Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Page 28
Það er gott að koma til Færeyja.Þær eru engu líkar og gest-risni og hjálpsemi heima-
manna er óviðjafnanleg. Ég hef
löngum sagt að eyjarnar átján séu, ef
tala má um þær sem eitt „land“, ann-
að af mínum eftirlætislöndum að
sækja heim. Við að koma í fyrsta
skipti sjóleiðina til Færeyja styrktist
sú skoðun einfaldlega því fagrar eru
þær séðar af hafi; ekki síst litrík
þorpin sem sitja innst í vogum, undir
grónum hlíðum sem á sumrin virðast
vera í öllum græna litaskalanum.
Í fyrrasumar átti ég ánægjulegt er-
indi til Færeyja, var fenginn til að ljós-
mynda fyrir væntanlega danska út-
gáfu Færeyinga sögu. Ég gat því sett
saman tökuhandrit sem leiddi mig á
nokkrum dögum um helming eyjanna
átján, oftast á bílnum mínum. Ég
sigldi nú í fyrsta skipti milli landanna
með Norrænu og það var svo ánægju-
leg og notaleg reynsla að ég hlakka til
að endurtaka þann leik. Einn kostur-
inn við að vera á eigin bíl er að geta
haft allan ljósmyndabúnaðinn og ann-
að viðlegudót með sér og góðar bækur
að lesa í. Auk Færeyinga sögu voru
með í för nokkur lykilverk Williams
Heinesen, hins mikla sagnameistara
eyjanna, og hin snilldarlega ferða-
dagbók Hannesar Péturssonar, Eyj-
arnar átján – Dagbók úr Færeyjaferð
1965.
Það er ekki bara gott að koma til
Færeyja, það er líka sérlega gott að
ferðast um eyjarnar og milli þeirra.
Vegir eru góðir, ferjur ganga nokkuð
ört milli þeirra flestra og þyrlur til
þeirra afskekktustu. Það reyndi ég
nú í fyrsta sinn og mæli með.
Sumir ferðamenn setja upp mið-
stöð í Þórshöfn og flakka þaðan um
eyjarnar sem getur verið gott enda
bærinn líflegur og mannlífið fjöl-
breytilegt. Til að mynda var það hin
besta skemmtan að fylgjast með Vox-
Morgunblaðið/Einar Falur
Á Skúfey eru um þrjátíu manns búsettir allan ársins hring. Þar bjó fornkappinn
Sigmundur Brestisson og er Skúfey einn margra litríkra viðkomustaða.
Trúbador með gítar á baki fylgist með ferjunni Másinni koma að bryggju á
Svíney. Eyjan er sú næstaustasta í eyjaklasanum og þar búa um fjörutíu manns.
Óviðjafnanleg gest-
risni á fögrum eyjum
Eyjarnar átján sem mynda Færeyjar eru einhver besti viðkomustaður sem
hugsast getur. Heimamenn eru góðir gestgjafar, þægilegt er að ferðast um,
akandi eða siglandi, og alls staðar er margt að skoða og njóta.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Þorpin Norðdepil á Borðey og
Hvannasund á Viðey renna hér
saman í glóandi síðdegissólinni.
Fyrrverandi skipstjóri, Finnbjörn Hovsgarð, leiðir átak um að breyta þorpinu
Hovi á Suðurey í miðstöð þar sem minnast má sögualdarinnar og víkinga.
FERÐALÖG Ólafsvaka, þjóðhátíð Færeyinga, er haldin hátíðlegdagana 28. - 29. júlí. Á Ólafsvöku er til siðs að syngja
og dansa langt fram eftir nóttu.
Dansað fram á nótt
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018