Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Blaðsíða 35
3.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA Í MAÍ
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Marrið í stiganumEva Björg Ægisdóttir
2 Dagar höfnunarElena Ferrante
3 KapítólaEmma D.E.N. Soutworth
4 Þú og ég og allt hittCatherine Isaac
5
261 dagur
Kristborg Bóel
Steindórsdóttir
6 BlóðengillÓskar Guðmundsson
7 Týnda systirinB.A. Paris
8 UppruniDan Brown
9 Ísland á HMGunnar Helgason
10 Í nafni sannleikansViveca Sten
11 StormfuglarEinar Kárason
12
Bókmennta- og kartöflu-
bökufélagið
Mary Ann Shaffer / Annie
Barrow
13 SamfeðraSteinunn G. Helgadóttir
14 Íslenska kraftaverkiðÞorgrímur Þráinsson
15 Lífsnautnin frjóaAnne B. Ragde
16 Alein úti í snjónumHolly Webb
17 Kona bláa skáldsinsLone Theils
18 Þorsti Jo Nesbø
19 Ævintýraeyjan TenerifeSnæfríður Ingadóttir
20 Hvolpasveitin – Litabók
Allar bækur
Núna er ég að lesa bók eftir Elenu
Ferrante sem heitir Leitin að nýju
ættarnafni. Þetta er bók númer
tvö af fjögurra bóka
þroskasögu. Ég hef
gaman af henni, en
var svolítið lengi að
komast í gang með
fyrri bókina, það
voru svo mörg nöfn í
henni að ég átti erf-
itt með að átta mig á þeim, en datt
svo alveg ofan í söguna. Ég á örugg-
lega eftir að lesa allar fjórar bæk-
urnar.
Þar á undan las ég
Litla bókabúðin í
hálöndunum eftir
Jenny Colgan. Hún
var mjög skemmti-
leg, létt og falleg
saga.
Á undan henni las ég Ég fremur
en þú og Eftir að þú fórst eftir Jojo
Moyes. Mér fannst
þær skemmtilegar
eins og dóttir mín
segir: Mamma kom
ekki á fætur fyrr en
eftir hádegi og hún
var búin að gráta og
gráta! Svo spurði
hún konur hérna úti í sveit hvort
þær hefðu líka grátið yfir þessum
bókum. Ég er ekki búin að sjá
myndina, verð að sjá hana.
ÉG ER AÐ LESA
Járnbrá Björg
Jónsdóttir
Járnbrá Björg Jónsdóttir er kennari
og umsjónarmaður bókasafns
Litlulaugaskóla.
Jökulhvörf heitir ný ljóðabók KáraTulinius, önnur ljóðabók hans enfjórða skáldverkið sem hann
sendir frá sér. Kári hefur lengi feng-
ist við ljóðagerð og reyndar útgáfu
líka, því hann tók þátt í því að hrinda
ljóðröðinni Meðgönguljóðum af stað
á sínum tíma en segist þó aldrei hafa
ætlað að verða bókaútgefandi.
Hann rekur söguna svo að þegar
hann flutti til Íslands eftir að hafa
búið í Bandaríkjunum hafi svo viljað
til að Nýhil-útgáfan hafi verið að
syngja sitt síðasta. „Ég leigði íbúð
með einum af stjórnarmönnum Ný-
hil þegar það var að hætta og hálfur
lagerinn endaði heima hjá okkur
þannig að það voru kassar af göml-
um Nýhil-bókum uppi um alla veggi.
Þá fór ég að hugsa um að það mætti
koma einhverju svona aftur í gang
og setti Meðgönguljóð af stað með
þeim Valgerði Þóroddsdóttur og
Sveinbjörgu Bjarnadóttur. Það vatt
svo upp á sig, en nú er ég loksins að
komast út úr þessu útgáfustússi, því
það eiga bara eftir að koma út tvær
Meðgönguljóðabækur og svo gefum
við út ljóðaúrval.“
Af ofangreindu má ráða að ljóðið
stendur Kára því nærri og það
fyrsta sem birtist eftir hann á prenti
var ljóðakyns, í ljóðakveri Lista-
félagsins sem hét Örþrasir. Fyrsta
bókin sem kom út undir hans nafni
var þó skáldsaga en ekki ljóðabók:
Píslarvottar án hæfileika: saga af
hnattvæddri kynslóð sem kom út
2010. Fyrsta ljóðabókin, Brot hætt
frum eind, kom svo út 2015 og
Móðurhugur á síðasta ári – „það má
segja að ég hafi farið afturábak að
þessu, fyrst gef ég út skáldsögu, síð-
an fer ég að ungskáldast og svo kom
fyrsta ljóðabókin“.
