinu er ný bílasala í
skemmtilegri byggingu. Þar vill hann
leggja áherslu á þjónustu við rafbíla
sem hann telur að muni koma mun
sterkari inn á næstu árum. Bílar sem
komist 400–500 kílómetra séu á leið
á markaðinn. Og Kjartan vill þjónusta
þann hóp vel á nýjum stað. „Þú kemur
til með að keyra á bílnum í hleðslu og
hún verður auðvitað þráðlaus. Bara
svipað og þú upplifir með símann.
Það verður spennandi að fylgjast
með þróuninni í þessum málum á
næstunni,“ sagði Kjartan.
Magnað bílaár hjá Kjartani
RAFMAGNIÐ ER FRAMTÍÐIN Í BÍLUM OG HLEÐSLAN VERÐUR
ÞRÁÐLAUS. STEFNIR AÐ OPNUN NÝRRAR BÍLASÖLU.
„Þetta eru bara svo góðir
bílar,“ segir Kjartan um KIA.
Innréttingar eru veglegar og margir
aukahlutir í nýja KIA Ceed bílnum.
BOÐIÐ Í RÉTTIR Í GRINDAVÍK
Félag eldri borgara á Suðurnesjum býður félögum sínum
í Þórkötlustaðaréttir laugardaginn 15. september 2018 kl. 14:00.
Kl. 15:00 er boðið í kaffi í Salthúsið í Grindavík. Rútuferð í boði.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir 8. september n.k.
Allir eldri borgarar sem greitt hafa sitt árgjald geta komið í ferðina.
Stjórn FEBS
Sandgerðingar hringja í
Sigurbjörgu (895 7674)
Garðmenn hringja í
Sigurð (847 2779)
Vogamenn hringja í
Örn (846 7334)
Grindvíkingar hringja í
Margréti (896 3173)
Eldri borgarar í Reykjanesbæ hringja í:
Óla Björk (898 2243
Árni (846 3422)
Jón Óli (698 1613)
Kolbrún (848 7586)
Rúta fer frá Miðhúsum Sandgerði kl. 13:15
Rúta fer frá Auðarstofu Garði kl. 13:20
Rúta fer frá Álftagerði Vogum kl. 13:30
Rúta fer frá Nesvöllum kl. 13:30