Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Qupperneq 23
Þarna kýs hún
að hylja axlir
og handleggi
og bera mag-
ann í staðinn.
Kjóllinn er frá
Dior Haute
Couture og
skartgripirnir
frá Bulgari.
Stelpuleg í hvítum sumarkjól að
kynna samvinnu sína við Magnum.
Hin mörgu andlit
Bellu Hadid
Fyrirsætan Bella Hadid hefur vakið mikla athygli
undanfarið, en hún er systir Gigi Hadid. Bella var
áberandi á nýliðinni kvikmyndahátíð í Cannes þar
sem hún fór margar ólíkar leiðir í fatavali.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Hver segir að hjólabuxur geti ekki
verið partífatnaður? AFP
Hadid skildi
síðkjólinn
eftir heima
og mætti í
stuttum kjól
og jakka í stíl.
Í kjól frá Elie Saab á
sýningu myndarinnar
BlacKkKlansman.Hinn þekkti veitingastaðurNoma var opnaður í nýrrimynd á nýjum stað í Kaup-
mannahöfn fyrr á þessu ári. Gamalli
byggingu sem áður hýsti hergögn
var breytt í undirbúningseldhús og
fleira. BIG, arkitektúrfyrirtæki
Bjarkes Ingels, hannaði ellefu nýjar
byggingar fyrir veitingastaðinn,
prufueldhús og gróðurhús. Studio
David Thulstrup sá um alla innan-
hússhönnun og eru allar innrétt-
ingar sérhannaðar fyrir veitinga-
staðinn. Efnisval einkennist af
eikarvið, múrsteinum, stáli og
steypu. Matreiðslumaðurinn René
Redzepi kallar byggingarnar sjö
sem veitingastaðurinn saman-
stendur af „þorpið“. Hver og ein
bygging hefur ákveðinn tilgang; ein
er til dæmis borðsalur, í annarri er
hægt að slaka á og í þeirri þriðju er
stórt matarborð fyrir einkaveislur.
Kokkarnir vinna í opnu eldhúsi og
eru eyjurnar eikarklæddar í stað
þess að vera úr stáli eins og svo oft
tíðkast á svona stöðum. Terrazzo er
á gólfum við eldhúsið.
David Thulstrup hannaði nýja
stóla í samvinnu við Redzepi. Þeir
skoðuðu fleiri en 50 stóla sem voru
nú þegar á markaði en engir þeirra
hentuðu. Útkoman þykir vera í anda
sígildrar danskrar hönnunar en
framleiðandi stólanna er Brdr.
Krüger.
Heimilisleg stemning þar sem
gestir geta slakað á eftir matinn.
Náttúruleg efni
hjá Noma
Veitingahúsið Noma er nú á nýjum stað í
Kaupmannahöfn, en innréttingarnar eru
sérhannaðar fyrir staðinn.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir/Irina Boersma fyrir Studio David Thulstrup
3.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
TÍSKA