„Ég byrjaði að skrifa ljóð og
hugsa um ljóð á menntaskólaaldri,
en stuttu seinna fór ég að skrifa sög-
ur. Það var þó ekki fyrr en um miðj-
an þrítugsaldur sem ég fór að gera
það af einhveri alvöru. Fyrstu árin
einbeitti ég mér að ljóðum og var
meðal annars með verkefni þar sem
ég skrifaði eitt ljóð á dag á gamla rit-
vél í Hinu húsinu, sem var þá í gamla
Geysishúsinu, og sýndi það úti í
glugga. Ég hef stundum grínast með
það að ég er mjög lengi að skrifa
prósa, en það sé vegna þess að ég
lærði fyrst að skrifa ljóð þannig að
ég er nokkurra-orða-á-dag-maður.“
Lunginn af ljóðunum úr
einni lotu
Að sögn Kára eru ljóðin í Jökul-
hvörfum misgömul, en obbinn þó
skrifaður á síðasta ári. „Elsta ljóð í
bókinni er frá 2009 eða 2010, frá
þeim vetri, en lunginn af ljóðunum
er frá því í fyrra og í raun frá einni
lotu. Ég bý til skiptis í Reykjavík og
Helsinki og síðasta vetur var ég í
Helsinki og beðinn af íslenskukenn-
ara hér í borg að taka saman ljóð og
svo myndi ég hafa vinnustofu með
nemendunum þar sem þeir myndu
þýða ljóð. Þá safnaði ég saman tutt-
ugu ljóðum og tvö gömul fóru þá allt
í einu að tala saman; annars vegar
ljóð sem heitir „Flugþrá“ og hins
vegar „Ævi hringast um endalokin“.
Það voru einhver óljós tengsl á milli
þeirra og ég fór að hugsa um hver
þau væru.
Í maí í fyrra byrjaði ég svo að
skrifa og skrifa sextán eða sautján
ljóð í einni bendu sem eru flest í bók-
inni. Ég setti þau svo í salt en tók
þau upp úr skúffunum um haustið og
fór að athuga hvort það væru ein-
hver gömul ljóð sem ég ætti sem
pössuðu við þetta og samdi svo tvö
til þrjú ljóð til viðbótar. Eins og ljóð-
skáld eiga til fór ég að hlaða mörg-
um, mörgum gömlum ljóðum í bók-
ina, en svo átti ég góða yfirlesara
sem bentu mér á að það væri
kannski betra fyrir bókina að taka út
það sem ekki passaði.“
– Ljóðunum er skipað í fjóra hluta
sem heita Endar, Þrár, Líf og Snjó-
ar sem sér stað í titlum ljóðanna, en
ekki bara þar, því þau tengjast efnis-
lega.
„Já, og flestir titlarnir voru svona,
ég breytti nafni örfárra ljóða til að
þau féllu að þessu skema, en þessi
skipting varð til af sjálfu sér. Ég átti
dálítið mikið af ljóðum sem voru um
þrár og dálítið mikið um snjó og
kulda og svo ljóð um mitt hversdags-
líf og svo átti ég þessi gömlu ljóð
sem eru mikið til samin þegar ég var
að flytja frá Bandaríkjunum til Ís-
lands og voru öll um breytingar.
Síðasta ljóðið í bókinni, „Hvörf
Snæfellsjökuls“, varð þannig til að
mér var gefin lítil minnisbók og ég
ákvað að í hvert skipti sem ég sæi
Snæfellsjökul frá Reykjavík myndi
ég punkta niður hjá mér hughrifin.
Ég veit ekki af hverju, en ég hafði
skrifað framan á þá bók Jökulhvörf.“
– Rauður þráður í Lífshluta
bókarinnar er föðurhlutverkið.
„Ég á son sem er að verða þriggja
ára og þegar ég fór að hugsa um
þessi ljóð sem ég samdi í maí í fyrra
var ég að klára fæðingarorlof og var
því búinn að vera mikið með syni
mínum. Föðurhlutverkið er mér
mjög hugleikið en ég er ekki þannig
ljóðskáld að ég plani það sem ég
ætla að skrifa. Ég fæ einhverja hug-
mynd sem ég spinn úr, en það sem
ég hugsa um verður að ljóðum. Eins
og biðukollur sem enda einhvers
staðar, vonandi í frjóum jarðvegi í
hausnum á mér.“
Í leit að frjóum jarðvegi
Í nýrri ljóðabók yrkir Kári Tulinius um endalok, þrár, daglegt líf og snjó og
kulda með áherslu á Snæfellsjökul eins og sést frá Reykjavík.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Ljósmynd/Martin Diegelman
Kári Tulinius,
skáld og bóka-
útgefandi.
Frímerki óskast
Box 537
SE-20125Malmö -SWEDEN
+46 (0)40-25 88 50
stampauctions@postiljonen.se
www.postiljonen.com
Leiðandi uppboðsfyrirtæki norðurlanda með frímerki, heimsækir
Ísland og frímerkjasýninguna ”NORDIA 2018" í TM-höllinni
Garðabæ 8. -10. júní 2018
Ef þið eigið frímerki, sem þið
viljið selja eða setja á uppboð
þá hafið vinsamlegast samband
við okkur og bókið tíma til
ráðgjafar. Þið getið einnig
komið við á sýningarbás okkar
og afhent hluti til uppboðs
eða til að selja okkur gegn
staðgreiðslu.
Hafðu samband við okkur í síma:
767-2661 eða +46 70 795 74 36,
eða með tölvupósti:
steinar.fridthorsson@postiljonen.se