Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 2 Staða: Markvörður Aldur: 34 ára Landsleikir: 49 Mörk: 0 Félag: Randers (Danmörku) Fyrri félög: Leiknir R., Afturelding, Stjarnan, Fram, KR, Brann, Sandnes Ulf, Nijmegen, Bodö/Glimt. Hannes Þór Halldórsson Staða: Varnarmaður Aldur: 33 ára Landsleikir: 79 Mörk: 1 Félag: Valur Fyrri félög: Brann, Hammarby. Birkir Már Sævarsson Staða: Miðjumaður Aldur: 22 ára Landsleikir: 4 Mörk: 0 Félag: Vålerenga (Noregi) Fyrri félög: Keflavík, Reading Samúel Kári Friðjónsson Staða: Sóknarmaður Aldur: 21 árs Landsleikir: 5 Mörk: 3 Félag: PSV Eindhoven (Hollandi) Fyrri félög: Heerenveen Albert Guðmundsson Staða: Varnarmaður Aldur: 24 ára Landsleikir: 20 Mörk: 3 Félag: Rostov (Rússlandi) Fyrri félög: Breiðablik, Augnablik, Viking Stavanger, Lokeren, Granada Sverrir Ingi Ingason Staða: Varnarmaður Aldur: 32 ára Landsleikir: 77 Mörk: 3 Félag: Rostov (Rússlandi) Fyrri félög: Fylkir, Gautaborg, FC Köbenhavn, Krasnodar, Fulham, Rubin Kazan Ragnar Sigurðsson Staða: Miðjumaður Aldur: 27 ára Landsleikir: 67 Mörk: 7 Félag: Burnley (Englandi) Fyrri félög: Charlton, AZ Alkmaar, Breiðablik Jóhann Berg Guðmundsson Staða: Miðjumaður Aldur: 30 ára Landsleikir: 67 Mörk: 9 Félag: Aston Villa (Englandi) Fyrri félög: Basel, Pescara, Sampdoria, Standard Liege, Viking Stavanger, Bodö/Glimt Birkir Bjarnason Staða: Sóknarmaður Aldur: 27 ára Landsleikir: 13 Mörk: 1 Félag: Rostov (Rússlandi) Fyrri félög: ÍA, Lilleström, Wolves, Molde, Bröndby Björn B. Sigurðarson Staða: Miðjumaður Aldur: 28 ára Landsleikir: 57 Mörk: 19 Félag: Everton (Englandi) Fyrri félög: Reading, Shrewsbury, Crewe, Hoffenheim, Tottenham, Swansea Gylfi Þór Sigurðsson Leikmenn íslenska landsliðsins á HM 2018 í Rússlandi 1 2 3 4 5 6 7 9 108 Útgefandi Árvakur Umsjón Víðir Sigurðsson Þýðingar Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is, Guðjón Þór Ólafsson gudjon@mbl.is Auglýsingar Sigríður Hvönn Karlsdóttir siggahvonn@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Golli Stærsta hátíð heimsfótboltans, lokakeppni HM karla, hefst á morgun í víðfeðmasta ríki heims, Rússlandi. Mótið er haldið í 21. skipti, það hefur farið fram á fjögurra ára fresti frá 1930, ef stríðsárin eru undanskilin, en þetta mót er algjörlega sérstakt að einu leyti: Ísland er með! Morgunblaðið kynnir mótið og liðin með þessu HM-blaði sem er einstakt í sinni röð og unnið í samvinnu við fjölmiðla í öllum 32 þátt- tökulöndunum, undir forystu Marcus Chris- tenson, knattspyrnuritstjóra enska blaðsins The Guardian. Blaðið er byggt upp á greinum sem 32 íþróttafréttamenn, einn frá hverri þátt- tökuþjóð, skrifa um sitt landslið. Þar er lögð áhersla á að fræða lesendur um hvernig búist er við að liðin muni spila, hvernig líklegt er að byrjunarlið þeirra verði skipuð og hverjir eru í leikmannahópunum. Þá eru íslensku leikmennirnir og þjálf- ararnir kynntir sérstaklega á fremstu síðum blaðsins. Leikjadagskrá er í miðopn- unni. Veislan er að byrja, upphafsleik- urinn er í Moskvu á morgun, 14. júní, og Ísland mætir Argentínu á laugardaginn. Fjölmiðlar Árvakurs eru mættir til Rússlands með vaska sveit íþróttafréttamanna og ljósmyndara og flytja ykkur stöðugar fréttir af mótinu og sér- staklega af íslenska liðinu. Góða skemmtun! Víðir Sigurðsson Ísland er með á HM Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Afslappaðir Helgi Kolviðsson, Alfreð Finnbogason, Aron Einar Gunnarsson, Rúrik Gíslason, Gylfi Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Sverrir Ingi Ingason á æfingu í Kabardinka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.