Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018 LESBÓK TÖLVULEIKIR Stikla fyrir nýjasta leikinn í hinni vinsælu Fallout-tölvuleikjaröð var birt fyrr í vik- unni. Margt er enn á huldu um leikinn, en hann ber nafnið Fallout 76. Bethesda, framleiðendur Fallout-seríunnar, segja leikinn frábrugðinn fyrri leikjum, en heyrst hefur að þetta verði fyrsti Fall- out-leikurinn sem býður upp á fjöldaspilun. Fallout-leikirnir eru meðal þeirra vinsælustu á markaðnum og eiga sér stað á eyðilandi í eft- irleik kjarnorkustríðs, þar sem eftirlifendur koma upp á yfirborðið eftir að hafa hafst við í neðanjarðarhvelfingum. Fallout 76 dregur nafn sitt af hvelfingu 76, en leikurinn er ekki sá 76. í röðinni. Aftur á auðnina Heilgallinn góði Jamie Lee Curtis Ekki dama í neyð KVIKMYNDIR Fyrsta stiklan fyrir nýju Halloween-myndina verður birt á næstu dögum. Þar snýr Jamie Lee Curtis aftur sem Laurie Strode, en myndin er beint framhald upp- runalegu myndarinnar frá 1978. Aðdáandi sem fékk að sjá brot úr myndinni lýsti því yfir að Strode væri þar engin dama í neyð heldur ætti hinn kaldrifjaði Michael Myers í vök að verjast. Jeff djassar TÓNLIST Leikarinn góðkunni Jeff Goldblum er í þann mund að gefa út djassplötu. Goldblum lærði á píanó í æsku og hefur spilað við tilefni eins og í spjallþáttum Grahams Nortons og Jimmys Kimmels og komið fram með hljómsveit sinni The Mildred Snitzer Orchestra, en þetta er fyrsta platan sem hann gefur út. Platan verður gefin út hjá plötu- útgáfu Decca og kemur út síðar á þessu ári. Jeff Goldblum KVIKMYNDIR Marvel-stórmyndin Avengers: Infinity War er nálægt því að hafa halað inn tvo milljarða bandaríkjadala í kvikmyndahúsum og verður þá fjórða kvikmyndin til að ná því marki. Aðrar myndir í þessum eftirsótta klúbbi eru Avat- ar, Titanic og Star Wars: The Force Awakens. Myndin kostaði vel yfir þrjú hundruð milljónir bandaríkja- dala í framleiðslu og er vinsælasta mynd Marvel til þessa. Chris Hemsworth Tveir milljarðar Þáttaröðin The Expanse var ný-lega endurnýjuð á streymis-veitu Amazon Prime, eftir að sjónvarpsstöðin SyFy hætti fram- leiðslu þáttanna. Jeff Bezos, for- stjóri Amazon, tilkynnti fréttirnar sjálfur en hann er að eigin sögn mik- ill aðdáandi þáttanna. Þættirnir eru vísindaskáldskapur, byggðir á sam- nefndri bókaröð og segja frá átökum og togstreitu innan sólkerfisins eftir að mannkynið kemst í kynni við óþekkt lífsform. Rödd aðdáenda Í kjölfar þess að þáttunum var aflýst tóku dyggir áhorfendur höndum saman til að reyna að bjarga þeim. Yfir hundrað þúsund undirskriftum var safnað auk þess sem þeir hóp- fjármögnuðu flugvél til að fljúga yfir kvikmyndaver Amazon með áletr- uðum borða myllumerkis herferðar- innar #savetheexpanse. Þetta fram- tak hefur líklega hjálpað Amazon að komast að ákvörðun sinni, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem aflýstri þáttaröð er bjargað af streymis- veitu. Bananabásnum lokað Hin truflaða Bluth-fjölskylda naut mikilla vinsælda í Arrested Develop- ment, en eftir þriðju seríu þáttanna tilkynnti höfundur þeirra, Mitchell Hurwitz, að þættirnir myndu ekki halda áfram í sjónvarpi. Það var þó ekki vegna skorts á fjármagni held- ur hélt Hurwitz að gæðum þáttanna myndi hnigna ef þeir héldu áfram á sömu braut. Hann sagði að ef það yrði mögulegt að gefa þættina út á formi þar sem þeim væri ekki sjón- varpað í hverri viku væri hann til- búinn að halda áfram. Nýtt húsnæði Bluth-fjölskyldunnar Árið 2012 kom fjórða sería Arrested Development út á ört vaxandi streymisveitu Netflix. Þótt nýju þættirnir hafi ekki hlotið jafn góðar viðtökur og fyrri seríur þá fengu þættirnir þó nýtt líf og var fimmta serían gefin út fyrr í vikunni. Á sama tíma og fjórða serían var gefin út var Netflix nýbyrjað að gefa út sitt eigið efni á borð við House of Cards og Orange is the New Black, en með endurvakningu Arrested Develop- ment opnaði fyrirtækið nýjar dyr til að blása lífi í þætti sem ekki héldu fótfestu innan ramma dag- skrárgerðar sjónvarps. Valkostur er kostur Stærsti kostur streymisveitnanna fram yfir sjónvarpsstöðvar þegar kemur að framboði efnis er að not- endur geta ákveðið hvað þeir vilja horfa á og hvenær. Þegar áhorf- endur ákveða hvað þeir vilja horfa á í staðinn fyrir að horfa á það sem er í gangi hverju sinni, þá geta streymis- veitur byggt upp fjölbreytilegt safn efnis á meðan sjónvarpsstöðvar þurfa að huga að dagskránni sem heild. Þessi fjölbreytileiki gefur pláss fyrir jaðarefni á borð við vís- indaskáldskap eins og The Expanse. Með þessu móti sanka streymisveit- urnar að sér mörgum misjöfnum hópum sem horfa einungis á sér- stakar tegundir þátta. Hvað næst? Endurvakningar þessara þátta sýna hvaða möguleika sérstaða streymis- þjónustu hefur. Það er að öllum lík- indum of seint að blása lífi í þætti sem var aflýst fyrir sögulok eins og t.d. Deadwood og Firefly, en ef áhorfendur láta í sér heyra er aldrei að vita hvaða gömlu vinir af skjánum gætu birst aftur. Áhöfn geimskipsins Rocinante úr The Expanse. AFP Nýtt líf á streymisveitum Streymisveiturnar Netflix og Amazon Prime hafa veitt þáttaröðum á borð við The Expanse og Arrested Development, sem héldu ekki fótfestu í sjónvarpi, annað tækifæri á skjánum. Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is Hin sprenghlægilega Bluth-fjölskylda (Michael Cera sem George Michael vantar á myndina) sneri aftur í fimmtu seríu á Netflix fyrr í vikunni. AFP Notendum Netflix fjölgar enn og eru þeir nú yfir 125 milljónir. Shawn Men- des hvetur karlmenn til að opna sig um líðan sína. TÓNLIST Kanadíski tónlistarmaðurinn Shawn Mendes gaf nýverið út sína þriðju sólóplötu. Hann segir textana á plötunni, sem ber titilinn Shawn Mendes, innblásna af bar- áttu sinni við kvíða. Mendes, sem er aðeins 19 ára gamall, var uppgötvaður á samfélagsmiðlinum Vine og frægðarsól hans hefur risið mjög hratt. Hann segir mikið álag hafa fylgt því; hann hafi grátið einu sinni í viku og verið hræddur um að fólki fyndist hann alltaf vera dapur. Skilaboð plötunnar séu hins vegar þau að enginn þurfi að skammast sín fyrir að glíma við kvíða. Mendes hefur hvatt karla til að ræða opinskátt um andlega heilsu sína og vera hreinskilnir um sína líðan. Það þurfi ekki að vera flókið; það eina sem þurfi að gera sé að viðurkenna hvernig manni líði. Kvíðinn var innblástur AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.